Hrauntunga 77. Fyrirspurn.
Málsnúmer: 26032984
Ferill máls
01
Skipulags- og umhverfisráð - 27. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 77 við Hrauntungu dags. 18. mars 2026 um viðbyggingu, austan við aðalinngang á fyrstu hæð. Við breytinguna stækkar herbergisrými um u.þ.b. 4 m². Núverandi gluggi verður fluttur í nýjan útvegg. Frágangur verður í samræmi við upprunalegt útlit Sigvaldahúsa og húsið málað í sama lit og núverandi bygging. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. mars 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. apríl 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Jafnframt lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. apríl 2026.
Kristjana H. Kristjánsdóttir verkefnastjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið og gerði grein fyrir erindinu.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 15. apríl 2026 með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Leós Snæs Péturssonar, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæði Gunnars Sæs Ragnarssonar.
02
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 43. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 77 við Hrauntungu dags. 18. mars 2026 um viðbyggingu, austan við aðalinngang á fyrstu hæð. Við breytinguna stækkar herbergisrými um u.þ.b. 4 m². Núverandi gluggi verður fluttur í nýjan útvegg. Frágangur verður í samræmi við upprunalegt útlit Sigvaldahúsa og húsið málað í sama lit og núverandi bygging. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. mars 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.
03
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 42. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 77 við Hrauntungu dags. 18. mars 2026 um að inndreginn útveggur, austan við aðalinngang, verði færður 1,25 m til suðurs. Við breytinguna stækkar herbergisrými um u.þ.b. 4 m². Núverandi gluggi verður fluttur í nýjan útvegg og eldri veggur fjarlægður. Ný steypt plata og einangrun verða gerð í samræmi við gildandi byggingarreglugerð. Á vesturhlið stækkunar verður reistur sléttur veggur sem myndar skjól og rými við anddyri. Frágangur verður í samræmi við upprunalegt útlit Sigvaldahúsa og húsið málað í sama lit og núverandi bygging.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.