Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fundargerð 1000. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 09.06.2026

Málsnúmer: 26061771

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1342. fundur

Fundargerð 1000. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 09.06.2026.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 3258. fundur

Fundargerð 1000. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 09.06.2026.

Fundarhlé hófst kl. 8:46, fundi fram haldið kl. 9:16.

Lagt fram.

Gestur vék af fundi kl. 9:28.

Fundarhlé hófst kl. 9:29, fundi fram haldið kl. 10:19

Umræður.

Bókun:

"Meirihluti bæjarráðs Kópavogs tekur undir bókun stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna draga að reglugerð um málsmeðferð vegna vistunar barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins.

Meirihluti bæjarráðs hefur verulegar áhyggjur af því að verið sé að þrengja að aðgengi barna með þyngstar og flóknastar stuðningsþarfir að nauðsynlegri sérhæfðri þjónustu og skapi aukna óvissu fyrir börnin og fjölskyldur þeirra.

Jafnframt tekur meirihluti bæjarráðs undir þá gagnrýni í bókun stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga að með þessu sé ríkið að ganga á bak við samkomulag ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 með því að endurskilgreina einhliða þá hópa sem falla undir það samkomulag. Slík vinnubrögð eru óásættanleg, enda geta sveitarfélög ekki byggt á samkomulagi við ríkið ef forsendum þess er breytt með einhliða hætti eftir á."

Andri Steinn Hilmarsson

Orri Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson


Bókun:

"Undirrituð geta ekki tekið þátt í bókun um mál sem ekki hefur fengið kynningu og er óvænt dregið fram úr fundargerð án fyrirvara, samhengis eða framlagningu málsgagna. Málið er umfangsmikið og margþætt og því nauðsynlegt að bæjarráð sé vel upplýst áður en afstaða bæjarráðs sé mótuð. Liggur fyrir að svo er ekki. Betra hefði verið að verða við beiðni undirritaðra um að taka málið fyrir á næsta fundi bæjarráðs með kynningu á reglugerðinni, samkomulagi sveitarfélaga og ríkis, og áætluðum kostnaðarþáttum."

Einar Jóhannes Guðnason

Jónas Már Torfason

María Ellen Steingrímsdóttir


Bókun:

"Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga er einróma í afstöðu sinni til málsins og tekur meirihluti bæjarráðs undir þær áhyggjur stjórnarinnar og telur mikilvægt að koma þeirri afstöðu á framfæri á þessum tímapunkti. Um leið leggjum við til að málið verði kynnt aftur á næsta fundi bæjarráðs til að verða við beiðni fulltrúa minnihlutans."

Andri Steinn Hilmarsson

Orri Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson


Bókun:

"Undirrituð árétta að þau vilji glöð taka þátt í bókunum sem samhent bæjarráð Kópavogsbæjar um mikilvæg málefni er varða hagsmuni sveitarfélagsins. Það reynist þó erfitt þegar bókanir um jafn umfangsmikil mál eru borin á borð án fyrirvara. Þótt stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga kunni að hafa verið einróma í sinni afstöðu hafa undirrituð sjálfstæðan rétt og sjálfstæða skyldu til að taka sjálf afstöðu til mála að vel ígrunduðu máli.

Meirihlutinn hefur ekki útskýrt hversvegna bókunin megi ekki bíða, þar sem færi gæfist á að bæjarráð móti afstöðu sameiginlega. Í ljósi þess að umsagnafrestur er liðinn, umrædd reglugerð hefur ekki tekið gildi, breyting á barnaverndarlögum hefur ekki hlotið þinglega afgreiðslu og Kópavogsbær hefur enn ekki fengið höfnun um vistun á skjólstæðingi á grundvelli nýrra reglna, sjá undirrituð ekki ástæðu til þess að afgreiða bókunina með þeim hraða sem meirihlutinn vill í stað þess að bíða í tvær vikur."

Einar Jóhannes Guðnason

Jónas Már Torfason

María Ellen Steingrímsdóttir