Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 41. fundur
á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
- Karlotta Helgadóttir - starfsmaður umhverfissviðs
- Harri Ormarsson - lögfræðingur
Ritari
- Karlotta Helgadóttir
Eftirtaldir verkefnastjórar kynntu mál á fundinum: Freyr Snorrason og Ester Anna Ármannsdóttir.
Dagskrá fundar
Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Gests Ólafssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 20 við Kópavogsbraut. Sótt er um að byggja glerskála/gróðurhús við vestuhlið núverandi íbúðarhúss og tvær viðbyggingar við suður- og norðurhlið bifreiðageymslu, samtals 230 m² að flatarmáli. Nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar úr 0,19 í 0,33 við breytinguna.
Uppdrættir dags. 15. apríl 2025, uppfærðir 25. september 2025. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 13. janúar til 26. febrúar 2026. Athugasemdir bárust.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Lögð fram að nýju umsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 23 við Fróðaþing dags. 29. janúar 2026 um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst bygging bílageymslu 5 x 12,85 að grunnfleti við austurhlið íbúðarhússins á lóðinni að lóðarmörkum ásamt svölum á 2. hæð. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 23. febrúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.
Lögð fram að nýju umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa dags. 13. febrúar 2026 vegna byggingarleyfisumsóknar lóðarhafa lóðarinnar nr. 5 við Skjólbraut. Sótt er um kvist á norður- og suðurhlið hússins og hækkun á þaki. Uppdrættir dags. 24. janúar 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 23. febrúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Einnig er lögð fram umsögn dags. 9. mars 2026.
Ekki eru skipulagslegar athugasemdir við erindið. Grenndarkynna þarf byggingarleyfisumsóknina.
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 93 við Kársnesbraut um að breyta skráningu eignarhluta 0102 hússins úr verslunarrými í íbúð.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Lögð fram að nýju fyrirspurn Magnúsar Inga Aðalmundsson arkitekts dags. 18. febrúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 6 við Hæðarhvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst aukið byggingarmagn um 17,5m². Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,42 í 0,45. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 9. mars 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 9. mars 2026.
Lögð fram fyrirspurn Kristins Ragnarssonar arkitekts dags. 26. janúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 5-7 við Vindakór um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að heimilt verði að reisa yfirbyggða svalarlokun fyrir hluta þaksvala á 4. hæð. Á embættisafgreiðslufundi 28. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 9. mars 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 9. mars 2026.
Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 27. febrúar 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Ríkharðs Oddssonar byggingafræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 6 við Bröttutungu er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um stakstæða vinnustofu/tómstundahús, 40m² að flatarmáli, á suðurausturhluta lóðarinnar.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 27. febrúar 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Einars Ólafssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 32 við Nýbýlaveg er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að breyta fjórum íbúðum á 3. hæð í gistiheimili í flokki II. Uppdrættir dags. 18. febrúar 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Lögð fram umsókn Ívars Arnars Guðmundssonar arkitekts f.h. lóðarhafa Kríuness um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggingarreitir fyrir nýbyggingar, íbúðarhús og áhaldageymslu á vesturhluta lóðarinnar eru sameinaðir í einn byggingarreit fyrir íbúðarhús á einni hæð ásamt kjallara. Byggingarmagn helst óbreytt 140 m².
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.