Menningarmiðstöð
Málsnúmer: 2601534
Ferill máls
01
Menningar- og mannlífsnefnd - 11. fundur
Vettvangsferð nefndarmanna vegna nýrrar menningarmiðstöðvar.
Nefndarmenn þakka góða kynningu og móttöku hjá Heimum í Smáralind þar sem áform um nýja menningarmiðstöð voru kynnt.
02
Bæjarráð - 3243. fundur
Kynning ásamt tillögum sem lagðar eru fram til samþykktar.
Umræður.
Gestur vék af fundi kl. 10:47.
Bæjarráð tekur undir bókun menningar- og mannlífsnefndar og felur þróunarstjóra, í samvinnu við áhættu- og fjárstýringastjóra, að vinna áfram að undirbúningi þess, m.a. að vinna þarfagreiningu, fjárhagslega greiningu þess, auk annarra þátta sem vert er að líta til.
03
Menningar- og mannlífsnefnd - 10. fundur
Kynning ásamt tillögum sem lagðar eru fram til samþykktar.
Védís Hervör Árnadóttir umbóta- og þróunarstjóri kynnir hugmyndir að menningarmiðstöð í Smáralind og bókasafni í efri byggðum.
Menningar- og mannlífsnefnd fagnar stórhuga áformum þess efnis að opna menningarmiðstöð í Smáralindinni og nýtt bókasafn í efri byggðum að aflokinni þarfagreiningarvinnu. Bæði verkefnin stuðla að auknu aðgengi Kópavogsbúa að bókum og menningu og rímar vel við menningarstefnu bæjarins og innleiðingu á heildstæðri læsisáætlun sem innleidd verður á árinu.
Við teljum að ný miðstöð í Smáralind verði ekki aðeins bókasafn eða menningarmiðstöð, heldur lifandi samfélags-, menningar- og fræðslumiðstöð sem styrkir bæjarfélagið, skapar ný tækifæri og byggir samfélagslega samstöðu íbúa.
Nefndin leggur áherslu á að bæði verkefnin verði þróuð áfram af yfirstjórn bæjarins og að staðsetning bókasafns í efri byggðum verði tekin sem fyrst. Nefndin vísar fjárhagslegum þáttum til afgreiðslu bæjarráðs.