Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vogatunga 22. Byggingarleyfisumsókn.

Málsnúmer: 2606114

Ferill máls

01

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 49. fundur

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 22. maí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Vigfúsar Björnssonar verkfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 22 við Vogatungu er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að stækka suðursvalir raðhússins um 10 m². Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. júní 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Uppdrættir dags. 12. maí 2026. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júní 2026.

Samþykkt með vísan 6. tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

02

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 48. fundur

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 22. maí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Vigfúsar Björnssonar verkfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 22 við Vogatungu er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að stækka suðursvalir raðhússins um 10 m². Uppdrættir dags. 12. maí 2026.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.