Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Holtagerði 4. Byggingarleyfisumsókn.

Málsnúmer: 26043335

Ferill máls

01

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 51. fundur

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Vigfúsar Halldórssonar byggingarfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 4 við Holtagerði. Sótt er um að endurbyggja og stækka núverandi sólstofu úr 17 m² í 25,5 m² ofan á bílskúr ásamt því að setja vegg við hlið útitrappa til að styðja undir nýjar svalir á suð-austur hluta efri hæðar. Uppdrættir dags. 10. júní 2026. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 16. júní til 17. júlí 2026, athugasemd barst.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

02

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 46. fundur

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 24. apríl 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Vigfúsar Halldórssonar byggingarfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 4 við Holtagerði er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að endurbyggja og stækka núverandi sólstofu úr 17 m² í 25,5 m² ofan á bílskúr ásamt því að setja vegg við hlið útitrappa til að styðja undir nýjar svalir á suð-austur hluta efri hæðar. Uppdrættir dags. 10. júní 2025. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 11. maí 2026 var erindinu vísað til umsagnar. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. maí 2026.

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Holtagerði 1, 2, 3, 5, 6 og 8 við Kársnesbraut 53, 55 og 57. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.

03

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 45. fundur

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 24. apríl 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Vigfúsar Halldórssonar byggingarfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 4 við Holtagerði er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um endurbyggja og stækka núverandi sólstofu úr 17 m² í 26 m² ofan á bílskúr ásamt því að setja vegg við hlið útitrappa sem munu styðja undir nýjar svalir efri hæðar. Uppdrættir dags. 10. júní 2025.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.