Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður Pírata í velferðar- og mannréttindaráði leggur fram fyrirspurn um verklag vegna vistunar barna

Málsnúmer: 26022701

Ferill máls

01

Velferðar- og mannréttindaráð - 16. fundur

Umbeðið minnisblað barnaverndarþjónustu lagt fram.

Lagt fram.

02

Velferðar- og mannréttindaráð - 15. fundur

Í ljósi nýlegrar umfjöllunar um alvarlega annmarka á verklagi og eftirliti með vistun barna á vegum félagsþjónustu sveitarfélaga óskar undirrituð eftir minnisblaði með svörum við eftirfarandi spurningum:

1. Hver er ferillinn þegar ábending eða vísbending berst um að aðbúnaði barna í vistun á vegum Kópavogsbæjar sé ábótavant t.d. frá barni, foreldri eða skóla?

2. Hvaða ráðstafanir eru gerðar varðandi vistun barnsins á meðan mál er rannsakað?

3. Hvaða kröfur eru gerðar um eftirlit á vettvangi, til dæmis óboðaðar heimsóknir og viðtöl við barn án viðveru vistforeldra?

4. Hvernig er tryggt að upplýsingar um áhyggjur, ábendingar og niðurstöður athugana vegna vistunar barns berist milli viðeigandi stofnana og sveitarfélaga, þannig að mál falli ekki milli kerfa?

5. Hvaða stuðningur stendur fyrrum skjólstæðingum Kópavogsbæjar, bæði börnum og foreldrum þeirra, til boða í dag og hvernig er tryggt að hann sé aðgengilegur?

Velferðar- og mannréttindaráð vísar fyrirspurninni til sviðsstjóra velferðarsviðs til úrvinnslu.