Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bókun 627. fundar stjórnar SSH. Álag í skólastarfi - ástæður og úrbætur

Málsnúmer: 26054014

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3257. fundur

Frá SSH, lögð fram varðantil kynningar bókun varðandi álag í skólastarfi.

Lagt fram.

Umræður.

Bókun:

"Miðflokkurinn telur mikilvægt að niðurstöður skýrslunnar séu teknar alvarlega og að ráðist verði í raunhæfar aðgerðir án tafar. Skýrslan dregur fram að starfsfólk skóla glímir við mikið álag, meðal annars vegna fjölgunar alvarlegra hegðunar- og ofbeldismála og skorts á viðeigandi úrræðum.

Stefna um skóla án aðgreiningar hefur verið reynd um árabil en hefur ekki skilað þeim árangri sem að var stefnt. Hún hefur í of mörgum tilfellum hvorki mætt þörfum þeirra barna sem þurfa sérhæfðan stuðning né tryggt öðrum börnum öruggt og gott námsumhverfi.

Tími orða er löngu liðinn og nú þarf aðgerðir. Horfumst í augu við vandann og mætum börnum þar sem þau eru stödd. Uppbygging sérdeilda, sérúrræða og sérskóla verður að vera í forgangi, samhliða skýrari verkferlum vegna alvarlegra mála. Markmiðið á að vera einfalt: Að hvert barn fái kennslu og stuðning við hæfi og að starfsfólk skóla geti sinnt störfum sínum við öruggar og faglegar aðstæður."

Einar Jóhannes Guðnason


Bókun:

"Meirihlutinn tekur undir mikilvægi þess að unnið sé með niðurstöður skýrslunnar. Í því samhengi er rétt að árétta að Kópavogsbær kynnti á síðasta kjörtímabili 16 umbótaaðgerðir í grunnskólunum sem eru til þess fallnar að bæta starfsumhverfi kennara og námsumhverfi barna. Hluti aðgerðanna hafa þegar verið innleiddar og aðrar eru í farvatninu."

Andri Steinn Hilmarsson

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Guðmundur Jóhann Jónsson


Bókun:

"Samfylking tekur undir mikilvægi þess að bregðast við niðurstöðum skýrslunnar. Sérstaklega hafa grunnskólar Kópavogs verið til umfjöllunar í þessum málaflokki, þar sem starfsfólk hefur lýst álagi og slæmum starfsaðstæðum vegna úrræðaleysis. Slíkt álag kemur ekki einungis niður á starfsfólki heldur einnig á þeim börnum sem fá ekki þá aðstoð sem þau þurfa og á öðrum nemendum sem fá ekki þann skólafrið sem þeir eiga skilið.

Samfylking telur hins vegar að skóli án aðgreiningar sé verðugt markmið og telur það ekki sérstakt keppikefli að skapa tvöfalt skólakerfi. Það hefur gildi í sjálfu sér að börn upplifi fjölbreytt skólaumhverfi. Þótt Samfylking styðji uppbyggingu sérúrræða í þágu barna með mikla stuðningsþörf, sem og tímabundin úrræði fyrir börn sem sýna áhættuhegðun eða hegðunarvanda, á það alltaf að vera leiðarljós að sem flestir nemendur fái að njóta sín í hinu almenna skólakerfi. Til þess þarf að auka stuðning innan veggja almennra grunnskóla Kópavogsbæjar. Bænum er ekki stætt á að fría sig ábyrgð á nemendum með stuðningsþörf með því að færa þá úr skólakerfinu."

Jónas Már Torfason