Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttur og Theodóru S. Þorsteinsdóttur, að Kópavogsbær undirbúi uppsögn lóðarleigusamnings Nýbýlavegar 1

Málsnúmer: 26031362

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3249. fundur

Lögð fram eftirfarandi tillaga bæjarfulltrúa Viðreisnar og Vina Kópavogs, ásamt greinargerð:

Tillaga:

Lagt er til að Kópavogsbær undirbúi uppsögn lóðarleigusamnings um atvinnulóðina Nýbýlaveg 1 og að bæjarstjóri leggi tillögu um útfærslu uppsagnar fyrir bæjarráð hið fyrsta. Gildandi lóðarleigusamningur er dagsettur og undirritaður af hálfu Kópavogsbæjar 30. mars 2022 og var honum þinglýst 4. apríl 2022. Í honum eru m.a. ákvæði um að hús skuli fullgert að utan og gróðri komið fyrir á lóð eigi síðar en 30. mars 2025. Lóðarhafa beri að halda áfram framkvæmdum með eðlilegum hraða að dómi bæjarráðs og ljúka þeim innan tilskilins tíma. Vanefndir af hálfu lóðarhafa heimili Kópavogsbæ að afturkalla lóðina og leigja hana öðrum. Í því tilviki skuli bærinn greiða lóðarhafa bætur fyrir mannvirki sem á lóðinni kunna að vera samkvæmt mati. Bæjarsjóður sé ekki bótaskyldur þótt framkvæmdir tefjist vegna ófullnægjandi byggingaraðstöðu, t.d. ef götur, vatns- eða holræsalagnir eru ófullgerðar. Ennfremur segir að bæjarstjórn geti hvenær sem hún telur sé þörf á tekið lóðina í sínar hendur og leigutaka sé þá skylt að láta lóðina og leigurétt sinn af hendi. Ekkert endurgjald greiðist fyrir leiguréttinn en byggingar skuli bættar samkvæmt mati. Að lokum er ákvæði um að með þessum samningi séu allir eldri samningar um lóðina felldir úr gildi og að ekki muni rísa bensínstöð á lóðinni. Lóðarhafi muni óska eftir breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar.

Umræður.

Fundarhlé hófst kl. 10:53, fundi fram haldið kl. 11:29.


Bæjarráð vísar tillögunni til umsagnar bæjarritara.

Bókun:

"Meirihluti minnir á að kynningarferli skipulagslýsingar er nýlokið og verið er að vinna úr athugasemdum. Jafnframt teljum við að fá, ef einhver fordæmi, séu fyrir uppsögn á gildandi lóðaleigusamningi í þéttbýli. Í ljósi mögulegra afleiðinga og orðsporsáhættu fyrir Kópavogsbæ sem uppsögninni gæti fylgt, köllum við eftir upplýsingum um fordæmi og leggjum til að málinu verði vísað til umsagnar lögfræðideildar."

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson

Elísabet B. Sveinsdóttir

Fundarhlé hófst kl. 11:34, fundi fram haldið kl. 11:45

Bókun:

"Orðsporsáhættan felst í því að fylgja ekki ákvæðum lóðarleigusamnings sem tekur á aðstæðum eins og þessum. Einróma athugasemdir íbúa og ákvarðanir Vegagerðarinnar leiða til þeirrar niðurstöðu að fyrirhuguð uppbygging geti ekki gengið eftir."

Bergljót Kristinsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Helga Jónsdóttir


Bókun:

"Við vísum til fyrri bókunar okkar."

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson

Elísabet B. Sveinsdóttir