Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Nýbýlavegur 32. Byggingarleyfisumsókn.

Málsnúmer: 2603816

Ferill máls

01

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 46. fundur

Lagt fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Einars Ólafssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 32 við Nýbýlaveg. Sótt er um að breyta fjórum íbúðum á 3. hæð í gistiheimili í flokki II. Uppdrættir dags. 18. febrúar 2026. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 21. apríl 2026 til 24. maí 2026, engar athugasemdir bárust.

Samþykkt með vísan 4.tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

02

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 43. fundur

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 27. febrúar 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Einars Ólafssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 32 við Nýbýlaveg er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að breyta fjórum íbúðum á 3. hæð í gistiheimili í flokki II. Uppdrættir dags. 18. febrúar 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 23. febrúar 2026 var umsagnarbeiðninni vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 13. apríl 2026.

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum við Nýbýlaveg nr. 30, Dalbrekku nr. 27, 54, 56, 58 og Laufbrekku nr. 2, 4 og 6. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram skv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.

03

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 41. fundur

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 27. febrúar 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Einars Ólafssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 32 við Nýbýlaveg er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að breyta fjórum íbúðum á 3. hæð í gistiheimili í flokki II. Uppdrættir dags. 18. febrúar 2026.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.