Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 56. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
  • Andrea Kristinsdóttir - verkefnastjóri
  • Karlotta Helgadóttir - fulltrúi skipulagsdeildar
  • Harri Ormarsson - lögfræðingur

Ritari

  • Karlotta Helgadóttir

Dagskrá fundar

Almenn erindi

01

Stöðvarhvarf 5-7 og 9-11. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Jóhanns Einars Jónssonar arkitekts dags. 24. september 2026 vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðunum nr. 5-7, 9-11 við Stöðvarhvarf. Í fyrirspurninni er óskað eftir heimild til að hækka hámarksstærð íbúða í 225 m², með tilheyrandi áhrifum á nýtingarhlutfall lóðanna.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

02

Vatnsendablettur 723. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju umsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts dags. 8. október 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 723 við Vatnsendablett um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að veitt verði heimild til að byggja yfirbyggðar svalir á suðurhluta núverandi byggingar sem ná 2,5 m út fyrir gildandi byggingarreit. Uppdrættir dags. 8. október 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. október 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 17, 18, 724 og 725 við Vatnsendablett þegar fullnægjandi gögn liggja fyrir. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 27. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.

Almenn erindi

03

Kópavogsbraut 51, 53-55 og 57. Fyrirspurn.

Lögð fram að nýju fyrirspurn Bryndísar Eyfjörð Alfreðsdóttur arkitekts dags. 1. október 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 57 við Kópavogsbraut um mögulega uppbyggingu lóðanna nr. 51, 53-55 og 57 við Kópavogsbraut. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. október 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. október 2026.

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 27. október 2026.

Almenn erindi

04

Digranesheiði 45. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 25. september 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Helga Hjálmarssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 45 við Digranesheiði er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um stækka bílskýli, fella út þakglugga og breyta stigum á raðhúsum. Uppdrættir dags. 25. júní 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. október 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. október 2026.

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 27. október 2026.

Almenn erindi

05

Fjallalind 66. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts dags. 13. október 2026 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 66 við Fjallalind um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst 27 m² viðbygging vestan megin við núverandi hús. Uppdrættir dags. 12. október 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. október 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Frestað.

Almenn erindi

06

Brekkuhvarf 5. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Kristrúnar Lárusdóttur Hunter arkitekts dags. 21. ágúst 2026 um f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 5 við Brekkuhvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að lóðinni verði skipt upp í sex lóðir fyrir þrjú parhús á tveimur hæðum í stað einbýlishúss. Nýtingarhlutfall lóða verður frá 0.2 til 0,33. Tvö bílastæði verða á hverri lóð. Uppbyggingu á lóð verður áfangaskipt, núverandi hús mun víkja við uppbyggingu seinni áfanga. Uppdrættir dags. 20. október 2026.

Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.

Almenn erindi

07

Hagasmári 3. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Ellerts Hreinssonar arkitekts dags. 15. október 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 3 við Hagasmára um aukið byggingarmagn lóðarinnar með tveimur tveggja hæða viðbyggingum við núverandi inngang til vesturs á norðurturni. Byggingarmagn lóðarinnar myndi hækka um 1000 m², úr 18.195,3 m² í 19.195,3 m². Nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar úr 1,52 1,60.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

08

Urðarhvarf 10. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Brynjars Darra Baldurssonar arkitekts dags. 18. október 2026 um að lækka fyrirhugað mannvirki um 1m.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

09

Álftröð 1-7, Skólatröð 2-8 og Hávegur 2-4. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 7 við Álftröð dags. 19. október 2026 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 1-7 við Álftröð, 2-8 við Skólatröð og 2-4 við Háveg. Í breytingunni felst að byggt verði 13 m² gróðurhús á hluta þaksvala íbúðar 504 við Álftröð 7.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

10

Álftröð 1-7. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju fyrirspurn Snorra Þórissonar dags. 19. október 2026 f.h. húsfélagsins nr. 1 við Traðarreit um breytta akstursstefnu götunar. Spurst er fyrir um breytingu á deiliskipulagi þannig að í götu Álftraðar verði gatan á 25 metra kafla frá Digranesvegi og að innkeyrslu í bílakjallara tvístefnugata.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

11

Fjallalind 20. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 20 við Fjallalind um stækkun lóðarinnar að göngustíg til vesturs.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.