Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hallahvarf 25-33. Byggingaráform.

Málsnúmer: 2606034

Ferill máls

01

Skipulags- og umhverfisráð - 31. fundur

Með tilvísun í skilmála í deiliskipulagi Vatnsendahvarfs, dags. 14. nóvember 2023, eru lögð fram byggingaráform frá Nordic office of Architecture dags. 25. maí 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 25-33 við Hallarhvarf. Í byggingaráformum kemur fram hvernig hönnun og frágangur mannvirkja og lóða falla að viðmiðum í almennum ákvæðum í skipulagsskilmálum í gildandi deiliskipulagi Vatnsendahvarfs. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 15. júní 2026 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 3. júlí 2026.

Bókun:

„Miðflokkurinn fagnar því að skipulagsfulltrúi Kópavogs hafi samþykkt tilögu hönnuðar og byggingarverktaka, og þannig svarað ákalli um fjölgun bílastæða við Hallahvarf 25-33 í 61 stæði, þrátt fyrir að skilmálar deiliskipulags hafi upprunalega gert ráð fyrir 46 stæðum. Mikil vöntun og þörf hefur verið á bílastæðum við nýbyggingar í Kópavogi og er þetta fagnaðarefni og vonandi vísir að breyttri stefnu í þeim málum.“

Beitir Ólafsson

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júlí 2026 samþykkt.

02

Skipulags- og umhverfisráð - 30. fundur

Með tilvísun í skilmála í deiliskipulagi Vatnsendahvarfs, dags. 14. nóvember 2023, eru lögð fram byggingaráform frá Nordic office of Architecture dags. 25. maí 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 25-33 við Hallarhvarf. Í byggingaráformum kemur fram hvernig hönnun og frágangur mannvirkja og lóða falla að viðmiðum í almennum ákvæðum í skipulagsskilmálum í gildandi deiliskipulagi Vatnsendahvarfs.

Hjalti Brynjarsson og Hulda Jóns arkitektar frá Nordic Office of Architecture gerðu grein fyrir erindinu.

Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.