Bæjarráð - 3257. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Andri Steinn Hilmarsson - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaðurBoðaði forföllHjördís Ýr Johnson - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Orri Vignir Hlöðversson - varaformaður
- Jónas Már Torfason - aðalfulltrúi
- Einar Jóhannes Guðnason - aðalfulltrúi
- María Ellen Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá umhverfissviði, dags. 09.06.2026, lagt fram erindi varðandi beiðni um undanþágu frá kvöð vegna sölu á fasteigninni Vogatungu 27a.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita umbeðna heimild um undanþágu frá aldurskvöð vegna kaupa á fasteigninni að Vogatungu 27a.
Frá umhverfissviði, dags. 08.06.2026, lögð fram beiðni um heimild til framsals á lóðunum Stövarhvarf 10 og Skýjahvarf 11-19.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Einars Jóhannesar Guðnasonar að heimila framsal á lóðunum Stöðvarhvarfi 10 og Skýjahvarfi 11-19 til verkefnafélagsins, Skýjahvarfs ehf.
Bókun:
"Miðflokkurinn telur það varhugavert að bæjarráð heimili framsal byggingarréttar aðeins ári eftir útboð án þess að sérstakar aðstæður liggi fyrir.
Úthlutunarskilmálar Vatnsendahvarfs voru skýrir og strangir með það að markmiði að tryggja jafnræði og koma í veg fyrir tilfærslur af þessu tagi. Þar segir að byggingarrétti sé úthlutað á nafn umsækjanda og að framsal eða veðsetning sé óheimil fyrir byggingarstig B2 nema með samþykki bæjarráðs.
Við úthlutunina voru jafnframt gerðar ítarlegar fjárhagslegar kröfur. Lögaðilar þurftu meðal annars að leggja fram lánsloforð eða fyrirvaralausa yfirlýsingu fjármálafyrirtækis um fjármögnun, staðfestingu á skilum opinberra gjalda og lífeyrissjóðsgjalda, búsforræðisvottorð og ársreikning með jákvæðri eiginfjárstöðu, áritaðan af löggiltum endurskoðanda án fyrirvara. Ekki liggur fyrir hvort félag nýs lóðarhafa uppfylli þessi skilyrði né eru varnir þess efnis að félag nýs lóðarhafa verði selt nýjum eigendum sem ekki uppfylla skilyrðin.
Það eru ekki fullnægjanleg rök að svona hafi þetta alltaf verið og að fylgja þurfi vondu fordæmi að eigin sögn. Telji bæjarráð þetta nauðsynlegan möguleika þá þurfa úthlutunarreglur að gera ráð fyrir honum.
Á þeim forsendum getur Miðflokkurinn ekki samþykkt framsalið."
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Í þessu tilviki er ekki um eiginlega tilfærslu byggingarréttar til þriðja aðila að ræða. Á fundi bæjarstjórnar 3. júlí 2025 var samþykkt að úthluta lóðunum Stöðvarhvarfi 10 og Skýjahvarfi 11-19 til Tildru byggingarfélags ehf. Óskað er eftir að færa lóðirnar í félagið Skýjahvarf ehf., kt. 420323-0690, sem er í 100% eigu núverandi lóðarhafa. Endanlegt eignarhald er því óbreytt og sá aðili sem stóðst fjárhagslegar kröfur úthlutunarinnar stendur áfram að baki verkefninu. Jafnræði umsækjenda er á engan hátt raskað, enda fær enginn nýr aðili byggingarrétt sem ekki tók þátt í úthlutunarferlinu.
Um leið er áréttað að ekki er vikið frá úthlutunarskilmálum Vatnsendahvarfs hérna. Þvert á móti er verið að beita þeim eins og þeir eru orðaðir. Í skilmálunum segir berum orðum að framsal sé óheimilt fyrir byggingarstig B2 nema með samþykki bæjarráðs. Skilmálarnir gera þannig sjálfir ráð fyrir þeim möguleika að bæjarráð heimili framsal að undangengnu mati á hverju tilviki fyrir sig.
Með hliðsjón af framangreindu felst meirihlutinn á að heimila framsalið og telur það samrýmast bæði orðalagi og markmiðum úthlutunarskilmála Vatnsendahvarfs."
Andri Steinn Hilmarsson
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Guðmundur Jóhann Jónsson
Bókun:
"Að heimila undanþágu með samþykki bæjarráðs er varnagli en hér er verið að framfylgja fordæmi sem virðist orðið að reglu fremur en undantekningu. Reglurnar koma ekki í veg fyrir að félagið sem tekur við lóðinni geti fengið nýja eigendur."
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Það eru oft og tíðum eðlilegar ástæður fyrir því að lóðir séu færðar í sérstakt eignarhaldsfélag, til þess að skapa bókhaldslega aðgreiningu og takmarka áhættu þróunaraðila, og er það alvanalegt í byggingargeiranum. Líkt og undirritaður fór yfir í umræðum í bæjarráði er hins vegar nauðsynlegt að girða fyrir að komist sé hjá kvöðum um samþykki bæjarráðs fyrir framsali lóða. Sömu kvaðir og gilda um framsal lóðar munu ekki gilda um framsal hlutafjár þess eignarhaldsfélags sem fær lóðina framselda. Mikilvægt er að bærinn tryggi að slíkar kvaðir haldi gildi sínu þótt þær séu færðar í annað félag á rekstrarlegum forsendum, svo sem með því að tryggja að samþykki bæjarráðs sé einnig áskilið vegna eigendaskipta á því félagi sem tekur við lóð frá upphaflegum lóðarhafa.
Til að tryggja fyrirsjáanleika telur undirritaður best að slíkum vörnum sé komið á með almennum hætti og greiðir því atkvæði með heimild til framsals í þessu máli, líkt og hefur verið gert hingað til í tilviki sambærilegra beiðna. Undirritaður mun hins vegar leggja áherslu á að brugðist sé við framangreindri glufu með almennum hætti og að virkni framsalskvaða sé tryggð í framtíðarmálum. Undirritaður bindur vonir við stuðning annarra fulltrúa bæjarráðs í þeirri viðleitni."
Jónas Már Torfason
Bókun:
"Undirrituð tekur undir bókun fulltrúa Samfylkingarinnar."
María Ellen Steingrímsdóttir
Þann 30. apríl sl. var í bæjarráði samþykktur leigusmningur við Alzheimer Samtökin vegna leigu á húsnæðinu að Kópavogsgerði 6, Geðræktarhúsi. Um er að ræða afnot af 1. og 2. hæð hússins. Í húsinu er áætlað að reka heilsutengda starfsemi fyrir fólk sem greinst hefur með heilabilun. Til upplýsinga eru nú uppi áform um að auglýsa eftir áhugasömum aðila til að leigja 3. hæð Geðræktarhússins undir starfsemi sem tengist geðrækt og gæti farið vel með þeirri starfsemi sem fyrir er í húsinu.
Kynning og umræður.
Frá EBÍ, dags.26.05.2026, lagt fram erindi varðandi kosningu í fulltrúaráð EBÍ.
Lagt fram.
05
Til umsagnar mál nr. 93-2026 - Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum (Gjaldaákvæði hafnalaga)
Frá innviðaráðuneyti, lagt fram kynningar og samráðs mál nr. 93/2026 - "Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum (Gjaldaákvæði hafnalaga).
Vísað til sviðsstjóra umhverfissviðs.
Frá SSH, lögð fram varðantil kynningar bókun varðandi álag í skólastarfi.
Lagt fram.
Umræður.
Bókun:
"Miðflokkurinn telur mikilvægt að niðurstöður skýrslunnar séu teknar alvarlega og að ráðist verði í raunhæfar aðgerðir án tafar. Skýrslan dregur fram að starfsfólk skóla glímir við mikið álag, meðal annars vegna fjölgunar alvarlegra hegðunar- og ofbeldismála og skorts á viðeigandi úrræðum.
Stefna um skóla án aðgreiningar hefur verið reynd um árabil en hefur ekki skilað þeim árangri sem að var stefnt. Hún hefur í of mörgum tilfellum hvorki mætt þörfum þeirra barna sem þurfa sérhæfðan stuðning né tryggt öðrum börnum öruggt og gott námsumhverfi.
Tími orða er löngu liðinn og nú þarf aðgerðir. Horfumst í augu við vandann og mætum börnum þar sem þau eru stödd. Uppbygging sérdeilda, sérúrræða og sérskóla verður að vera í forgangi, samhliða skýrari verkferlum vegna alvarlegra mála. Markmiðið á að vera einfalt: Að hvert barn fái kennslu og stuðning við hæfi og að starfsfólk skóla geti sinnt störfum sínum við öruggar og faglegar aðstæður."
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Meirihlutinn tekur undir mikilvægi þess að unnið sé með niðurstöður skýrslunnar. Í því samhengi er rétt að árétta að Kópavogsbær kynnti á síðasta kjörtímabili 16 umbótaaðgerðir í grunnskólunum sem eru til þess fallnar að bæta starfsumhverfi kennara og námsumhverfi barna. Hluti aðgerðanna hafa þegar verið innleiddar og aðrar eru í farvatninu."
Andri Steinn Hilmarsson
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Guðmundur Jóhann Jónsson
Bókun:
"Samfylking tekur undir mikilvægi þess að bregðast við niðurstöðum skýrslunnar. Sérstaklega hafa grunnskólar Kópavogs verið til umfjöllunar í þessum málaflokki, þar sem starfsfólk hefur lýst álagi og slæmum starfsaðstæðum vegna úrræðaleysis. Slíkt álag kemur ekki einungis niður á starfsfólki heldur einnig á þeim börnum sem fá ekki þá aðstoð sem þau þurfa og á öðrum nemendum sem fá ekki þann skólafrið sem þeir eiga skilið.
Samfylking telur hins vegar að skóli án aðgreiningar sé verðugt markmið og telur það ekki sérstakt keppikefli að skapa tvöfalt skólakerfi. Það hefur gildi í sjálfu sér að börn upplifi fjölbreytt skólaumhverfi. Þótt Samfylking styðji uppbyggingu sérúrræða í þágu barna með mikla stuðningsþörf, sem og tímabundin úrræði fyrir börn sem sýna áhættuhegðun eða hegðunarvanda, á það alltaf að vera leiðarljós að sem flestir nemendur fái að njóta sín í hinu almenna skólakerfi. Til þess þarf að auka stuðning innan veggja almennra grunnskóla Kópavogsbæjar. Bænum er ekki stætt á að fría sig ábyrgð á nemendum með stuðningsþörf með því að færa þá úr skólakerfinu."
Jónas Már Torfason
Fundargerð í 15 liðum.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Fundargerð 45. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 02.06.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 999. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28.05.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 627. fundar stjórnar SSH frá 04.05.2026.
Lagt fram.
Umræður.
Bókun:
"Miðflokkurinn telur mikilvægt að Kópavogsbær taki skýra afstöðu til þeirra áherslna sem birtast í verkefninu „Álagsdreifing umferðar á höfuðborgarsvæðinu.“
Í skýrslu EFLU vegna verkefnisins er stuðningi lýst við leiðir á borð við aukna gjaldtöku, stýringu bílastæða og fækkun bílastæða í því skyni að draga úr notkun einkabílsins. Miðflokkurinn telur mikilvægt að Kópavogsbær hafni þeirri nálgun.
Í aðdraganda kosninga var mikið lagt upp úr því að Kópavogur ætti ekki að feta sömu braut og Reykjavíkurborg m.a. í samgöngumálum. Nú reynir á þau orð.
Miðflokkurinn hvetur fulltrúa Kópavogsbæjar til að bóka skýra andstöðu við aðgerðir sem fela í sér aukna gjaldtöku eða frekari þrengingar að fjölskyldubílnum.
Rétt er að skoða aðgerðir sem bæta umferðarflæði og nýta núverandi innviði betur, m.a. með endurskoðun á innanbæjarleiðum strætó. Lausnin felst hins vegar ekki í því að gera daglegt líf fjölskyldna dýrara og erfiðara."
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Í málefnasamningi meirihlutans 2026-2030 er kveðið á um að uppbygging samgangna skuli taka mið af mismunandi ferðamátum og ekki vera á kostnað þeirra fjölskyldna sem þurfa að reiða sig á einkabílinn. Þar er jafnframt boðuð endurskoðun leiðakerfis almenningssamgangna innan Kópavogsbæjar til að tryggja betri tengingar milli hverfa og mikilvægra þjónustukjarna."
Andri Steinn Hilmarsson
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Guðmundur Jóhann Jónsson
Fundargerð 628. fundar stjórnar SSH frá 11.05.2026.
Lagt fram.
Umræður.
Fundargerð 424. fundar stjórnar Strætó frá 17.04.2026.
Lagt fram.
Umræður.
Fundargerð 281. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 08.05.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 425. fundar stjórnar Strætó frá 13.05.2026.
Lagt fram.