Álfhólsvegur 58. Fyrirspurn.
Málsnúmer: 26012312
Ferill máls
01
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 40. fundur
Lögð fram að nýju fyrirspurn Kristjáns Bjarnasonar arkitekts dags. 26. janúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 58 við Álfhólsveg um hvort heimilt verði að byggja 237m² viðbyggingu á tveimur hæðum við suðurhlið hússins á lóðinni. Jafnframt um hvort heimilt verði að fjölga íbúðum á lóðinni úr einni í fjórar. Gert er ráð fyrir að þak hússins hækki um 30cm samhliða fyrirhuguðum breytingum. Uppdrættir dags. 1. janúar 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 28. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Jafnframt lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2026.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2026.
02
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 39. fundur
Lögð fram fyrirspurn Kristjáns Bjarnasonar arkitekts dags. 26. janúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 58 við Álfhólsveg um viðbyggingu og hækkun á þaki. Uppdrættir dags. 1. janúar 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.