Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vatnsendablettur - Kríunes. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 2603944

Ferill máls

01

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 42. fundur

Lögð fram að nýju umsókn Ívars Arnars Guðmundssonar arkitekts dags. 5. mars 2026 f.h. lóðarhafa Kríuness um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggingarreitir fyrir nýbyggingar, íbúðarhús og áhaldageymslu á vesturhluta lóðarinnar eru sameinaðir í einn byggingarreit fyrir íbúðarhús á einni hæð ásamt kjallara. Byggingarmagn helst óbreytt 140 m². Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 9. mars 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 25. mars 2026.

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðarhafa lóðarinnar nr. 1B, 510, 714 og 715. við Vatnsendablett. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 27. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.

02

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 41. fundur

Lögð fram umsókn Ívars Arnars Guðmundssonar arkitekts f.h. lóðarhafa Kríuness um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggingarreitir fyrir nýbyggingar, íbúðarhús og áhaldageymslu á vesturhluta lóðarinnar eru sameinaðir í einn byggingarreit fyrir íbúðarhús á einni hæð ásamt kjallara. Byggingarmagn helst óbreytt 140 m².

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.