Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar varðandi úthlutanir lóða í Vatnsendahvarfi

Málsnúmer: 26061772

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3266. fundur

Frá umhverfissviði, dags. 28.09.2026, lögð fram umsögn við fyrirspurn bæjarfulltrúa Miðflokksins varðandi úthlutanir lóða í Vatnsendahvarfi.

Lagt fram.

Gestur vék af fundi kl. 8:56.

Bókun:

"Svar umhverfissviðs staðfestir grun Miðflokksins að ekki var verið að fylgja fjölda fordæma þegar framsal lóðarréttinda í Vatnsendahvarfi var samþykkt 11. júní 2026, líkt og gefið var í skyn. Af svörum umhverfissviðs má sjá að á þeim tíma hafði aðeins ein sambærileg beiðni lögaðila áður verið samþykkt.

Eins og áður hefur komið fram eru engir varnaglar sem koma í veg fyrir að eigendur félags sem tekið hefur við lóðarréttindum selji síðar félagið sjálft. Í útboðsskilmálunum voru sett ströng skilyrði um hverjir gætu fengið lóðum úthlutað, en þau skilyrði virðast ekki með sama hætti eiga við þegar réttindin eru færð yfir til nýs félags.

Það vekur því spurningar hvers virði bann við framsali er ef undanþáguheimildin er í framkvæmd nýtt með þessum hætti. Sé það vinnuregla bæjarins að heimila framsal svo lengi sem ákveðin skilyrði eru uppfyllt væri eðlilegra að það kæmi skýrt fram í útboðsskilmálunum, fremur en að þar sé almennt kveðið á um að framsal sé óheimilt og undantekningin sé í raun að beiðnum um framsal sé synjað."

Einar Jóhannes Guðnason


Bókun:

"Í þessu máli sem vísað er til er ekki um eiginlega tilfærslu byggingarréttar til þriðja aðila að ræða eins og kom fram í bókun meirihlutans á fundi bæjarráðs 11. júní sl., svohljóðandi:

„Á fundi bæjarstjórnar 3. júlí 2025 var samþykkt að úthluta lóðunum Stöðvarhvarfi 10 og Skýjahvarfi 11-19 til Tildru byggingarfélags ehf. Óskað er eftir að færa lóðirnar í félagið Skýjahvarf ehf., kt. 420323-0690, sem er í 100% eigu núverandi lóðarhafa. Endanlegt eignarhald er því óbreytt og sá aðili sem stóðst fjárhagslegar kröfur úthlutunarinnar stendur áfram að baki verkefninu. Jafnræði umsækjenda er á engan hátt raskað, enda fær enginn nýr aðili byggingarrétt sem ekki tók þátt í úthlutunarferlinu.

Um leið er áréttað að ekki er vikið frá úthlutunarskilmálum Vatnsendahvarfs hérna. Þvert á móti er verið að beita þeim eins og þeir eru orðaðir. Í skilmálunum segir berum orðum að framsal sé óheimilt fyrir byggingarstig B2 nema með samþykki bæjarráðs. Skilmálarnir gera þannig sjálfir ráð fyrir þeim möguleika að bæjarráð heimili framsal að undangengnu mati á hverju tilviki fyrir sig.

Með hliðsjón af framangreindu felst meirihlutinn á að heimila framsalið og telur það samrýmast bæði orðalagi og markmiðum úthlutunarskilmála Vatnsendahvarfs.“

Andri Steinn Hilmarsson

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri Vignir Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson

02

Bæjarráð - 3258. fundur

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar varðandi úthlutanir lóða í Vatnsendahvarfi.

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.