Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 53. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
  • Andrea Kristinsdóttir - verkefnastjóri
  • Karlotta Helgadóttir - starfsmaður umhverfissviðs
  • Harri Ormarsson - lögfræðingur

Ritari

  • Karlotta Helgadóttir

Eftirtaldir verkefnastjórar kynntu mál á fundinum: Kristjana H. Kristjánsdóttir og Elín Mjöll Lárusdóttir.

Dagskrá fundar

Almenn erindi

01

Sunnubraut 6. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 17. júlí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Sigurðar Hallgrímssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 6 við Sunnubraut er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að breyta 26 m² bílskúr í vinnuherbergi. Uppdrættir dags. 1. júlí 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 10. ágúst 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. september 2026.

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. september 2026.

Almenn erindi

02

Kársnesbraut 65. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 31. júlí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Ólafar Flygenring arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 65 við Kársnesbraut er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að skipta út glugga á vesturgafli rishæðar fyrir hurð og byggja 3,5 m² timbursvalir við hana. Jafnframt er sótt um að bæta við þakglugga á norðurhlið rishæðar. Uppdrættir dags. 26. júní 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 10. ágúst 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. september 2026.

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Kársnesbraut 67. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.

Almenn erindi

03

Álfatún 14. Byggingarleyfisumsókn.

Lögð fram að nýju byggingarleyfisumsókn Helga S. Ólafssonar byggingarverkfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 14 við Álfatún. Sótt er um lengingu þaks yfir svalir og þakskyggni yfir anddyri. Uppdrættir dags. 20. júlí 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. ágúst 2026 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsóknina. Kynningartími hófst 1. september 2026. Einnig er lagt fram samþykki hagsmunaaðila í grenndarkynningu, móttekið þann 14. september 2026.

Samþykkt með vísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og með vísan til heimilda í 7. tl. 3. gr. samþykktar um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

Almenn erindi

04

Holtagerði 4. Byggingarleyfisumsókn.

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Vigfúsar Halldórssonar byggingarfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 4 við Holtagerði. Sótt er um að endurbyggja og stækka núverandi sólstofu úr 17 m² í 25,5 m² ofan á bílskúr ásamt því að setja vegg við hlið útitrappa til að styðja undir nýjar svalir á suð-austur hluta efri hæðar. Uppdrættir dags. 10. júní 2026. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 16. júní til 17. júlí 2026, athugasemd barst. Á embættiafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 10. ágúst 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. september 2026.

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. september 2026, samþykkt.

Almenn erindi

05

Þinghólsbraut 55. Fyrirspurn.

Lögð fram að nýju fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 55 við Þinghólsbraut dags. 11. ágúst 2026 um fjölgun fasteignanúmera á lóðinni. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. ágúst 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. september 2026.

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 14. september 2026.

Almenn erindi

06

Geymslustaður ökutækja við Engihjalla 11. Umsagnarbeiðni.

Lögð fram umsagnarbeiðni Samgöngustofu dags. 17. júlí 2026 um geymslustað ökutækja í útleigu vegna umsóknar um starfsleyfi til reksturs ökutækjaleigu við Engihjalla 11. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. september 2026.

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 7. september 2026.

Almenn erindi

07

Breyting á aðalskipulagi Reykjavíkur. Borgarspítalareitur. Geðsvið LSH. Skipulagslýsing.

Lögð fram umsagnarbeiðni frá Reykjavíkurborg dags. 25. ágúst 2026 vegna skipulagslýsingar fyrir breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040.

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir á þessu stigi.

Almenn erindi

08

Hamraborg 11. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Jóns Davíðs Ásgeirssonar dags. 11. september 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 11 við Hamraborg hvort heimild fáist til að skrá eignarhluta 02 01 í gistiheimili.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

09

Gulaþing 22. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 11. september 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 22 við Gulaþing er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um svalalokun á eignarhluta 0101. Uppdrættir dags. 8. júlí 2026.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

10

Borgarholtsbraut 34. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 11. september 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Pálmars Halldórssonar bygg­inga­fræð­ing­s f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 34 við Borgarholtsbraut er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að bæta við tveimur kvistum á þak, að norðan og sunnan. Uppdrættir dags. 15. ágúst 2022.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.