Bæjarráð - 3249. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Orri Vignir Hlöðversson - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaðurBoðaði forföllAndri Steinn Hilmarsson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá umhverfissviði, lögð fram drög að loftlagsstefnu innri rekstrar Kópavogsbæjar. Lagt er til við bæjarráð að samþykkja sviðsmynd B. Jafnframt er lagt til að setja fram aðgerðaráætlun til tveggja ára í senn.
Kynning og umræður.
Gestur vék af fundi kl. 8.57.
Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar.
Frá umhverfissviði, dags. 27.02.2026, lögð fram til samþykktar bæjarráðs drög
að lóðarvilyrði. Bæjarráð frestaði málinu þann 05.03.2026.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur að vísa framlögðum drögum að lóðarvilyrði að Dalvegi 1 til Klasa ehf., til tveggja ára, til staðfestingar bæjarstjórnar með breytingum bæjarráðs.
Frá umhverfissviði, dags. 02.03.2026, lögð fram umsögn um endurnýjun samstarfssamning Kópavogsbæjar og Skógræktarfélag Íslands. Málinu var frestað á fundi bæjarráðs 5. mars 2026.
Gestur vék af fundi kl. 10:22.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlögð drög að endurskoðuðum samstarfssamningi við Skógræktarfélag Kópavogs.
04
Ósk bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um upplýsingar um veikindahlutfall hjá Kópavogsbæ
Frá mannauðsstjóra, dags. 09.03.2026, lagt fram svar við fyrirspurn varðandi veikindahlutfall hjá Kópavogsbæ.
Lagt fram.
Umræður.
05
Ósk bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um upplýsingar um hvaða reglur gilda um auglýsingar starfa hjá yfirstjórn Kópavogsbæjar
Frá mannauðsstjóra, dags. 09.03.2026, lagt fram svar við fyrirspurn varðandi reglur um auglýsingar starfa hjá yfirstjórn Kópavogsbæjar.
Lagt fram.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 06.03.2026, lagt fram erindi með upplýsingum um undanþágubeiðnir vegna lausráðninga starfsmanna til kennslustarfa og tilkynninga um ráðningar kennaranema.
Lagt fram.
07
Til umsagnar 499. mál - varnir gegn sjóflóðum og skriðuföllum og Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 05.03.2026, lagt fram til umsagnar 499. mál - varnir gegn sjóflóðum og skriðuföllum og Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála (markmið nýting eigna, framkvæmdaumsjón).
Lagt fram.
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, lagt fram til umsagnar 505. mál - Sveitarstjórnarlög´.
Vísað til bæjarritara til umsagnar.
Frá Siglingasambandi Íslands, dags. 21.02.2026, lögð fram áskorun til sveitarfélagsins. Bæjarráð frestaði málinu á fundi sínum 05.03.2026.
Lagt fram.
10
Bókun 624. fundar stjórnar SSH. Almenningssamgöngur - þjónustusamningur og samstarfssamningur
Frá SSH, dags. 04.03.2026, lögð fram til samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar, drög að þjónustusamningi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og ríkisins við
Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. Jafnframt eru fyrirliggjandi drög að samstarfssamningi milli Strætó bs. og Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. um rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.
Kynning og umræður
Gestir viku af fundi kl. 9:49
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa drögum að þjónustusamningi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og ríkisins við Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. til staðfestingar í bæjarstjórnar.
Jafnframt samþykkir bæjarráð með fimm atkvæðum að vísa drögum að samstarfssamningi milli Strætó bs. og Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. um rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu til staðfestingar bæjarstjórnar.
Fundargerð í 15 liðum.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
Fundargerð 278. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 20.02.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 624. fundar stjórnar SSH frá 02.03.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 994. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 03.03.2026.
Lagt fram.
Fundargerð skólanefndar Menntaskólans í Kópavogi frá 13.02.2026.
Lagt fram.
17
Ósk bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttur um að erindi um launaþróun greiðslna til myndlistarmanna komi á dagskrá bæjarráðs
Frá bæjarfulltrúum Viðreisnar, Pírata, Samfylkingar og Vina Kópavogs, dags. 03.03.2026 lagt fram erindi um að launaþróun greiðslna til myndlistarmanna í samræmi við verklagsreglur Kópavogsbæjar og taxta Sambands íslenskra myndlistarmanna. Bæjarráð frestaði málinu á fundi sínum 05.03.2026. Nú lagt fram svar forstöðumanns Gerðarsafns.
Gestur vék af fundi kl. 10:43
Umræður.
18
Tillaga bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttur og Theodóru S. Þorsteinsdóttur, að Kópavogsbær undirbúi uppsögn lóðarleigusamnings Nýbýlavegar 1
Lögð fram eftirfarandi tillaga bæjarfulltrúa Viðreisnar og Vina Kópavogs, ásamt greinargerð:
Tillaga:
Lagt er til að Kópavogsbær undirbúi uppsögn lóðarleigusamnings um atvinnulóðina Nýbýlaveg 1 og að bæjarstjóri leggi tillögu um útfærslu uppsagnar fyrir bæjarráð hið fyrsta. Gildandi lóðarleigusamningur er dagsettur og undirritaður af hálfu Kópavogsbæjar 30. mars 2022 og var honum þinglýst 4. apríl 2022. Í honum eru m.a. ákvæði um að hús skuli fullgert að utan og gróðri komið fyrir á lóð eigi síðar en 30. mars 2025. Lóðarhafa beri að halda áfram framkvæmdum með eðlilegum hraða að dómi bæjarráðs og ljúka þeim innan tilskilins tíma. Vanefndir af hálfu lóðarhafa heimili Kópavogsbæ að afturkalla lóðina og leigja hana öðrum. Í því tilviki skuli bærinn greiða lóðarhafa bætur fyrir mannvirki sem á lóðinni kunna að vera samkvæmt mati. Bæjarsjóður sé ekki bótaskyldur þótt framkvæmdir tefjist vegna ófullnægjandi byggingaraðstöðu, t.d. ef götur, vatns- eða holræsalagnir eru ófullgerðar. Ennfremur segir að bæjarstjórn geti hvenær sem hún telur sé þörf á tekið lóðina í sínar hendur og leigutaka sé þá skylt að láta lóðina og leigurétt sinn af hendi. Ekkert endurgjald greiðist fyrir leiguréttinn en byggingar skuli bættar samkvæmt mati. Að lokum er ákvæði um að með þessum samningi séu allir eldri samningar um lóðina felldir úr gildi og að ekki muni rísa bensínstöð á lóðinni. Lóðarhafi muni óska eftir breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar.
Umræður.
Fundarhlé hófst kl. 10:53, fundi fram haldið kl. 11:29.
Bæjarráð vísar tillögunni til umsagnar bæjarritara.
Bókun:
"Meirihluti minnir á að kynningarferli skipulagslýsingar er nýlokið og verið er að vinna úr athugasemdum. Jafnframt teljum við að fá, ef einhver fordæmi, séu fyrir uppsögn á gildandi lóðaleigusamningi í þéttbýli. Í ljósi mögulegra afleiðinga og orðsporsáhættu fyrir Kópavogsbæ sem uppsögninni gæti fylgt, köllum við eftir upplýsingum um fordæmi og leggjum til að málinu verði vísað til umsagnar lögfræðideildar."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Elísabet B. Sveinsdóttir
Fundarhlé hófst kl. 11:34, fundi fram haldið kl. 11:45
Bókun:
"Orðsporsáhættan felst í því að fylgja ekki ákvæðum lóðarleigusamnings sem tekur á aðstæðum eins og þessum. Einróma athugasemdir íbúa og ákvarðanir Vegagerðarinnar leiða til þeirrar niðurstöðu að fyrirhuguð uppbygging geti ekki gengið eftir."
Bergljót Kristinsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Helga Jónsdóttir
Bókun:
"Við vísum til fyrri bókunar okkar."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Elísabet B. Sveinsdóttir
19
Fyrirspurn frá öllum oddvitum minnihlutans. Hvernig hefur Kópavogsbær innleitt loftslagsstefnu höfuðborgarsvæðisins
Lögð fram eftirfarandi fyrirspurn frá fulltrúum Viðreisnar, Pírata, Samfylkingar og Vina Kópavogs:
Hvernig hefur Kópavogsbær innleitt loftslagsstefnu höfuðborgarsvæðisins sem allir bæjarstjórar á svæðinu undirrituðu formlega 11. ágúst 2023? Þar er stefnt að kolefnishlutleysi árið 2035 og skilgreint að ábyrgð á útfærslu stefnunnar sé á ábyrgð hvers sveitarfélags fyrir sig. Spurt er: Hvernig og hvenær samþykkti bæjarstjórn Kópavogs loftslagsstefnu fyrir sveitarfélagið, hver hefur aðgerðabinding með fjárhagsáætlun á einstökum sviðum bæjarins verið frá 2023 og hver hefur framkvæmdin verið?
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar bæjarstjóra.
20
Fyrirspurn frá öllum oddvitum minnihlutans. Hvaða innstreymi hefur verið í bæjarsjóð vegna byggingarréttargjalda og annarra lóðagjalda
Lögð fram eftirfarandi fyrirspurn frá fulltrúum Viðreisnar, Pírata, Samfylkingar og Vina Kópavogs:
Hvaða innstreymi hefur verið í bæjarsjóð Kópavogs vegna byggingarréttargjalda og annarra ólögbundinna lóðagjalda frá árinu 2023. Hvert hefur innstreymið verið vegna gatnagerðargjalda og annarra lögbundinna lóðagjalda á sama tímabili? Upplýsinga er óskað skipt eftir árum þ.m.t. vegna ársins 2026.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar áhættu- og fjárstýringarstjóra.