Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1342. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Ásdís Kristjánsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalfulltrúi
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - forseti
  • Guðmundur Jóhann Jónsson - aðalfulltrúi
  • Hildur Einarsdóttir - aðalfulltrúi
  • Orri Vignir Hlöðversson - 2. varaforseti
  • Einar Jóhannes Guðnason - 1. varaforseti
  • Jónas Már Torfason - aðalfulltrúi
  • Eydís Inga Valsdóttir - aðalfulltrúi
  • María Ellen Steingrímsdóttir - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Tillaga um lengingu opnunartíma sundlauga Kópavogs

Frá fulltrúum Samfylkingar lögð fram tillaga um lengingu opnunartíma í sundlaugum Kópavogs.

Bæjarstjórn vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.

Fundarhlé hófst kl. 16:17, fundi fram haldið kl. 16:27.

Bókun:

"Vinna er þegar hafin við lengingu opnunartíma sundlauganna í Kópavogi í samráði við stjórnendur þeirra sem kynnt verður fyrir bæjarráði á næsta fundi ráðsins 2. júlí nk. ásamt útfærslu. Meirihlutinn fagnar því að samstaða sé um málið og tekur undir að um jákvætt lýðheilsumál sé að ræða."

Andri Steinn Hilmarsson

Elísabet Berglind Sveinsdóttir

Orri Vignir Hlöðversson

Karen Rúnarsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Guðmundur Jóhann Jónsson

Hildur Einarsdóttir

Fundarhlé hófst kl. 16:28, fundi fram haldið kl. 16:35

Bókun:

"Bæjarfulltrúar minnihlutans fagna því að málið sé í vinnslu. Vel er liðið á sumar og því er fullt tilefni til að hafa hraðar hendur, enda um einfalt mál að ræða og full samstaða um það í bæjarstjórn."

Jónas Már Torfason

Eydís Inga Valsdóttir

María Ellen Steingrímsdóttir

Einar Jóhannes Guðnason

02

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 444. fundur frá 22.05.2026

Fundargerð í 15 liðum.

Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.

03

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 445. fundur frá 05.06.2026

Fundargerð í 19 liðum.

Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.

04

Bæjarráð - 3257. fundur frá 11.06.2026

Fundargerð í 14 liðum.

Lagt fram.

05

Bæjarráð - 3258. fundur frá 18.06.2026

Fundargerð í sjö liðum.

Lagt fram.


5.1 - 26061981 - Stöðvarhvarf 12 og 14. Beiðni um skil á lóð

Frá umhverfissviði, dags. 15.06.2026, lagt fram erindi varðandi skil á lóðunum Stöðvarhvarfi 12 og 14.

Umræður.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum beiðni um skil á lóðinni Stöðvarhvarfi 12 og 14 og felur umhverfissviði að auglýsa lóðirnar að nýju.

Fundarhlé hófst kl. 16:59, fundi fram haldið kl. 17:03.

Bókun:
„Miðflokkurinn hefur verulegar áhyggjur af þungri stöðu í skipulagsmálum. Lóðarhafar eru farnir að skila lóðum sökum seinagangs og krefjast bóta frá bænum, sem virðist breyta skilmálum og leiðbeiningum lóðaúthlutana að vild.

Á næsta fundi bæjarráðs verður á dagskrá tillaga Miðflokksins að fjölga afgreiðslufundum byggingarfulltrúa til að hraða afgreiðslu mála. Undirritaður telur mikilvægt að tillagan verði samþykkt enda er seinagangurinn ekki bara kostnaðarsamur fyrir byggingaraðila heldur sveitarfélagið líka.

Miðflokkurinn undirbýr einnig tillögu þess efnis að úttekt fari fram á umhverfissviði til að fá skýringar á þeirri stöðu sem er að teiknast upp og til að finna lausnir sem auka hraða í afgreiðslu án þess að gefa afslátt af gæðum. Minnka þarf þá fjarlægð sem skapast hefur milli byggingaraðila og bæjarins, samband sem var mjög gott á árum áður.

Auka þarf skilvirkni, sérstaklega þegar mikil uppbygging er í vændum í efri byggðum bæjarins og á vestanverðu Kársnesi. Að mati Miðflokksins benda dæmin til útbólgins kerfis, óþarfrar skriffinnsku, ósveigjanleika og að málaflokkurinn sé á sjálfstýringu.

Þessu verður að breyta.“

Einar Jóhannes Guðnason

Bókun:
"Skilvirkni í skipulags- og byggingarmálum er sameiginlegt hagsmunamál bæjarins og uppbyggingaraðila. Meirihlutinn tekur undir mikilvægi þess að bæta verklag þar sem mögulegt er og bendir á að nú þegar er unnið að því hjá Kópavogsbæ að auka skilvirkni við afgreiðslu erinda. Ávallt er vilji til frekari umbóta, enda séu þær í samræmi við lög og reglur og tryggi góða stjórnsýslu."

Andri Steinn Hilmarsson
Elísabet Berglind Sveinsdóttir
Orri Vignir Hlöðversson
Karen Rúnarsdóttir
Hjördís Ýr Johnson
Guðmundur Jóhann Jónsson
Hildur Einarsdóttir

Bókun:
"Undirrituð taka undir bókun Miðflokksins að því er varðar mikilvægi þess að bæta þjónustu við byggingaraðila og lóðarhafa. Undirrituð fagna því sömuleiðis að meirihlutinn taki vel í umleitan um að bæta verklag."

Jónas Már Torfason
Eydís Inga Valsdóttir
María Ellen Steingrímsdóttir


06

Skipulags- og umhverfisráð - 30. fundur frá 15.06.2026

Fundargerð í 13 liðum.

Lagt fram.


6.11 - 26023503 - Dofrakór 1. Breytt deiliskipulag

Lögð fram umsókn Jens Arnars Árnasonar arkitekts dags. 27. febrúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 1 við Dofrakór um breytingu á deiliskipulagi. Í gildi er deiliskipulag Hörðuvalla, samþykkt í bæjarráði Kópavogs 24. júlí 2003 m.s.br. Lóðin er á svæði 7, reit 1. Í breytingunni felst að byggingarreitur á austurhluta núverandi húss stækkar og komið verði fyrir viðbyggingu á einni hæð með þaksvölum að hámarki 59,5 m² að flatarmáli með tengingu við núverandi íbúð. Komið er fyrir nýrri útidyrahurð á efri hæð með tengingu við þaksvalir. Sótt er um 103 m² lóðarstækkun til austurs yfir bæjarland og að fallið verði frá áður samþykktri deiliskipulagsbreytingu, samþykkt í bæjarráði 3. apríl 2008 um stækkun byggingarreits til norðausturs fyrir garðskýli á einni hæð. Uppdrættir dags. 3. júní 2026.
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. júní 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júní 2026.
Elín Mjöll Lárusdóttir verkefnastjóri gerði grein fyrir erindinu.

Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir synjun skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.


07

Forsætisnefnd - 256. fundur frá 18.06.2026

Fundargerð í fimm liðum.

Lagt fram.

08

Fundargerð 45. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 02.06.2026

Fundargerð 45. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 02.06.2026.

Lagt fram.

09

Fundargerð 281. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 08.05.2026

Fundargerð 281. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 08.05.2026.

Lagt fram.

10

Fundargerð 999. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28.05.2026

Fundargerð 999. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28.05.2026.

Lagt fram.

11

Fundargerð 1000. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 09.06.2026

Fundargerð 1000. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 09.06.2026.

Lagt fram.

12

Fundargerð 627. fundar stjórnar SSH frá 04.05.2026

Fundargerð 627. fundar stjórnar SSH frá 04.05.2026.

Lagt fram.

13

Fundargerð 628. fundar stjórnar SSH frá 11.05.2026

Fundargerð 628. fundar stjórnar SSH frá 11.05.2026.

Lagt fram.

14

Fundargerð 424. fundar stjórnar Strætó frá 17.04.2026

Fundargerð 424. fundar stjórnar Strætó frá 17.04.2026.

Lagt fram.

15

Fundargerð 425. fundar stjórnar Strætó frá 13.05.2026

Fundargerð 425. fundar stjórnar Strætó frá 13.05.2026.

Lagt fram.

16

Sumarleyfi bæjarstjórnar 2026 - fundafyrirkomulag bæjarráðs

Tillaga um að sumarleyfi bæjarstjórnar hefjist að loknum bæjarstjórnarfundi 23.06.2026. Sumarleyfið standi til 17. ágúst 2026. Bæjarráði er falið umboð bæjarstjórnar á sumarleyfistíma hennar.

Fundir bæjarráðs verði 2. júlí, 16. júlí og 6. ágúst. Fyrsti fundur bæjarstjórnar að loknu sumarleyfi verði þriðjudaginn 25. ágúst 2026.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu að sumarleyfi bæjarstjórnar.

17

Kosningar í stjórn Sorpu bs. 2026-2030

Kosningu hlutu:

Hjördís Ýr Johnson aðalmaður

Andri Steinn Hilmarsson varamaður.

18

Kosningar í stjórn Tónlistarskólans Tónsala 2026-2030

Haukur Már Hauksson kosinn aðalmaður í stað Helgu Guðrúnar Jónasdóttur

19

Tilnefningar í samráðshóp vegna Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins

Tilnefndir eru eftirfarandi:

Guðmundur Jóhann Jónsson aðalfulltrúi

Andri Steinn Hilmarsson varafulltrúi