Bæjarráð - 3246. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Orri Vignir Hlöðversson - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaðurBoðaði forföllHjördís Ýr Johnson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllTheódóra S Þorsteinsdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Lögð fram þjónustukönnun sveitarfélaga fyrir árið 2025 sem unnin var af Gallup.
Lagt fram og kynnt.
Umræður.
Gestur vék af fundi kl. 9.25
Frá deildarstjóra greiningardeildar, dags. 03.02.2026, lögð fram umsögn varðandi umsókn um stofnframlag vegna byggingar á 24 íbúðum að Hallarhvarfi 17-19 og Hallarhvarfi 21--23. Bæjarráð frestaði málinu 05.02.2026.
Lagt fram
Umræður.
Bæjarráð hafnar umsókn um stofnframlag með þremur atkvæðum gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur og Einars A. Þorvarðarsonar.
Fundarhlé hófst kl. 10:15, fundi fram haldið kl. 11:31
Bókun:
"Við úthlutun í Vatnsendahvarfi hefur bærinn haft til viðmiðunar um að auka framboð húsnæðis af öllum gerðum fyrir kaupendur á almennum húsnæðismarkaði. Það samræmist ekki þeim áherslum að verða við beiðni frá Bjargi íbúðafélagi um fjárhagsstuðning til uppbyggingarinnar að fjárhæð um 220 milljónir kr."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Andri Steinn Hilmarsson
Elísabet Sveinsdóttir
Bókun:
"Það svar sem barst sem umsögn við þessu máli snýst einungis um félagslegt húsnæði Kópavogs og hvernig bærinn stendur að þeim málaflokki. Beiðni Bjargs íbúðafélags snýst hins vegar um 12% stofnframlag sveitarfélagsins á móti 18% framlagi ríkisins í samræmi við lög um almennar íbúðir. Þær íbúðir eru ætlaðar þeim tekjuhópum sem standa fjárhagslega skör ofar þeim sem eiga rétt til félagslegs húsnæðis en þurfa eigi að síður aðstoð til þess.
Bjarg hses hefur sýnt fram á að innan almenna íbúðakerfisins er hægt að bjóða tryggt húsnæði á mun betra verði en almennt er á leigumarkaði. Sjálfseignarstofnunin er í eigu ASÍ og BSRB en um 75% vinnandi fólks á aldrinum 16-64 ára er í aðildarfélögum heildarsamtakanna. Hlutfallið sem fullnægir eigna- og tekjuskilyrðum almenna íbúðakerfis er þó enn hærra, því að utan heildarsamtakanna eru betur launaðar stéttir, t.d. háskólafélög, stjórnendur og sérfræðingar. Undirrituð leggja áherslu á að Kópavogsbær taki upp samstarf við Bjarg til að opna möguleika fyrir námsmenn, ungt fólk, aldraða, fatlað fólk og fólk sem ekki er fært um að sjá sér fyrir húsnæði sökum félagslegra aðstæðna eða verulegs fjárhagsvanda. Kópavogur á að vera samfélag allra, ekki bara þeirra sem hafa efni á húsnæði með hárri arðkröfu fjárfesta og milljarðatekjum sveitarfélags af sölu byggingarréttar."
Bergljót Kristinsdóttir
Einar Þorvarðarson
Helga Jónsdóttir
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Bókun:
"Kópavogur á í samstarfi um lausnir í húsnæðismálum fyrir ólíka hópa, þ.m.t. tekjulága, öryrkja og aldraða. Það breytir því ekki að úthlutun til Bjargs samræmist ekki þeim áherslum sem mótaðar voru við úthlutun í Vatnsendahvarfi."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Andri Steinn Hilmarsson
Elísabet Sveinsdóttir
Bókun:
"Kópavogsbær hefur á undanförnum árum ráðstafað landréttindum bæjarins til þeirra sem greiða hæst verð fyrir byggingarréttinn. Bærinn hefur haft margra milljarða tekjur af því. Hann er í góðri stöðu til að leggja af mörkum til uppbyggingar húsnæðis í þágu mismunandi tekjuhópa sem samkvæmt lögum er sameiginlegt hlutverk ríkis og sveitarfélaga."
Bergljót Kristinsdóttir
Einar Þorvarðarson
Helga Jónsdóttir
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Bókun:
"Meiri- og minnihluta greinir á um leiðir að því markmiði að sem flestir geti eignast þak yfir höfuðið. Sala á byggingarrétti á markaðsverði er sanngjarnasta leiðin til að tryggja að allir sitji við sama borð. Almenningur nýtur andvirðisins í formi uppbyggingar innviða, þjónustu, lægri skatta og niðurgreiðslu skulda."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Andri Steinn Hilmarsson
Elísabet Sveinsdóttir
03
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttur vegna birtrar vinnslutillögu um Kársnesstíg á sunnaverðu Kársnesi
Á fundi bæjarráðs þann 22. janúar sl. var lögð fram fyrirspurn bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttur vegna birtrar vinnslutillögu um Kársnesstíg á sunnaverðu Kársnesi. Nú lögð fram umsögn bæjarritara fyrir hönd bæjarstjóra.
Lagt fram.
Umræður.
04
Fannborg 2. Kæra vegna verkstjórnar og óleyfisframkvæmdar vegna niðurrifs í miðbæ Kópavogs
Frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, dags. 10.02.2026, lagður fram úrskurður vegna máls nr. UUA2601015, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúa Kópavogsbæjar um að
aðhafast ekkert vegna niðurrifs Fannborgar 2.
Lagt fram.
Umræður
Frá SSH, dags. 05.02.2026, lögð fram bókun um ofanflóðahættumat.
Ásdís Kristjánsdóttir vék af fundi kl. 11:40.
Lagt fram.
Frá SSH, dags. 04.02.2026, lögð fram bókun varðandi bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla.
Lagt fram.
Fundargerð í tíu liðum.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Fundargerð í 11 liðum. Bæjarstjórn er bent á lið nr. 1.
Lagt fram.
Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
9.4 - 2401489 - Reglur um fjárhagsaðstoð
Lagðar fram til afgreiðslu breytingar á reglum Kópavogsbæjar um fjárhagsaðstoð.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð og vísar þeim áfram til afgreiðslu í bæjarráði og staðfestingar í bæjarstjórn.
Vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.
9.6 - 2602490 - Bókun 622. fundar stjórnar SSH. Vegna bráða- og viðbragðsteymis barna og ungmenna
Lagður fram til afgreiðslu samstarfssamnningur sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna miðlægs bráða-og viðbragðsteymis vegna ofbeldis meðal barna ásamt drögum að verklagsreglum teymisins.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagðan samstarfssamning ásamt verklagsreglum og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarráði og staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarráð vísar málinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
- Fylgibréf KOP- viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna
- 1. Drög að samstarfssamningi sveitarfélaganna um miðlægt bráða- og viðbragðsteymi
- 2. Drög að verklagsreglum bráða- og viðbragðsteymis og stýrihóps
- 3. Samstarfsyfirlýsing vegna þátttöku BOFS og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
- 4. Styrktarsamningur mennta- og barnamálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar
- 5. Umsókn um styrk til sveitarfélaga í þágu farsældar barna
Fundargerð 622. fundar stjórnar SSH frá 02.02.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 41. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 03.02.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 40. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 29.12.2025.
Lagt fram.
13
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttur um stöðu máls varðandi málshöfðun fyrir héraðsdómi
Frá bæjarfulltrúa Vina Kópavogs, dags. 06.02.2026, lögð fram fyrirspurn um stöðu máls.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til bæjarritara.