Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Stöðvarhvarf 5-7 og 9-11. Fyrirspurn.

Málsnúmer: 26041117

Ferill máls

01

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 45. fundur

Lögð fram að nýju fyrirspurn Antons Svans Guðmundssonar arkitekts dags. 9. apríl 2026 vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðunum nr. 5-7, 9-11 við Stöðvarhvarf. Í fyrirspurninni er m.a. óskað eftir heimild til að hækka hámarksstærð íbúða í 225 m², með tilheyrandi áhrifum á nýtingarhlutfall lóðanna, auk undanþága frá gildandi deiliskipulagsskilmálum varðandi útfærslu svala og þakkanta. Þá er jafnframt óskað eftir heimild til léttrar bílskúrsbyggingar á lóð og breytingu á hæðarsetningu lóðanna Stöðvarhvarfs 5 og 7. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. apríl 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 11. maí 2026.

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2026.

02

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 43. fundur

Lögð fram fyrirspurn Antons Svans Guðmundssonar arkitekts dags. 9. apríl 2026 vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðunum nr. 5-7, 9-11 við Stöðvarhvarf. Í fyrirspurninni er m.a. óskað eftir heimild til að hækka hámarksstærð íbúða í 225 m², með tilheyrandi áhrifum á nýtingarhlutfall lóðanna, auk undanþága frá gildandi deiliskipulagsskilmálum varðandi útfærslu svala og þakkanta. Þá er jafnframt óskað eftir heimild til léttrar bílskúrsbyggingar á lóð og breytingu á hæðarsetningu lóðanna Stöðvarhvarfs 5 og 7.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.