Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3251. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Orri Vignir Hlöðversson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Hjördís Ýr Johnson stýrði fundi í farveru formanns

Dagskrá fundar

01

Framtíðin í fyrsta sæti - grunnskólatillögur

Frá menntasviði, dags. 23.03.2026, lögð fram til kynningar viðbragðsáætlun vegna grunnskólatillögu nr. 15, náms- og starfsumhverfi sem styður öryggi og vellíðan.

Lagt fram og kynnt.

Umræður.

Gestir viku af fundi kl.9.45.

02

Gjaldskrár 2026

Lagðar fram til kynningar uppfærðar gjaldskrár sem tóku gildi 1. apríl 2026. Samhliða er lögð fram tillaga bæjarstjóra að gjaldskrárhækkanir er snúa að barnafjölskyldum í Kópavogi takmarkist við 2.5% verðbólguviðmið Seðlabanka Íslands á árinu 2026.

Lagt fram og kynnt, ásamt tillögu bæjarstjóra.

Umræður.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur að gjaldskrárhækkanir er snúa að barnafjölskyldum í Kópavogi, leik- og grunnskólar og frístund, takmarkist við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands á árinu 2026.


Bókun:

"Undirritaðar taka undir að mikilvægt sé að halda álögum á barnafjölskyldur í lágmarki á tímum verðbólgu og hás vaxtastigs. Sú tillaga sem hér liggur fyrir ber fremur keim af almennu pólitísku viðbragði en heildstæðri forgangsröðun á grundvelli þarfa og áhrifa. Leikskólagjöldin sem fylgja Kópavogsmódelinu eru til mikilla muna hærri en í nokkru öðru sveitarfélagi. Undirritaðar leggja áherslu á að sá ójöfnuður og skortur á meðalhófi sem fylgir gjaldskrá Kópavogsmódelsins verði tekinn til endurskoðunar."

Helga Jónsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Bergljót Kristinsdóttir


Bókun:

"Auðvitað er þetta pólitískt viðbragð. Sú tillaga sem hér er til umfjöllunar er liður í að bregðast við núverandi efnahagsaðstæðum. Verðbólguþróunin er mikið áhyggjuefni og ljóst að breið samstaða þarf að nást um að halda aftur af kostnaðarhækkunum þar sem það er unnt. Sveitarfélög gegna þar mikilvægu hlutverki, enda hafa ákvarðanir þeirra bein áhrif á útgjöld heimila.

Með því að takmarka gjaldskrárhækkanir sem snúa að barnafjölskyldum við 2,5% verðbólguviðmið erum við að leggja okkar af mörkum til að draga úr þrýstingi á verðlag og styðja við stöðugleika á vinnumarkaði."

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Björg Baldursdóttir

Andri Steinn Hilmarsson

03

Ósk bæjarfulltrúa minnihluta um greinargerð um úthlutun lóðarinnar á Nýbýlavegi 1 til Olíuverslunar Íslands og um ráðstöfun lóðarleiguréttinda

04

Kæra Stjörnugarða ehf. vegna útboðs Vatnsendavegur - Gatnagerð, stígar og undirgöng

Frá lögfræðideild, dags. 19.03.2026, lögð fram niðurstaða kærunefndar útboðsmála vegna kæru Stjörnugarða ehf.

Lagt fram.

Umræður.

05

Úttekt Persónuverndar á notkun sveitarfélaga á skýjaþjónustu í grunnskólastarfi

Frá yfirlögfræðingi og persónuvernarfulltrúa, dags. 23.03.2026, lagt fram til upplýsinga erindi varðandi úttekt Persónuvernar á notkun sveitarfélaga á skýjaþjónustu í grunnskólastarfi.

Lagt fram.

Umræður.

06

Viljayfirlýsing um uppbyggingu innviða á félagssvæði Spretts

Lögð fram til samþykktar viljayfirlýsing um uppbyggingu innviða á félagssvæði Spretts.

Umræður.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita bæjarstjóra umboð til þess að undirrita fyrir hönd Kópavogsbæjar, viljayfirlýsingu Garðabæjar, Kópavogs og Hestamannafélagsins Spretts vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar félagshesthúss og skólastofu á félagssvæði Spretts.

07

Umsókn um stofnframlög vegna íbúðakaupa í Kópavogi 2026

Frá deildarstjóra greiningardeildar, lagður fram rökstuðningur varðandi afgreiðslu á erindi Brynju leigufélags ses og erindis Bjargs íbúðafélags ses. frá 3246. fundi bæjarráðs.

Lagt fram.

08

Ályktun tekin á fulltrúafundi Skógræktarfélags Íslands

Frá Skógræktarfélagi Íslands, lögð fram ályktun fulltrúafundar frá 28. mars.

Lagt fram.

09

Aðalfundur Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins 2026

Lagt fram til kynningar fundarboð aðalfundar Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins sem haldinn verður 20. apríl 2026.

Lagt fram.

10

Aðalfundur Sorpu bs. 2026

Lagt fram til kynningar fundarboð aðalfundar Sorpu bs. sem verður 15. apríl 2026.

Lagt fram.

11

Til umsagnar 565.mál - verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur)

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir, lagt fram til umsagnar 565.mál - verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur).

Lagt fram.

12

Til umsagnar 582. mál - Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits (einföldun eftirlits)

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, lagt fram til umsagnar 582. mál - Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits).

Lagt fram.

13

Til umsagnar 568. mál - Stofnun atvinnuveganna

Frá atvinnuveganefnd Alþingis, lagt fram til umsagnar 568. mál - Stofnun atvinnuveganna.

Lagt fram.

14

Stefna um opinbera þjónustu

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, lögð fram stefna um opinbera þjónustu sem unnin var af fjármála- og efnahagsráðuneytinu í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga. Næsta skref er vinna við aðgerðaráætlun sem á fylgja eftir stefnunni og eru sveitarfélög hvött til að senda inn ábendingar til Sambandsins um stefnuna og mögulegar aðgerðir.

Lagt fram.

15

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 439. fundur frá 13.03.2026

Fundargerð í 16 liðum

Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

16

Leikskólanefnd - 178. fundur frá 19.03.2026

Fundargerð í níu liðum.

Lagt fram.

17

Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 11. fundur frá 26.03.2026

Fundargerð í fjórum liðum.

Lagt fram.

18

Menntaráð - 160. fundur frá 07.04.2026

Fundargerð í fimm liðum.

Lagt fram.

19

Menningar- og mannlífsnefnd - 13. fundur frá 01.04.2026

Fundargerð í þremur liðum.

Lagt fram.

20

Fundargerð 42. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 24.02.2026

Fundargerð 42. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 24.02.2026.

Lagt fram.

21

Fundargerð 43. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 30.03.2026

Fundargerð 43. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 30.03.2026.

Lagt fram.

22

Fundargerð 995. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 10.03.2026

Fundargerð 995. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 10.03.2026.

Lagt fram.

23

Fundargerð 144. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar frá 20.03.2026

Fundargerð 144. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar frá 20.03.2026.

Lagt fram.

24

Fundargerð 625. fundar stjórnar SSH frá 16.03.2026

Fundargerð 625. fundar stjórnar SSH frá 16.03.2026.

Lagt fram.

25

Fundargerð 996. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 20.03.2026

Fundargerð 996. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 20.03.2026.

Lagt fram.

26

Fundargerð 525. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 11.02.2026

Fundargerð 525. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 11.02.2026.

Lagt fram.

27

Fundargerð 435. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 18.03.2026

Fundargerð 435. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 18.03.2026.

Lagt fram.

28

Fundargerð 279. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 13.03.2026

Fundargerð 279. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 13.03.2026.

Lagt fram.

29

Fundargerð 422. fundar stjórnar Strætó frá 10.03.2026

Fundargerð 422. fundar stjórnar Strætó frá 10.03.2026.

Lagt fram.

30

Fundargerð 423. fundar stjórnar Strætó frá 20.03.2026

Fundargerð 423. fundar stjórnar Strætó frá 20.03.2026.

Lagt fram.

31

Tillaga varabæjarfulltrúa Indriða Inga Stefánssonar varðandi tilraunaverkefni með matvagnahöll á Hálsatorgi

Tillaga varabæjarfulltrúa Indriða Inga Stefánssonar varðandi tilraunaverkefni með matvagnahöll á Hálsatorgi.

Bæjarráð vísar tillögunni til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.

32

Beiðni varabæjarfulltrúa Indriða I. Stefánssonar um að fá mál á dagskrá bæjarráðs

Frá varabæjarfulltrúa Indriða I. Stefánssyni, lögð fram beiðni um að fá mál á dagskrá bæjarráðsfundar.

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar umbóta- og þróunarstjóra.