Bæjarráð - 3266. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Andri Steinn Hilmarsson - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Orri Vignir Hlöðversson - varaformaður
- Jónas Már Torfason - aðalfulltrúi
- Einar Jóhannes Guðnason - aðalfulltrúi
- María Ellen Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Lagðar fram til kynningar þær gjaldskrárbreytingar sem taka gildi 1. október 2026.
Lagt fram og kynnt.
Kynning á verkefninu Barnvænt sveitarfélag.
Kynning og umræður.
Gestur vék af fundi kl.8:45.
Gestir
- Amanda K. Ólafsdóttir skrifstofustjóri menntasviðs - mæting: 08:32
Frá verkefnastjóra íbúatengsla, dags. 23.09.2026, kynning á verkefninu Okkar Kópavogur, yfirlit yfir stöðu mála í september 2026, og tillaga að nýrri nálgun fyrir árin 2027-2030. Óskað er eftir heimild bæjarráðs til að þróa verkefnið áfram þannig að styrkleikum þess verði haldið, þar á meðal verkefnum á sviði umhverfis og útivistar, en jafnframt verði opnað fyrir afmörkuð verkefni sem efla samfélag, menningu, menntun, velferð, lýðheilsu, öryggi, aðgengi og þátttöku í Kópavogi.
Kynning og umræður.
Gestur vék af fundi kl.9:52.
Bæjarráð óskar eftir því að verkefnið verði unnið áfram og tillaga komi að nýju fyrir bæjarráð.
Gestir
- Sigrún María Kristinsdóttur verkefnastjóri íbúatengsla - mæting: 08:58
04
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar varðandi úthlutanir lóða í Vatnsendahvarfi
Frá umhverfissviði, dags. 28.09.2026, lögð fram umsögn við fyrirspurn bæjarfulltrúa Miðflokksins varðandi úthlutanir lóða í Vatnsendahvarfi.
Lagt fram.
Gestur vék af fundi kl. 8:56.
Bókun:
"Svar umhverfissviðs staðfestir grun Miðflokksins að ekki var verið að fylgja fjölda fordæma þegar framsal lóðarréttinda í Vatnsendahvarfi var samþykkt 11. júní 2026, líkt og gefið var í skyn. Af svörum umhverfissviðs má sjá að á þeim tíma hafði aðeins ein sambærileg beiðni lögaðila áður verið samþykkt.
Eins og áður hefur komið fram eru engir varnaglar sem koma í veg fyrir að eigendur félags sem tekið hefur við lóðarréttindum selji síðar félagið sjálft. Í útboðsskilmálunum voru sett ströng skilyrði um hverjir gætu fengið lóðum úthlutað, en þau skilyrði virðast ekki með sama hætti eiga við þegar réttindin eru færð yfir til nýs félags.
Það vekur því spurningar hvers virði bann við framsali er ef undanþáguheimildin er í framkvæmd nýtt með þessum hætti. Sé það vinnuregla bæjarins að heimila framsal svo lengi sem ákveðin skilyrði eru uppfyllt væri eðlilegra að það kæmi skýrt fram í útboðsskilmálunum, fremur en að þar sé almennt kveðið á um að framsal sé óheimilt og undantekningin sé í raun að beiðnum um framsal sé synjað."
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Í þessu máli sem vísað er til er ekki um eiginlega tilfærslu byggingarréttar til þriðja aðila að ræða eins og kom fram í bókun meirihlutans á fundi bæjarráðs 11. júní sl., svohljóðandi:
„Á fundi bæjarstjórnar 3. júlí 2025 var samþykkt að úthluta lóðunum Stöðvarhvarfi 10 og Skýjahvarfi 11-19 til Tildru byggingarfélags ehf. Óskað er eftir að færa lóðirnar í félagið Skýjahvarf ehf., kt. 420323-0690, sem er í 100% eigu núverandi lóðarhafa. Endanlegt eignarhald er því óbreytt og sá aðili sem stóðst fjárhagslegar kröfur úthlutunarinnar stendur áfram að baki verkefninu. Jafnræði umsækjenda er á engan hátt raskað, enda fær enginn nýr aðili byggingarrétt sem ekki tók þátt í úthlutunarferlinu.
Um leið er áréttað að ekki er vikið frá úthlutunarskilmálum Vatnsendahvarfs hérna. Þvert á móti er verið að beita þeim eins og þeir eru orðaðir. Í skilmálunum segir berum orðum að framsal sé óheimilt fyrir byggingarstig B2 nema með samþykki bæjarráðs. Skilmálarnir gera þannig sjálfir ráð fyrir þeim möguleika að bæjarráð heimili framsal að undangengnu mati á hverju tilviki fyrir sig.
Með hliðsjón af framangreindu felst meirihlutinn á að heimila framsalið og telur það samrýmast bæði orðalagi og markmiðum úthlutunarskilmála Vatnsendahvarfs.“
Andri Steinn Hilmarsson
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Vignir Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Gestir
- Guðrún Edda Finnbogadóttir, skrifstofustjóri umhverfissviðs - mæting: 08:52
Frá Starfsgreinasambandi Íslands, dags. 16.09.2026, lögð fram áskorun varðandi þjóðarsátt um verðstöðugleika. Óskað er eftir skriflegu svari við því hvort sveitarfélagið sé reiðubúið að taka þátt í þjóðarsátt um verðstöðugleika og sjá til þess að gjaldskrár sveitarfélagsins og fyrirtækja í eigu þess hækki ekki um meira en 2,5% það sem eftir lifir gildandi kjarasamninga.
Lagt fram.
Bókun bæjarráðs:
"Bæjarráð tekur undir ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga um að sveitarfélögin sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála. Þar lýstu fulltrúar Kópavogsbæjar ásamt öðrum sveitarfélögum yfir vilja til að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027. Þar að auki takmarkaði Kópavogsbær hækkanir á gjaldskrám barnafjölskyldna við 2,5% verðbólgumarkmið SÍ á þessu ári og lagði þannig sín lóð á vogarskálarnar til að halda aftur af verðbólgu og álögum sem hafa bein áhrif á heimilin."
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis lagt fram til umsagnar 5. mál, Sveitarstjórnarlög.
Lagt fram.
Frá Hollvinasamtökum Reykjalundar, dags. 17.09.2026, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir fjárhagslegum stuðningi við uppbyggingu Reykjalundar.
Lagt fram.
Frá íbúum við Víðigrund, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir aðkomu bæjarins að nágrannavörslu. Samhliða lögð fram umsögn bæjarstjóra.
Lagt fram og vísað til afgreiðslu bæjarstjóra.
Bókun bæjarráðs:
"Bæjarráð fagnar íbúafundum sem verða haldnir um miðjan mánuðinn um nágrannavörslu í samstarfi við lögreglu og hvetur til þess að samtali við lögreglu verði haldið áfram um hvernig megi auka öryggi bæjarbúa með fyrirbyggjandi aðgerðum."
Fundargerð í 28 liðum.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Fundargerð í tíu liðum.
Lagt fram.
10.2 - 26092155 - Silfursmári 1-7. Breytt aðalskipulag. Skipulags- og matslýsing.
Lögð fram tillaga að sameiginlegri skipulags- og matslýsingu dags. 15. september 2026 vegna breytinga á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 og breytinga á deiliskipulagi Silfursmára 1-7 í samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Skipulags- og matslýsing fjallar um fyrirhugaða breytingu á aðalskipulagi þar sem til stendur að hækka hámarks hæðir húsa í allt að 10 hæðir, efsta inndregin, og breytingar á deiliskipulagi þar sem fyrirhugað er að fjölga íbúðum, auka við heimilt byggingarmagn, breyta fyrirkomulagi og hæðum bygginga og bæta torgsvæði og tengingar við og um svæðið.
Samþykkt með vísan til 1. mgr. 30 gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð skipulags- og matslýsing dags. 15. september 2026 verði auglýst með fimm atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Árnínu Steinunnar Kristjánsdóttur, Guðmundar Jóhanns Jónssonar, Kristins Dags Gissurarsonar gegn atkvæðum Eydísar Ingu Valsdóttur og Orra Thors Eggertssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bókun:
„Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja hóflega og vandaða þéttingu byggðar, en telja fyrirliggjandi áform um allt að 10 hæða byggingar við Silfursmára ganga of langt. Þétting byggðar þarf að vera í samhengi við nærumhverfið og taka eðlilegt tillit til hagsmuna og væntinga þeirra íbúa sem þar búa, en ekki hafa verið færð knýjandi rök fyrir nauðsyn á aukningu byggingarmagns. Fyrir liggur að breytingarnar eru ekki gerðar í sátt við íbúa á svæðinu sem fjárfestu í íbúðum sínum á grundvelli gildandi skipulags sem er annars nýtt af nálinni. Núverandi deiliskipulag gerir ráð fyrir 2-4 hæða húsum á sama svæði og telja undirrituð ekki rök liggja fyrir í málinu til að bregða frá því, þótt að breytt deiliskipulag kunni að vera til bóta að öðru leyti.“
Eydís Inga Valsdóttir og Orri Thor Eggertsson.
Bókun:
„Fulltrúi Viðreisnar styður við markmið skipulagsbreytinga í Silfursmára 1-7 þar sem, meðal annars, grænu og lifandi svæði er gert hærra undir höfði, en lýsir áhyggjum af aukningu á byggingarmagni í fyrirhuguðum breytingum og áhrifum þeirra á nærliggjandi byggð. Mikilvægt er að hafa í huga að íbúar hafa keypt húsnæði á svæðinu í góðri trú út frá gildandi skipulagi og mikilvægt er að tekið sé tillit til þeirra forsendna við áframhaldandi vinnslu málsins. Leggja þarf sérstaka áherslu á vandaða auglýsingu og kynningu þar sem skýrt kemur fram hvernig tillagan víkur frá gildandi skipulagi og hvaða áhrif breytingarnar hafa á nærumhverfið. Tryggja þarf samráð við íbúa, taka athugasemdir þeirra til efnislegrar skoðunar og gera grein fyrir því hvernig brugðist er við þeim áður en skipulag er samþykkt.“
Pétur Björgvin Sveinsson.
Bókun:
„Við teljum að þær breytingar sem hér eru lagðar til á aðal- og deiliskipulagi séu til þess fallnar að styðja enn frekar svæðiskjarnann í Smáranum og tengja hverfið betur við Smáralindina með byggð og torgsvæðum. Það er mikilvægt að við áframhaldandi vinnu og kynningu sé gerður skýr samanburður bæði við gildandi skipulag og þá tillögu sem áður var kynnt. Gert er ráð fyrir að aukning byggingarmagns sé minna en var gert ráð fyrir þegar bæjarstjórn samþykkti skipulagslýsinguna í ágúst 2025 en á kynningartímanum bárust 59 athugasemdir og hafa verið gerðar breytingar á tillögunni sem snúa beint að mörgum þeirra athugasemda sem þar komu fram. Þannig er byggingarmagn dregið saman um 2.500 m² frá fyrri útfærslu, sem er um fjórðungi minni aukning í byggingarmagni en fyrri tillaga gerði ráð fyrir, og gert ráð fyrir lækkun húsa, bæði næst byggð og í hærri húsunum tveimur, bæði með fækkun hæða en einnig með lækkun lofthæða þannig að hámarkshæð húsanna lækkar enn frekar. Við teljum að við áframhaldandi útfærslu þurfi sérstaklega að rýna bílastæðamál, m.a. með það að markmiði að fjölga bílastæðum í bílakjallara.“
Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Kristinn Dagur Gissurarson.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Bókun:
"Miðflokkurinn telur nýja hönnun í Silfursmára 1-7 mun heppilegri en núverandi deiliskipulag er varðar flæði og útlit. Aftur á móti væru það algjör svik við íbúa í Silfur- og Sunnusmára að heimila uppbyggingu 10 og 9 hæða turna sem taka útsýni frá íbúðum sem voru sérstaklega hannaðar og seldar sem útsýnisíbúðir, af sama aðila og nú byggir í Silfursmára 1-7.
Heppilegast væri að halda í þann hæðafjölda sem upphaflega var áætlaður ásamt því að vinna með fyrirlagða hönnun á svæðinu. Í Silfur- og Sunnusmára er enginn skortur á íbúðum og því óþarfi að fjölga þeim enn frekar með tilheyrandi afleiðingum, ætti því að vera auðvelt að lækka íbúðaturnana.
Leggur Miðflokkurinn til að bærinn fari fram á við Klasa að skila inn hönnun sem stendur við upphaflegan hæðafjölda."
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Við tökum undir bókun meirihlutans í skipulags- og umhverfisráði um að þær breytingar sem hér eru lagðar til á aðal- og deiliskipulagi séu til þess fallnar að styðja enn frekar við svæðiskjarnann í Smáranum og tengja hverfið betur við Smáralindina með byggð og torgsvæðum.
Mikilvægt er að við áframhaldandi vinnu og kynningu sé gerður skýr samanburður bæði við gildandi skipulag og þá tillögu sem áður var kynnt. Gert er ráð fyrir að aukning byggingarmagns verði minni en gert var ráð fyrir þegar bæjarstjórn samþykkti skipulagslýsinguna í ágúst 2025. Á kynningartímanum bárust 59 athugasemdir og hafa verið gerðar breytingar á tillögunni sem snúa beint að mörgum þeirra sjónarmiða sem þar komu fram.
Þannig er byggingarmagn dregið saman um 2.500 m² frá fyrri útfærslu, sem þýðir að aukning byggingarmagns er um fjórðungi minni en í fyrri tillögu. Jafnframt er gert ráð fyrir lækkun húsa, bæði næst núverandi byggð og í hærri húsunum tveimur. Þar er bæði um að ræða fækkun hæða og lækkun lofthæða þannig að hámarkshæð húsanna lækkar enn frekar.
Þessar breytingar sýna að tillagan hefur þróast töluvert frá fyrri útfærslu og að tekið hefur verið tillit til margra þeirra sjónarmiða sem komu fram við kynningu hennar. Við áframhaldandi vinnu er mikilvægt að horfa áfram heildstætt á uppbyggingu svæðisins og áhrif hennar á nærliggjandi byggð, meðal annars hvað varðar hæðir og umfang bygginga, birtuskilyrði, skuggavarp, ásýnd og tengsl byggðarinnar.
Við teljum jafnframt mikilvægt að rýna bílastæðamál sérstaklega við áframhaldandi útfærslu, meðal annars með það að markmiði að fjölga bílastæðum í bílakjallara.
Fyrirliggjandi tillaga er að okkar mati stórt skref í rétta átt og mikilvægt að halda áfram þeirri vinnu sem þegar hefur verið unnin við að bæta tillöguna og þróa svæðið í heild."
Andri Steinn Hilmarsson
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Vignir Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
10.3 - 26092156 - Silfursmári 1-7. Breytt deiliskipulag. Skipulags- og matslýsing.
Lögð fram tillaga að sameiginlegri skipulags- og matslýsingu dags. 15. september 2026 vegna breytinga á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 og breytinga á deiliskipulagi Silfursmára 1-7 í samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Skipulags- og matslýsing fjallar um fyrirhugaða breytingu á aðalskipulagi þar sem til stendur að hækka hámarks hæðir húsa í allt að 10 hæðir, efsta inndregin, og breytingar á deiliskipulagi þar sem fyrirhugað er að fjölga íbúðum, auka við heimilt byggingarmagn, breyta fyrirkomulagi og hæðum bygginga og bæta torgsvæði og tengingar við og um svæðið.
Ingvi Jónasson framkvæmdastjóri Klasa og Halldór Eiríksson arkitekt hjá T.ark gerðu grein fyrir tillögunni. Sólveig Jóhannsdóttir, þróunarstjóri hjá Klasa, tók einnig sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt með vísan til 1. mgr. 30 gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð skipulags- og matslýsing dags. 15. september 2026 verði auglýst með fimm atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Árnínu Steinunnar Kristjánsdóttur, Guðmundar Jóhanns Jónssonar, Kristins Dags Gissurarsonar gegn atkvæðum Eydísar Ingu Valsdóttur og Orra Thors Eggertssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bókun:
„Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja hóflega og vandaða þéttingu byggðar, en telja fyrirliggjandi áform um allt að 10 hæða byggingar við Silfursmára ganga of langt. Þétting byggðar þarf að vera í samhengi við nærumhverfið og taka eðlilegt tillit til hagsmuna og væntinga þeirra íbúa sem þar búa, en ekki hafa verið færð knýjandi rök fyrir nauðsyn á aukningu byggingarmagns. Fyrir liggur að breytingarnar eru ekki gerðar í sátt við íbúa á svæðinu sem fjárfestu í íbúðum sínum á grundvelli gildandi skipulags sem er annars nýtt af nálinni. Núverandi deiliskipulag gerir ráð fyrir 2-4 hæða húsum á sama svæði og telja undirrituð ekki rök liggja fyrir í málinu til að bregða frá því, þótt að breytt deiliskipulag kunni að vera til bóta að öðru leyti.“
Eydís Inga Valsdóttir og Orri Thor Eggertsson.
Bókun:
„Fulltrúi Viðreisnar styður við markmið skipulagsbreytinga í Silfursmára 1-7 þar sem, meðal annars, grænu og lifandi svæði er gert hærra undir höfði, en lýsir áhyggjum af aukningu á byggingarmagni í fyrirhuguðum breytingum og áhrifum þeirra á nærliggjandi byggð. Mikilvægt er að hafa í huga að íbúar hafa keypt húsnæði á svæðinu í góðri trú út frá gildandi skipulagi og mikilvægt er að tekið sé tillit til þeirra forsendna við áframhaldandi vinnslu málsins. Leggja þarf sérstaka áherslu á vandaða auglýsingu og kynningu þar sem skýrt kemur fram hvernig tillagan víkur frá gildandi skipulagi og hvaða áhrif breytingarnar hafa á nærumhverfið. Tryggja þarf samráð við íbúa, taka athugasemdir þeirra til efnislegrar skoðunar og gera grein fyrir því hvernig brugðist er við þeim áður en skipulag er samþykkt.“
Pétur Björgvin Sveinsson.
Bókun:
„Við teljum að þær breytingar sem hér eru lagðar til á aðal- og deiliskipulagi séu til þess fallnar að styðja enn frekar svæðiskjarnann í Smáranum og tengja hverfið betur við Smáralindina með byggð og torgsvæðum. Það er mikilvægt að við áframhaldandi vinnu og kynningu sé gerður skýr samanburður bæði við gildandi skipulag og þá tillögu sem áður var kynnt. Gert er ráð fyrir að aukning byggingarmagns sé minna en var gert ráð fyrir þegar bæjarstjórn samþykkti skipulagslýsinguna í ágúst 2025 en á kynningartímanum bárust 59 athugasemdir og hafa verið gerðar breytingar á tillögunni sem snúa beint að mörgum þeirra athugasemda sem þar komu fram. Þannig er byggingarmagn dregið saman um 2.500 m² frá fyrri útfærslu, sem er um fjórðungi minni aukning í byggingarmagni en fyrri tillaga gerði ráð fyrir, og gert ráð fyrir lækkun húsa, bæði næst byggð og í hærri húsunum tveimur, bæði með fækkun hæða en einnig með lækkun lofthæða þannig að hámarkshæð húsanna lækkar enn frekar. Við teljum að við áframhaldandi útfærslu þurfi sérstaklega að rýna bílastæðamál, m.a. með það að markmiði að fjölga bílastæðum í bílakjallara.“
Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Kristinn Dagur Gissurarson.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Bókun:
"Miðflokkurinn telur nýja hönnun í Silfursmára 1-7 mun heppilegri en núverandi deiliskipulag er varðar flæði og útlit. Aftur á móti væru það algjör svik við íbúa í Silfur- og Sunnusmára að heimila uppbyggingu 10 og 9 hæða turna sem taka útsýni frá íbúðum sem voru sérstaklega hannaðar og seldar sem útsýnisíbúðir, af sama aðila og nú byggir í Silfursmára 1-7.
Heppilegast væri að halda í þann hæðafjölda sem upphaflega var áætlaður ásamt því að vinna með fyrirlagða hönnun á svæðinu. Í Silfur- og Sunnusmára er enginn skortur á íbúðum og því óþarfi að fjölga þeim enn frekar með tilheyrandi afleiðingum, ætti því að vera auðvelt að lækka íbúðaturnana.
Leggur Miðflokkurinn til að bærinn fari fram á við Klasa að skila inn hönnun sem stendur við upphaflegan hæðafjölda."
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Við tökum undir bókun meirihlutans í skipulags- og umhverfisráði um að þær breytingar sem hér eru lagðar til á aðal- og deiliskipulagi séu til þess fallnar að styðja enn frekar við svæðiskjarnann í Smáranum og tengja hverfið betur við Smáralindina með byggð og torgsvæðum.
Mikilvægt er að við áframhaldandi vinnu og kynningu sé gerður skýr samanburður bæði við gildandi skipulag og þá tillögu sem áður var kynnt. Gert er ráð fyrir að aukning byggingarmagns verði minni en gert var ráð fyrir þegar bæjarstjórn samþykkti skipulagslýsinguna í ágúst 2025. Á kynningartímanum bárust 59 athugasemdir og hafa verið gerðar breytingar á tillögunni sem snúa beint að mörgum þeirra sjónarmiða sem þar komu fram.
Þannig er byggingarmagn dregið saman um 2.500 m² frá fyrri útfærslu, sem þýðir að aukning byggingarmagns er um fjórðungi minni en í fyrri tillögu. Jafnframt er gert ráð fyrir lækkun húsa, bæði næst núverandi byggð og í hærri húsunum tveimur. Þar er bæði um að ræða fækkun hæða og lækkun lofthæða þannig að hámarkshæð húsanna lækkar enn frekar.
Þessar breytingar sýna að tillagan hefur þróast töluvert frá fyrri útfærslu og að tekið hefur verið tillit til margra þeirra sjónarmiða sem komu fram við kynningu hennar. Við áframhaldandi vinnu er mikilvægt að horfa áfram heildstætt á uppbyggingu svæðisins og áhrif hennar á nærliggjandi byggð, meðal annars hvað varðar hæðir og umfang bygginga, birtuskilyrði, skuggavarp, ásýnd og tengsl byggðarinnar.
Við teljum jafnframt mikilvægt að rýna bílastæðamál sérstaklega við áframhaldandi útfærslu, meðal annars með það að markmiði að fjölga bílastæðum í bílakjallara.
Fyrirliggjandi tillaga er að okkar mati stórt skref í rétta átt og mikilvægt að halda áfram þeirri vinnu sem þegar hefur verið unnin við að bæta tillöguna og þróa svæðið í heild."
Andri Steinn Hilmarsson
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Vignir Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
10.5 - 26043172 - Dalvegur 1. Breyting á aðal- og deiliskipulagi.
Lögð fram skipulags- og matslýsing unnin af Kópavogsbæ dags. 17. september 2026 fyrir breytingu á aðal- og deiliskipulagi fyrir Dalveg 1. Fyrirhugað er að byggja upp verslunar- og þjónustuhúsnæði í góðum tengslum við Kópavogsdal í samræmi við tillögur Klasa þróunarfélags og Tendra arkitekta.
Samþykkt með vísan til 1. mgr. 30 gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð skipulags- og matslýsing dags. 17. september 2026 verði auglýst. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Bókun:
"Í Kópavogi verður brátt enginn skortur á bílastæðaskorti. Við Dalveg 1 er spennandi uppbygging framundan sem mun hiklaust laða að sér gesti sem koma víðsvegar að. Þess vegna telur undirritaður mikilvægt að kvaðir aðalskipulags um bílastæði verði ekki hafðar að leiðarljósi við ákvörðun fjölda bílastæða.
Heppilegast væri ef bæjarráð heimili uppbyggingaraðilum að byggja nóg af bílastæðum og að farið verði í að meta möguleikann á bílakjallara svo þau komi ekki niður á útliti svæðisins."
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Meirihlutinn tekur undir að það sé mikilvægt að huga að bílastæðum og aðkomu að svæðinu í þessum skipulagsfasa sem er undanfari uppbyggingarinnar að Dalvegi 1."
Andri Steinn Hilmarsson
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Vignir Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.
Bæjarráð samþykkir að vísa máli nr. 3 í fundargerð menningar- og mannlífsnefndar til gerðar fjárhagsáætlunar.
Bæjarráð óskar eftir því að fá kynningu á Jólavogi á næsta fundi ráðsins.
Bókun við lið nr. 7:
"Undirritaður tekur undir bókanir fulltrúa Samfylkingar og Viðreisnar varðandi vegglistaverkið Sólarslóð eftir Theresu Himmer (liður 7 í fundargerð)."
Jónas Már Torfason
Bókun við lið nr. 7:
"Undirrituð vísa í og taka undir bókun meirihlutans í menningar- og mannlífsnefnd."
Andri Steinn Hilmarsson
Ásdís Kristjánsdóttir
Hjördís Ýr Johnson
Orri Hlöðversson
Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
Bókun við mál nr. 2.:
"Misbrestirnir í úboði á stúku HK eru óboðlegir og ekki Kópavogsbæ til framdráttar. Bærinn hefur áður gert þau mistök að hlusta ekki á Breiðablik við kaup á flóðljósum og væri sorglegt að endurtaka leikinn með því að keyra á uppbyggingu stúku sem verður úrelt stuttu eftir að framkvæmdum lýkur.
Leggur Miðflokkurinn til að hreinskilið samtal verði tekið við stjórnendur HK og uppbyggingin taki mið af framtíðarlausn."
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Fullyrðingar um að mannvirkið verði úrelt strax í lok verktíma eru úr lausu lofti gripnar. Niðurstaða úrskurðarnefndar er vissulega ákveðin vonbrigði og mikilvægt að læra af henni. Hún hefur hins vegar ekkert með ákvarðanir að gera sem teknar voru við endurnýjun Kópavogsvallar árið 2018. Meirihlutinn mun halda áfram nánu samstarfi við HK um þróun og framkvæmd verkefnisins."
Andri Steinn Hilmarsson
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Vignir Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Fundargerð í fimmtán liðum.
Bæjarráð óskar eftir kynningu á máli nr. 8 um samræmda móttöku flóttafólks á þar næsta fund bæjarráðs þann 15. október n.k.
Bókun við mál nr. 13.8:
"Undirritaður hefur lagt til að bærinn framlengi ekki samning sinn við ríkið um samræmda móttöku flóttafólks. Fagnar undirritaður að bæjarráð eigi að fá kynningu á samningnum og að rýna eigi í áhrif þess að framlengja hann og bæjarráð taki afstöðu eftir það."
Einar Jóhannes Guðnason
13.14 - 26092068 - Umsögn til Alþingis vegna fjálagafrumvarps ársins 2027 og áhrif þess á framtíðar samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna
Lögð fram til kynningar drög að umsögn til fjárlaganefndar Alþingis vegna farsældar barna dags. 22.9.2026.
Lagt fram.
Bókun:
Velferðar- og mannréttindaráð Kópavogs lýsir verulegum áhyggjum af því að sérstakt viðbótarfjármagn ríkisins til sveitarfélaga vegna innleiðingar og framkvæmdar farsældarlaganna falli niður samkvæmt fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi 2027.
Sveitarfélög hafa á undanförnum árum byggt upp þjónustu og tekið á sig lögbundnar skyldur með það að markmiði að börn og fjölskyldur fái snemmtækan, samfelldan og samþættan stuðning. Mikilvægt er að sú uppbygging glatist ekki og að tryggt verði að börn og fjölskyldur fái áfram þá þjónustu og stuðning sem farsældarlögunum er ætlað að tryggja.
Ráðið telur ótímabært að draga úr fjármögnun án þess að fyrir liggi heildstætt mat á raunverulegum kostnaði sveitarfélaga, ávinningi og árangri innleiðingarinnar. Ríkisendurskoðun hefur jafnframt bent á að innleiðingu og framkvæmd laganna hafi að ýmsu leyti verið ábótavant og að ekki séu enn fyrir hendi fullnægjandi forsendur til að ná meginmarkmiðum þeirra.
Velferðar- og mannréttindaráð hvetur því stjórnvöld til að endurskoða fyrirhugaða niðurfellingu framlagsins og tryggja áframhaldandi og fyrirsjáanlega fjármögnun. Samfella og stöðugleiki í þjónustu við börn og fjölskyldur er grundvallaratriði og mikilvægt að sú fjárfesting sem þegar hefur verið ráðist í fái tíma og svigrúm til að skila þeim samfélagslega ávinningi sem farsældarlögunum er ætlað að ná fram.
Björg Baldursdóttir, Sigrún Bjarnadóttir, Haukur Már Hauksson, Gunnlaugur Auðunn Ragnarsson, Hannes H Þorvaldsson og Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir.
Örn Arnarson og Thelma Bergmann Árnadóttir sitja hjá.
Bókun:
"Undirrituð lýsa verulegum áhyggjum af því að fjárframlög ríkisins til sveitarfélaga vegna innleiðingar farsældarlaga verði felld niður að fullu, samkvæmt fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027.
Stjórnvöldum ber lögum samkvæmt að tryggja sveitarfélögum fjármagn á innleiðingartímabili farsældarlaganna og að því loknu að fara fram endurmat á fjárþörf sveitarfélaga vegna lögbundinnar þjónustu samkvæmt lögunum.
Áður en fjárframlög eru felld niður ber stjórnvöldum að meta þann viðbótarkostnað sem lögin hafa í för með sér fyrir sveitarfélög, ávinning af framkvæmd þeirra og framtíðarfjárþörf vegna þeirrar þjónustu sem lögin leggja sveitarfélögum á herðar. Slíkt mat hefur ekki farið fram.
Ríkisendurskoðun hefur jafnframt bent á að þrátt fyrir að fimm ár séu liðin frá upphafi innleiðingar laganna sé innleiðingu þeirra ekki lokið. Þar vegur þungt að framkvæmd laganna hefur að ýmsu leyti verið ábótavant og meðal annars hefur ekkert heildstætt árangursmat verið framkvæmt.
Það blasir við að án áframhaldandi stuðnings ríkisins við innleiðingu farsældarlaganna er hætta á að þjónusta skerðist fyrir þær um 900 fjölskyldur í Kópavogi sem reiða sig á þessa þjónustu.
Niðurfelling fjárframlaga ríkisins er því illa rökstudd og vekur upp verulegar spurningar um samræmi hennar við þær skyldur sem lögin leggja á stjórnvöld. Slík ákvörðun getur stefnt markmiðum farsældarlaganna í hættu og jafnframt teflt þeim árangri sem þegar hefur náðst í hættu."
Ásdís Kristjánsdóttir
Andri Steinn Hilmarsson
Orri Vignir Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Fundargerð 282. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 27.07.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 283. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 18.09.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 148. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar frá 11.09.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 1002. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 11.09.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 633. fundar stjórnar SSH frá 21.09.2026.
Lagt fram.
Frá bæjarfulltrúa Miðflokks, dags. 28.09.2026, lögð fram tillaga um endurskoðun Samgöngusáttmálans.
Bæjarráð hafnar tillögunni með fjórum atkvæðum gegn atkvæði Einars Jóhannesar Guðnasonar.
Bókun:
"Mikilvægt er að halda áfram nauðsynlegri uppbyggingu samgangna, þ.m.t. Borgarlínu, á höfuðborgarsvæðinu. Sú leið sem hér er lögð til hefur óhjákvæmilega í för með sér óvissu, tefur framkvæmdir og setur uppbyggingu á mikilvægum samgönguinnviðum í uppnám.
Samgöngusáttmálinn var uppfærður/endurskoðaður árið 2023-2024 og sífelld endurskoðun á samkomulaginu vinnur gegn þeirri festu sem er nauðsynleg til að tryggja framgang þessa samgönguinnviða verkefnis.
Varðandi fjármögnunina má benda á að ríkið getur fjármagnað sinn hluta með öðrum leiðum en flýti- og umferðargjöldum, s.s. með sölu ríkiseigna. Slíkar leiðir rúmast innan þeirra fjármögnunarmöguleika sem standa ríkinu til boða til að fjármagna hlut ríkisins í verkefninu."
Andri Steinn Hilmarsson
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Vignir Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
María Ellen Steingrímsdóttir
Fundarhlé hófst kl. 11:27, fundi fram haldið kl. 12:14
Bókun:
"Það ætti engan að furða að meirihlutinn hafi engan áhuga á því að bæta umferðarflæði í Kópavogi og grípi í sömu frasa og fyrir kosningar. Aðgerðir í verki segja þó mun meira en orð á blaði.
Bæjarbúar bíða enn eftir aðgerðum bæjarstjóra við Arnarnesveg. Bæjarstjóri fullyrti við Morgunblaðið þann 18. júlí 2026 að óásættanlegt sé að íbúar höfuðborgarsvæðisins séu látnir sitja fastir í umferð vegna óþarfa umferðarljósa og að Kópavogur myndi beita sér fyrir því að úrbætur væru gerðar. Enn er þó beðið umsagnar bæjarstjóra við tillögu Miðflokksins um að bærinn beiti sér í málinu, tillaga sem er dagsett 18. júlí, og virðist ekkert eiga að gera.
Kópavogsbúar heyrðu ítrekað fyrir kosningar að meirihlutinn myndi aldrei þrengja að fjölskyldubílnum en öll uppbyggingaráform í bænum gera nákvæmlega það og er algjörlega fráleitt að leggja til að selja Landsbankann til þess að borga fyrir Borgarlínuna. Meirihlutinn skrifaði undir flýti- og umferðargjöld og verður máttlaus í baráttu sinni gegn aðgerðum ríkisins sem hann hefur þegar samþykkt."
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Miðflokkurinn hefur ekki lagt fram raunhæfar lausnir til að bæta umferðarflæði. Tillaga flokksins felur þess í stað í sér að hægja á framkvæmdum og uppbyggingu nauðsynlegra samgönguinnviða.
Arnarnesvegurinn er mikilvæg samgöngubót fyrir efri byggðir Kópavogs og hluti af Samgöngusáttmálanum. Bæjarstjóri hefur verið skýr í fjölmiðlum um að ef reynslan sýnir að umferðarteppa myndist við gatnamótin muni Kópavogsbær beita sér fyrir því að þau verði gerð mislæg. Gatnamótin eru hins vegar enn ekki komin í fulla virkni og því mikilvægt að meta áhrif þeirra þegar þau hafa tekið til starfa að fullu.
Meirihluti Kópavogsbæjar skrifaði aldrei undir að ríkið myndi fjármagna sinn hluta Samgöngusáttmálans með flýti- og umferðargjöldum. Við endurskoðun sáttmálans kom skýrt fram að bein framlög ríkisins gætu verið hluti af annarri fjármögnun en flýti- og umferðargjöldum.
Stefna meirihlutans er skýr og óbreytt: Við viljum stuðla að skilvirkum og góðum samgöngum fyrir Kópavogsbúa. Til þess þarf að nýta ólíka valkosti og tryggja að einn samgöngumáti eða einn valkostur þrengi ekki að öðrum.
Við eigum að halda áfram að byggja upp nauðsynlega samgönguinnviði, fylgjast með þróun umferðar og bregðast við ef reynslan sýnir að þörf sé á breytingum."
Andri Steinn Hilmarsson
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Vignir Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Bókun:
"Undirritaður vekur athygli á því að Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn, Viðreisn og Samfylkingin eru hér öll á sama máli varðandi Borgarlínuna, enda hefur Sjálfstæðisflokkurinn aldrei geta bent á hvar flokkunum greini á um verkefni Samfylkingarinnar í Reykjavík um bíllausan lífsstíl og Reykjavíkurvæðingu Kópavogs.
Lítur því út fyrir að Miðflokkurinn muni einn standa vörð um umferðarflæði í bænum og raunverulegt ferðafrelsi íbúa. Það tekst ekki með óhóflegri ofurþéttingu byggðar og þrengingu að umferð sem meirihlutinn stendur fyrir. Þegar hefur Miðflokknum tekist að standa gegn glórulausum aðgerðum á umferðamannvirkjum og er mikilvægt að kjósendur fari að minna sína fulltrúa á það til hvers þeir voru kosnir, enda ólíklegt að kjósendur Sjálfstæðisflokksins séu mjög spenntir fyrir því að umturna skipulagi Kópavogs fyrir Borgarlínuna.
Að bera fyrir sig að meirihlutinn sé tilneyddur til að samþykkja þrengingaráform Samfylkingarinnar í Reykjavík vegna þess að þeir séu ósammála tillögum Miðflokksins er hjákátleg afsökun.
Bæjarstjóri getur ekki breytt því núna hvað hann sagði við Morgunblaðið 18. júlí 2026 þar sem afstaðan var afdráttarlaus. Meirihlutinn getur ekki heldur breytt því sem hann undirritaði í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins 2024.
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Sú mynd sem dregin er upp í bókun Miðflokksins af samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu er verulega einfölduð. Samgöngusáttmálinn er sameiginlegt verkefni ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og snýst ekki eingöngu um Borgarlínu, heldur einnig um uppbyggingu stofnvega, bætta umferðarstýringu, umferðaröryggi og fjölbreytta ferðamáta.
Við leggjum áherslu á að samgöngur í Kópavogi taki mið af þörfum Kópavogsbúa og að greiðar samgöngur og gott umferðarflæði verði áfram tryggð. Það útilokar ekki betri almenningssamgöngur eða fleiri samgöngukosti.
Við munum áfram leggja sjálfstætt mat á einstakar framkvæmdir út frá hagsmunum Kópavogsbúa. Það á meðal annars við um Arnarnesveg og gatnamót hans við Breiðholtsbraut. Bæjarstjóri hefur sagt að ef langar biðraðir og viðvarandi umferðartafir myndist komi til greina að gera gatnamótin að fullu mislæg, eins og upphaflega var gert ráð fyrir.
Markmiðið er einfalt: að byggja upp samgöngukerfi sem þjónar ólíkum ferðamátum og tryggir greiðar og skilvirkar samgöngur fyrir Kópavogsbúa.
Orðrétt er haft eftir bæjarstjóra í Morgunblaðinu 18 júlí sl.:
„Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs segir að til greina komi að gera ný gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar að fullu mislæg eins og upprunalega stóð til, ef langar biðraðir og umferðartafir verða þar viðvarandi vandamál.“
Andri Steinn Hilmarsson
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Vignir Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Bókun:
"Tillaga Miðflokksins er að minnka umsvif Borgarlínu í sáttmálanum og því óþarfi að tíunda fyrir undirritaðan um hvað sáttmálinn snýst. Í fyrri bókun undirritaðs er einnig bein vísun í orð bæjarstjóra úr sama viðtali."
Einar Jóhann Guðnason
Bókun:
"Samfylking leggur áherslu á að Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins nái fram að ganga. Sáttmálinn felur í sér mikilvægar samgöngubætur hvað varðar uppbyggingu stofnvega, eflingu almenningssamgangna o.fl. Endurskoðun á sáttmálanum mun einungis hafa í för með sér tafir á nauðsynlegum framkvæmdum.
Borgarlínan er mikilvægur hluti þeirrar uppbyggingar. Höfuðborgarsvæðið fer stækkandi og samgöngukerfið þarf að þróast í takt við það. Lausnin felst ekki eingöngu í því að byggja fleiri vegi eða mislæg gatnamót (þótt það sé sannarlega stór hluti af Samgöngusáttmálanum og raunar stærri þáttur en uppbygging Borgarlínunnar), heldur einnig að fjölga raunhæfum valkostum í samgöngum. Öflugar almenningssamgöngur geta dregið úr álagi á gatnakerfið og bætt umferðarflæði fyrir alla, sérstaklega þá sem kjósa að nota einkabílinn."
Jónas Már Torfason
Jónas Már Torfason vék af fundi kl. 12:13
Ásdís Kristjánsdóttir vék af fundi kl. 12:13