Bæjarstjórn - 1340. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
- Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
- Björg Baldursdóttir - aðalmaður
- Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllTheódóra S Þorsteinsdóttir - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar
Fundargerð í 28 liðum.
Bæjarstjórn staðfestir fundargerð byggingarfulltrúa með 9 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar.
Fundargerð í 13 liðum.
Lagt fram.
2.4 - 26052906 - Bókun 628. fundar stjórnar SSH. Sérskóli á höfuðborgarsvæðinu - viljayfirlýsing
Frá SSH., dags. 15.05.2026, lögð fram bókun varðandi sérskóla á höfuðborgarsvæðinu ásamt fylgigögnum.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir framlagða viljayfirlýsingu mð 10 atkvæðum.
- KOP Fylgibréf - sérskóli viljayfirlýsing
- 1 Viljayfirlýsing um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu.
- 2. Sérskóli á höfuðborgarsvæðinu  Fýsileikagreining á samstarfi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu sameiginlegs sérskóla
- Sérskóli á höfuðborgarsvæðinu - viljayfirlýsing
Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.
Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 33 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
7.2 - 26022205 - Marbakkabraut 38. Byggingarleyfisumsókn.
Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Björgvins Snæbjörnssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 38 við Marbakkabraut. Sótt er um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu, einbýlishúsi á einni hæð að hámarki 143,3 m² að flatarmáli, á suðausturhluta lóðarinnar. Fyrir eru á lóðinni tvö einbýlishús. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðarinnar úr 0,19 í 0,27. Fyrirkomulag bílastæða breytist og þeim fjölgar úr tveimur í fjögur. Uppdrættir dags. 12. mars 2026 og 23. mars 2026. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 27. mars til 4. maí 2026. Einnig er lögð fram athugasemd sem barst á kynningartímanum ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2026.
Elín Mjöll Lárusdóttur verkefnastjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Fundarhlé kl. 15:37, fundi framhaldið kl. 16:14.
Andrés Pétursson tók sæti á fundinum kl. 15:50.
Bókun:
„Undirrituð taka undir óskir íbúa að Kópavogsbær geri deiliskipulag fyrir Marbakkabraut 38. Í deiliskipulagsgerðinni skal taka tillit til þeirra þátta sem koma fram í innsendum athugasemdum.“
Hákon Gunnarsson, Helga Jónsdóttir, Andrés Pétursson og Indriði Ingi Stefánsson.
Bókun:
„Í umsögn skipulagsfulltrúa kemur skýrt fram að umsóknin telst samræmast Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040, landnotkun, byggðarmynstri og þéttleika byggðar á svæðinu og að ekki sé talin þörf á formlegri deiliskipulagsgerð.
Að mati meirihlutans liggja því ekki fyrir forsendur sem kalla á sérstaka deiliskipulagsgerð í þessu máli, enda er framkvæmdin innan þeirra marka sem Aðalskipulag Kópavogs gerir ráð fyrir hvað varðar nýtingarhlutfall, umfang og yfirbragð byggðar.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.
Tillaga Hákonar Gunnarssonar, Helgu Jónsdóttur, Andrésar Péturssonar og Indriða Inga Stefánssonar að afgreiðslu málsins:
„Skipulagsskylda hvílir á sveitarfélögum og í deiliskipulagi er m.a. lagt mat á svipmót einstakra bygginga til þess að gæta heildarsamræmis. Spurningar íbúa lúta ekki síst að framkvæmdatíma og hagsmunum íbúa af því að koma að sjónarmiðum. Aðalskipulag er almennt en deiliskipulag er sértækt. Því leggja undirrituð til að Kópavogsbær sjálfur geri deiliskipulag að Marbakkabraut 38.“
Hafnað með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar og Gunnars Sæs Ragnarssonar gegn atkvæðum Andrésar Péturssonar, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar.
Framlögð byggingarleyfisumsókn samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2026 með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar gegn atkvæðum Andrésar Péturssonar, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginsonar, Jóhönnu Pálsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur.
7.3 - 26032451 - Askalind 2. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram umsókn Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts dags. 16. mars 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Askalind um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggja auka hæð ofan á núverandi verslunarhúsnæði á lóðinni. Uppdrættir dags. 5. maí 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. mars 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann þann 11. maí 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2026.
Samþykkt með vísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi dags. 16. mars 2026 verð auglýst með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar og Gunnars Sæs Ragnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Andrés Pétursson, Helga Jónsdóttir og Hákon Gunnarsson sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginsonar, Jóhönnu Pálsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur.
Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.
8.4 - 25111111 - Kópavogsbraut 20. Byggingarleyfisumsókn.
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Gests Ólafssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 20 við Kópavogsbraut. Sótt er um að byggja glerskála/gróðurhús við vesturhlið núverandi íbúðarhúss og tvær viðbyggingar við suður- og norðurhlið bifreiðageymslu, samtals 250 m² að flatarmáli. Nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar úr 0,19 í 0,34 við breytinguna. Uppdrættir dags. 15. apríl 2025, uppfærðir 25. september 2025. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 13. janúar til 26. febrúar 2026, athugasemdir bárust. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. mars 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Jafnframt lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. apríl 2026, uppfært 21. apríl 2026.
Ester Anna Ármannsdóttir gerði grein fyrir erindinu og vék af fundi að því loknu.
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 16. apríl 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir synjun skipulags- og umhverfisráðs með 10 atkvæðum.
- Umsögn skipulagsfulltrúa dag. 16. apríl 2026 uppfært 21. apríl 2026
- Fylgiskjal 1 umsögn Kópavogsbraut 20 dags.21.mars2025
- Fylgiskjal 2 Umsögn skipulagsfulltrúa 22. desember 2025
- Athugasemdir sem bárust á kynningartíma.
- Uppdrættir dags. 15. apríl 2025, breytt 25. september 2025.
- Skuggavarp fyrir breytingar
- Skuggavarp eftir breytingar
- Umsögn skipulagsfulltrúa 22. desember 2025
- Glærur af 27_fundi skipulags_og umhverfisráðs
Fundargerð 998. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 08.05.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 146. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar frá 08.05.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 280. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 17.04.2026.
Lagt fram.