Til baka í fundargerðir
Fyrirspurn frá öllum oddvitum minnihlutans. Hvernig hefur Kópavogsbær innleitt loftslagsstefnu höfuðborgarsvæðisins
Málsnúmer: 26031364
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3249. fundur
Lögð fram eftirfarandi fyrirspurn frá fulltrúum Viðreisnar, Pírata, Samfylkingar og Vina Kópavogs:
Hvernig hefur Kópavogsbær innleitt loftslagsstefnu höfuðborgarsvæðisins sem allir bæjarstjórar á svæðinu undirrituðu formlega 11. ágúst 2023? Þar er stefnt að kolefnishlutleysi árið 2035 og skilgreint að ábyrgð á útfærslu stefnunnar sé á ábyrgð hvers sveitarfélags fyrir sig. Spurt er: Hvernig og hvenær samþykkti bæjarstjórn Kópavogs loftslagsstefnu fyrir sveitarfélagið, hver hefur aðgerðabinding með fjárhagsáætlun á einstökum sviðum bæjarins verið frá 2023 og hver hefur framkvæmdin verið?
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar bæjarstjóra.