Marbakkabraut 38. Byggingarleyfisumsókn.
Málsnúmer: 26022205
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1340. fundur
Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Björgvins Snæbjörnssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 38 við Marbakkabraut. Sótt er um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu, einbýlishúsi á einni hæð að hámarki 143,3 m² að flatarmáli, á suðausturhluta lóðarinnar. Fyrir eru á lóðinni tvö einbýlishús. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðarinnar úr 0,19 í 0,27. Fyrirkomulag bílastæða breytist og þeim fjölgar úr tveimur í fjögur. Uppdrættir dags. 12. mars 2026 og 23. mars 2026. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 27. mars til 4. maí 2026. Einnig er lögð fram athugasemd sem barst á kynningartímanum ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2026.
Elín Mjöll Lárusdóttur verkefnastjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginsonar, Jóhönnu Pálsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur.
02
Bæjarráð - 3256. fundur
Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Björgvins Snæbjörnssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 38 við Marbakkabraut. Sótt er um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu, einbýlishúsi á einni hæð að hámarki 143,3 m² að flatarmáli, á suðausturhluta lóðarinnar. Fyrir eru á lóðinni tvö einbýlishús. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðarinnar úr 0,19 í 0,27. Fyrirkomulag bílastæða breytist og þeim fjölgar úr tveimur í fjögur. Uppdrættir dags. 12. mars 2026 og 23. mars 2026. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 27. mars til 4. maí 2026. Einnig er lögð fram athugasemd sem barst á kynningartímanum ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2026.
Elín Mjöll Lárusdóttur verkefnastjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
03
Skipulags- og umhverfisráð - 29. fundur
Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Björgvins Snæbjörnssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 38 við Marbakkabraut. Sótt er um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu, einbýlishúsi á einni hæð að hámarki 143,3 m² að flatarmáli, á suðausturhluta lóðarinnar. Fyrir eru á lóðinni tvö einbýlishús. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðarinnar úr 0,19 í 0,27. Fyrirkomulag bílastæða breytist og þeim fjölgar úr tveimur í fjögur. Uppdrættir dags. 12. mars 2026 og 23. mars 2026. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 27. mars til 4. maí 2026. Einnig er lögð fram athugasemd sem barst á kynningartímanum ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2026.
Elín Mjöll Lárusdóttur verkefnastjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Fundarhlé kl. 15:37, fundi framhaldið kl. 16:14.
Andrés Pétursson tók sæti á fundinum kl. 15:50.
Bókun:
„Undirrituð taka undir óskir íbúa að Kópavogsbær geri deiliskipulag fyrir Marbakkabraut 38. Í deiliskipulagsgerðinni skal taka tillit til þeirra þátta sem koma fram í innsendum athugasemdum.“
Hákon Gunnarsson, Helga Jónsdóttir, Andrés Pétursson og Indriði Ingi Stefánsson.
Bókun:
„Í umsögn skipulagsfulltrúa kemur skýrt fram að umsóknin telst samræmast Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040, landnotkun, byggðarmynstri og þéttleika byggðar á svæðinu og að ekki sé talin þörf á formlegri deiliskipulagsgerð.
Að mati meirihlutans liggja því ekki fyrir forsendur sem kalla á sérstaka deiliskipulagsgerð í þessu máli, enda er framkvæmdin innan þeirra marka sem Aðalskipulag Kópavogs gerir ráð fyrir hvað varðar nýtingarhlutfall, umfang og yfirbragð byggðar.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.
Tillaga Hákonar Gunnarssonar, Helgu Jónsdóttur, Andrésar Péturssonar og Indriða Inga Stefánssonar að afgreiðslu málsins:
„Skipulagsskylda hvílir á sveitarfélögum og í deiliskipulagi er m.a. lagt mat á svipmót einstakra bygginga til þess að gæta heildarsamræmis. Spurningar íbúa lúta ekki síst að framkvæmdatíma og hagsmunum íbúa af því að koma að sjónarmiðum. Aðalskipulag er almennt en deiliskipulag er sértækt. Því leggja undirrituð til að Kópavogsbær sjálfur geri deiliskipulag að Marbakkabraut 38.“
Hafnað með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar og Gunnars Sæs Ragnarssonar gegn atkvæðum Andrésar Péturssonar, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar.
Framlögð byggingarleyfisumsókn samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2026 með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar gegn atkvæðum Andrésar Péturssonar, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
04
Skipulags- og umhverfisráð - 24. fundur
Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 13. febrúar 2026 þar sem umsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 38 við Marbakkabraut um byggingarleyfi er vísað til skipulags- og umhverfisráðs.
Sótt er um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu, einbýlishúsi á einni hæð alls 143,3 m² að birtu flatarmáli, á suðurhluta lóðarinnar. Fyrir eru á lóðinni tvö einbýlishús. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðarinnar úr 0,19 í 0,27.
Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100 dags. 12. febrúar 2026.
Samþykkt með vísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð umsókn um byggingarleyfi verði grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum á lóðunum nr. 10, 12, 24, 26, 28, 30, 32, 34 og 36 við Marbakkabraut.