Stöðvarhvarf 12 og 14. Beiðni um skil á lóð
Málsnúmer: 26061981
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1342. fundur
Frá umhverfissviði, dags. 15.06.2026, lagt fram erindi varðandi skil á lóðunum Stöðvarhvarfi 12 og 14.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum beiðni um skil á lóðinni Stöðvarhvarfi 12 og 14 og felur umhverfissviði að auglýsa lóðirnar að nýju.
Fundarhlé hófst kl. 16:59, fundi fram haldið kl. 17:03.
Bókun:
„Miðflokkurinn hefur verulegar áhyggjur af þungri stöðu í skipulagsmálum. Lóðarhafar eru farnir að skila lóðum sökum seinagangs og krefjast bóta frá bænum, sem virðist breyta skilmálum og leiðbeiningum lóðaúthlutana að vild.
Á næsta fundi bæjarráðs verður á dagskrá tillaga Miðflokksins að fjölga afgreiðslufundum byggingarfulltrúa til að hraða afgreiðslu mála. Undirritaður telur mikilvægt að tillagan verði samþykkt enda er seinagangurinn ekki bara kostnaðarsamur fyrir byggingaraðila heldur sveitarfélagið líka.
Miðflokkurinn undirbýr einnig tillögu þess efnis að úttekt fari fram á umhverfissviði til að fá skýringar á þeirri stöðu sem er að teiknast upp og til að finna lausnir sem auka hraða í afgreiðslu án þess að gefa afslátt af gæðum. Minnka þarf þá fjarlægð sem skapast hefur milli byggingaraðila og bæjarins, samband sem var mjög gott á árum áður.
Auka þarf skilvirkni, sérstaklega þegar mikil uppbygging er í vændum í efri byggðum bæjarins og á vestanverðu Kársnesi. Að mati Miðflokksins benda dæmin til útbólgins kerfis, óþarfrar skriffinnsku, ósveigjanleika og að málaflokkurinn sé á sjálfstýringu.
Þessu verður að breyta.“
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Skilvirkni í skipulags- og byggingarmálum er sameiginlegt hagsmunamál bæjarins og uppbyggingaraðila. Meirihlutinn tekur undir mikilvægi þess að bæta verklag þar sem mögulegt er og bendir á að nú þegar er unnið að því hjá Kópavogsbæ að auka skilvirkni við afgreiðslu erinda. Ávallt er vilji til frekari umbóta, enda séu þær í samræmi við lög og reglur og tryggi góða stjórnsýslu."
Andri Steinn Hilmarsson
Elísabet Berglind Sveinsdóttir
Orri Vignir Hlöðversson
Karen Rúnarsdóttir
Hjördís Ýr Johnson
Guðmundur Jóhann Jónsson
Hildur Einarsdóttir
Bókun:
"Undirrituð taka undir bókun Miðflokksins að því er varðar mikilvægi þess að bæta þjónustu við byggingaraðila og lóðarhafa. Undirrituð fagna því sömuleiðis að meirihlutinn taki vel í umleitan um að bæta verklag."
Jónas Már Torfason
Eydís Inga Valsdóttir
María Ellen Steingrímsdóttir
02
Bæjarráð - 3258. fundur
Frá umhverfissviði, dags. 15.06.2026, lagt fram erindi varðandi skil á lóðunum Stöðvarhvarfi 12 og 14.
Umræður.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar