Til baka í fundargerðir
Bæjarlind 12. Umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa.
Málsnúmer: 2601198
Ferill máls
01
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 38. fundur
Lögð fram umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 19. desember 2025 vegna byggingarleyfisumsóknar Birgis Þrastar Jóhannessonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 12 við Bæjarlind. Sótt er um að gera breytingar á innra skipulagi 2. hæðar (jarðhæð Bæjarlindarmegin) og breyta notkuninni úr verslunarrými í skrifstofur og starfsmannaaðstöður. Uppdrættir dags. 21. nóvember 2025.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.