Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Viljayfirlýsing um uppbyggingu innviða á félagssvæði Spretts

Málsnúmer: 26033642

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3251. fundur

Lögð fram til samþykktar viljayfirlýsing um uppbyggingu innviða á félagssvæði Spretts.

Umræður.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita bæjarstjóra umboð til þess að undirrita fyrir hönd Kópavogsbæjar, viljayfirlýsingu Garðabæjar, Kópavogs og Hestamannafélagsins Spretts vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar félagshesthúss og skólastofu á félagssvæði Spretts.