Fyrirspurn bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttur vegna birtrar vinnslutillögu um Kársnesstíg á sunnaverðu Kársnesi
Málsnúmer: 26011618
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3246. fundur
Á fundi bæjarráðs þann 22. janúar sl. var lögð fram fyrirspurn bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttur vegna birtrar vinnslutillögu um Kársnesstíg á sunnaverðu Kársnesi. Nú lögð fram umsögn bæjarritara fyrir hönd bæjarstjóra.
Lagt fram.
Umræður.
02
Bæjarráð - 3243. fundur
Frá bæjarfulltrúa Vina Kópavogs, dags. 20.01.2026, lögð fram eftirfarandi fyrirspurn, ásamt greinargerð:
Fyrirspurn vegna birtrar vinnslutillögu um Kársnesstíg á sunnaverðu Kársnesi
1. Hefur samningum Kópavogsbæjar frá 1993 sem gerðir voru við íbúa á Þinghólsbraut 57 og 59 til að geta lagt Kópavogsræsið verið breytt? Hafa íbúar gefið eftir réttinn sem þau sömdu um þegar þau gáfu eftir land og urðu við óskum Kópavogsbæjar um að breyta erfðafestusamningum í leigulóðarsamninga?
2. Hvenær og með hvaða ákvörðun var aðalgöngustígnum á opnu svæði meðfram suðurströnd Kársness breytt í hjóla- og göngustíg?
3. Í vinnslutillögu um Kársnesstíg á sunnanverðu Kársnesi sem nú er í skipulagsgátt er lagt til að komið verði fyrir aðgreindum hjólastíg sem stuðlar að skýrari aðgreiningu ferðamáta. Telur Kópavogsbær sér heimilt að leggja slíka tillögu fyrir almenning ef ekki liggur fyrir lausn á kröfum íbúa á grunni ofangreindra samninga?
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar bæjarstjóra.