Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Velferðar- og mannréttindaráð - 15. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Björg Baldursdóttir - formaður
  • Svava Halldóra Friðgeirsdóttir - aðalmaður
  • Matthías Björnsson - aðalmaður
  • Hólmfríður Hilmarsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
  • Erlendur H. Geirdal - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Erlendur H. Geirdal - vara áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Sigrún Bjarnadóttir - varaformaður

Starfsmenn

  • Sigrún Þórarinsdóttir - starfsmaður velferðarsviðs
  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir

Dagskrá fundar

01

Fjárhagsaðstoð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 11.2.2026, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.

02

Áfrýjun heimsendur matur

Áfrýjun dags. 18.2.2026, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.

03

Kæra nr. 786-2025. NPA. Málsmeðferð

Lagður fram til kynningar úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála dags. 24.2.2026.

Lagt fram.

04

Breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð

Lagðar fram til kynningar og umræðu breytingar á reglum Kópavogsbæjar um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk.

Velferðar- og mannréttindaráð vísar málinu til umsagnar í notendaráði í málefnum fatlaðs fólks.

05

Breytingar á reglum um styrki til náms- verkfæra og tækjakaupa

Lagðar fram til kynningar og umræðu breytingar á reglum Kópavogsbæjar um styrki til náms, verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir.

Velferðar- og mannréttindaráð vísar málinu til umsagnar í notendaráði í málefnum fatlaðs fólks.

06

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður Pírata í velferðar- og mannréttindaráði leggur fram fyrirspurn um verklag vegna vistunar barna

Í ljósi nýlegrar umfjöllunar um alvarlega annmarka á verklagi og eftirliti með vistun barna á vegum félagsþjónustu sveitarfélaga óskar undirrituð eftir minnisblaði með svörum við eftirfarandi spurningum:

1. Hver er ferillinn þegar ábending eða vísbending berst um að aðbúnaði barna í vistun á vegum Kópavogsbæjar sé ábótavant t.d. frá barni, foreldri eða skóla?

2. Hvaða ráðstafanir eru gerðar varðandi vistun barnsins á meðan mál er rannsakað?

3. Hvaða kröfur eru gerðar um eftirlit á vettvangi, til dæmis óboðaðar heimsóknir og viðtöl við barn án viðveru vistforeldra?

4. Hvernig er tryggt að upplýsingar um áhyggjur, ábendingar og niðurstöður athugana vegna vistunar barns berist milli viðeigandi stofnana og sveitarfélaga, þannig að mál falli ekki milli kerfa?

5. Hvaða stuðningur stendur fyrrum skjólstæðingum Kópavogsbæjar, bæði börnum og foreldrum þeirra, til boða í dag og hvernig er tryggt að hann sé aðgengilegur?

Velferðar- og mannréttindaráð vísar fyrirspurninni til sviðsstjóra velferðarsviðs til úrvinnslu.

07

Virkniþing í þágu eldra fólks

Lagt fram til kynningar minnisblað um Virkniþing Kópavogsbæjar í þágu eldra fólks sem haldið var 25.2.2026.

Velferðar- og mannréttindaráð lýsir ánægju með Virkniþingið og hvetur til þess að það verði árlegur viðburður.

08

Kynning á starfsemi velferðarsviðs

Sviðsstjóri kynnir starfið á velferðarsviði á milli funda velferðar- og mannréttindaráðs.

Velferðar- og mannréttindaráð Kópavogsbæjar lýsir ánægju með þá ákvörðun velferðarsviðs að biðja fyrrum skjólstæðing sem vistaður var í Bakkakoti og fjölskyldu hans afsökunar vegna þess að ekki var brugðist við með viðeigandi hætti á sínum tíma. Ráðið þakkar sviðsstjóra velferðarsviðs fyrir að hafa stigið fram og axlað ábyrgð fyrir hönd bæjarins. Slík framganga er mikilvægt skref í átt að ábyrgð, gagnsæi og lærdómi þegar mál sem varða velferð barna koma upp.