Skipulags- og umhverfisráð - 27. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Hjördís Ýr Johnson - formaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalfulltrúi
- Kristinn Dagur Gissurarson - varaformaður
- Gunnar Sær Ragnarsson - aðalfulltrúi
- Helga Jónsdóttir - aðalfulltrúi
- Leó Snær Pétursson - aðalfulltrúi
- Hákon Gunnarsson - aðalfulltrúi
- Indriði Ingi Stefánsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
- Ásthildur Helgadóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Andrea Kristinsdóttir - verkefnastjóri
- Karlotta Helgadóttir - fulltrúi skipulagsdeildar
- Harri Ormarsson - lögfræðingur
Ritari
- Karlotta Helgadóttir
Dagskrá fundar
Skipulags- og umhverfisráð - 26. fundur frá 16.03.2026
Lagt fram.
Skipulags- og umhverfisráð - 26. fundur frá 16.03.2026.
Lagt fram.
Lögð fram til afgreiðslu tillaga skipulagsfulltrúa að skipulagslýsingu dags. 16. apríl 2026 fyrir nýtt deiliskipulag Þríhnúkagígs og nágrennis. Fyrirhuguð skipulagsvinna mun felast í að skapa ramma um framtíðarnýtingu svæðisins.
Ester Anna Ármannsdóttir verkefnastjóri tók sæti á fundinum og gerði grein fyrir erindinu.
Samþykkt með vísan til 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð skipulagslýsing dags. 16. apríl 2026 verði kynnt.
- Skipulagslýsing Þríhnúka og nágrennis drög 16. apríl
- 01_Ísor mengunarhætta vegna óhappa á akvegum til Bláfjalla_2012.
- 02_Vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu greinargerð um heildarendurskoðun_2015
- 03_Þríhnúkagígur og skíðasvæði í Bláfjöllum. Dreifingarreikningar vegna áhættumats uppbyggingar og starfsemi_2017
- 04_Uppbygging aðstöðu við Þríhnúkagíg og Bláfjöll. Áhættumat gagnvart vatnsvernd_2017
- 05_Áhættumat vegna starfsemi á skíðasvæði í Bláfjöllum og fyrirhugaðrar starfsemi við Þríhnúkagíg gagnvart vatnsvernd og grunnvatnsmálum_2017.
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Gests Ólafssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 20 við Kópavogsbraut. Sótt er um að byggja glerskála/gróðurhús við vesturhlið núverandi íbúðarhúss og tvær viðbyggingar við suður- og norðurhlið bifreiðageymslu, samtals 250 m² að flatarmáli. Nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar úr 0,19 í 0,34 við breytinguna. Uppdrættir dags. 15. apríl 2025, uppfærðir 25. september 2025. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 13. janúar til 26. febrúar 2026, athugasemdir bárust. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. mars 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Jafnframt lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. apríl 2026, uppfært 21. apríl 2026.
Ester Anna Ármannsdóttir gerði grein fyrir erindinu og vék af fundi að því loknu.
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 16. apríl 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
- Umsögn skipulagsfulltrúa dag. 16. apríl 2026 uppfært 21. apríl 2026
- Fylgiskjal 1 umsögn Kópavogsbraut 20 dags.21.mars2025
- Fylgiskjal 2 Umsögn skipulagsfulltrúa 22. desember 2025
- Athugasemdir sem bárust á kynningartíma.
- Uppdrættir dags. 15. apríl 2025, breytt 25. september 2025.
- Skuggavarp fyrir breytingar
- Skuggavarp eftir breytingar
- Umsögn skipulagsfulltrúa 22. desember 2025
Með tilvísun í deiliskipulagsskilmála í deiliskipulagi Vatnsendahvarfs dags. 14. nóvember 2023 eru lögð fram uppfærð byggingaráform frá Nordic office of Architecture dags 13. febrúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 10-18 og 20-32 við Roðahvarf. Í byggingaráformum kemur fram hvernig hönnun og frágangur mannvirkja og lóða falla að viðmiðum í almennum ákvæðum í skipulagsskilmálum í gildandi deiliskipulagi Vatnsendahvarfs. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 19. janúar 2026 voru lögð fram byggingaráform dags. 22. desember 2025 og var þeim vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Lögð fram uppfærð byggingaráform dags. 13. febrúar 2026 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. apríl 2026.
Ekki eru gerðar athugasemdir við að sótt verði um byggingarleyfi í samræmi við framlögð byggingaráform dags. 13. febrúar 2026 með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 16. apríl 2026, leiðrétt 21. apríl 2026.
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 77 við Hrauntungu dags. 18. mars 2026 um viðbyggingu, austan við aðalinngang á fyrstu hæð. Við breytinguna stækkar herbergisrými um u.þ.b. 4 m². Núverandi gluggi verður fluttur í nýjan útvegg. Frágangur verður í samræmi við upprunalegt útlit Sigvaldahúsa og húsið málað í sama lit og núverandi bygging. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. mars 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. apríl 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Jafnframt lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. apríl 2026.
Kristjana H. Kristjánsdóttir verkefnastjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið og gerði grein fyrir erindinu.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 15. apríl 2026 með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Leós Snæs Péturssonar, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæði Gunnars Sæs Ragnarssonar.
Lagt fram erindi skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2026 um fyrirkomulag samkeppni um þróun og aukna nýtingu íþróttasvæðis í Kópavogsdal (ÍÞ-4 í aðalskipulagi Kópavogs) í samræmi við tillögur skipulagsfulltrúa um áframhaldandi skipulagsvinnu í Kópavogdal dags. 9. janúar 2025 sem samþykktar voru í bæjarráði þann 23. janúar 2025.
Freyr Snorrason verkefnastjóri tók sæti á fundinum og gerði grein fyrir erindinu.
Samþykkt með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar, Leós Snæs Péturssonar og Helgu Jónsdóttur að hafin verði vinna við undirbúning hugmyndasamkeppni í samræmi við erindi skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2026. Hákon Gunnarsson sat hjá við afgreiðslu málsins.
Lagt fram erindi Ásgeirs Baldurs f.h. Breiðabliks dags. 17. apríl 2026 um breytingu á deiliskipulagi fyrir Kópavogsvöll svo unnt verði að setja upp lýsingu sem uppfyllir alþjóðlegar kröfur. Óskað er eftir viðræðum við Kópavogsbæ um fyrirkomulag fjármögnunar lýsingarinnar og kostnaðarþáttöku Breiðabliks.
Einnig er lagt fram erindi skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2026.
Freyr Snorrason verkefnastjóri gerði grein fyrir erindinu og vék af fundi að því loknu.
Samþykkt að hafin verði vinna við gerð breytingar á deiliskipulagi fyrir Kópavogsvöll í samræmi við erindi skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2026.
09
Auðbrekka þróunarsvæði. Svæði 4, Auðbrekka 15 til 27, oddatölur. Deiliskipulag. Forkynning.
Lögð fram að nýju að lokinni forkynningu á vinnslustigi tillaga skipulagsdeildar dags. 17. október 2025 að deiliskipulagi fyrir svæði 4 á þróunarsvæðinu í Auðbrekku (ÞR-2). Í tillögunni felst áframhaldandi þróun svæðisins úr athafnasvæði í blandaða byggð. Íbúðir á svæði 4 verða samtals 89 á svæði 4. Þriðjungi íbúða verður komið fyrir á efstu hæð í núverandi atvinnuhúsnæði sem breytt verður í íbúðarhúsnæði að hluta og hækkað um eina hæð. Nýbygging við Auðbrekku 15. Gert er ráð fyrir að byggingarmagn á svæðinu geti aukist um 6.300 m². Atvinnuhúsnæði verður áfram á jarðhæðum við Auðbrekku. Tillagan er sett fram á uppdrætti og skilmálahefti dags 17. október 2025. Einnig er lögð fram skipulagslýsing dags. 2015, uppfærð 17. október 2025, drög að umhverfismati dags. 17. október 2025, Áhættumati vegna loftslagsbreytinga dags 9. maí 2025, skýringahefti-B dags. í október 2025 og húsakönnun dags. október 2025. Tillagan var forkynnt 29. janúar til 12. mars 2026, athugasemdir bárust.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar, Leós Snæs Péturssonar og Hákonar Gunnarssonar að fela skipulagsfulltrúa að vinna framlagða tillögu á vinnslustigi dags. 17. október 2025 áfram með hliðsjón af framkomnum athugasemdum og ábendingum á kynningartíma. Helga Jónsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins.
- Athugasemdir sem bárust á kynningartíma_Auðbrekka
- Uppdráttur 17. okt 2025
- Skýringarhefti B, dags 2014, uppf. okt 2025
- Skipulagslýsing 2015 uppf. 17. okt 2025
- Skilmálar 17.okt 2025
- Húsakönnun 17. okt 2025
- Minnisblað Mannvit um umhverfisáhrif dags 2015
- Uppfært hljóðkort janúar 2026
- Drög - Áhættumat vegna loftlagsbreytinga 26. janúar 2026
Lögð fram fyrirspurn varabæjarfulltrúa Hákonar Gunnarssonar dags. 14. apríl 2026 um niðurrif og framkvæmdir á Fannborgarreit.
Vísað til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.
Lagt fram yfirlit yfir fullnaðarafgreiðslur skipulagsfulltrúa Kópavogs. Fundir nr. 31 til 43 á tímabilinu 10. október 2025 til 13. apríl 2026.
Lagt fram.