Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 49. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
  • Andrea Kristinsdóttir - verkefnastjóri
  • Karlotta Helgadóttir - starfsmaður umhverfissviðs
  • Harri Ormarsson - lögfræðingur

Ritari

  • Karlotta Helgadóttir

Eftirtaldir verkefnastjórar kynntu mál á fundinum: Ester Anna Ármannsdóttir, Kristjana H. Kristjánsdóttir og Freyr Snorrason.

Dagskrá fundar

01

Lindasmári 39. Fyrirspurn.

Lögð fram að nýju fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 39 við Lindasmára dags. 2. júní 2026 um að stækka núverandi sólpall út að lóðarmörkum. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. júní 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júní 2026.

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júní 2026, samþykkt.

02

Vogatunga 22. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 22. maí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Vigfúsar Björnssonar verkfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 22 við Vogatungu er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að stækka suðursvalir raðhússins um 10 m². Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. júní 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Uppdrættir dags. 12. maí 2026. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júní 2026.

Samþykkt með vísan 6. tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

03

Fagrahvarf 2-8. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Gunnars Loga Gunnarssonar arkitekts dags. 9. júní 2026 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 2-8 við Fagraþing um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst stækkun byggingarreits um 1,65 m til suðurs til að koma fyrir 9m² utanáliggjandi svölum. Uppdrættir ódags. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júní 2026.

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum á lóðum 1 til 13 við Faldarhvarf, oddatölur. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 27. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.

04

Bergsmári 3. Fyrirspurn.

Lögð fram að nýju fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 3 við Bergsmára dags. 26. maí 2026 um niðurtekt á kantsteini. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. júní 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júní 2026.

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júní 2026, samþykkt.