Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga áheyrnarfulltrúa í skipulags- og umhverfisráði Beitis Ólafssonar um Guðmundarlund

Málsnúmer: 26061983

Ferill máls

01

Skipulags- og umhverfisráð - 36. fundur

Lögð fram tillaga áheyrnarfulltrúa Beitis Ólafssonar dags. 1. október 2026 um að skipulags- og umhverfisráð boði fulltrúa Skógræktarfélags Kópavogs á fund ráðsins til að fara yfir stöðu Guðmundarlundar.

Tillaga felld með fimm atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Árnínu Steinunnar Kristjánsdóttur, Kristins Jakobssonar, Kristins Dags Gissurarsonar.

Hákon Gunnarsson og Eydís Inga Valsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Bókun:

„Guðmundarlundur er ein af perlum Kópavogs sem við munum standa vörð um í framtíðarskipulagi Kópavogsbæjar. Þar sem tillaga áheyrnarfulltrúa Miðflokksins, sem snýr að skipulags- og umhverfisráði, um framtíðarsýn á skipulag nágrennisins bendum við á að bæjarstjórn Kópavogs samþykkti í júní 2025 að auglýsa skipulagslýsingu um breytingu á aðalskipulagi Kópavogs ásamt deiliskipulagsbreytingum á Vatnsendahlíð, Vatnsvík og Kjóavöllum. Markmiðið þar er að skipuleggja íbúðarbyggð í góðu samhengi við núverandi byggð og í góðum tengslum við náttúru svæðisins. Meirihlutinn vekur athygli á því að Skógræktarfélag Kópavogs er tilgreint meðal helstu samráðs- og umsagnaraðila í því ferli og verður félaginu þannig tryggð aðkoma að ferlinu eftir réttum ferlum. Telja undirrituð óheppilegt í því ljósi að taka einstaka aðila fram hjá því ferli eins og hér er lagt til og greiðum við því atkvæði á móti tillögunni.“

Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Kristinn Jakobsson og Kristinn Dagur Gissurarson.

Bókun:

„Það er undirrituðum með öllu óskiljanlegt hvers vegna meirihluti vilji ekki boða Skógræktarfélag Kópavogs á sinn fund til að fara yfir stöðu mála í Guðmundarlundi. Augljóst er að ráðast þarf í endurbætur á svæðinu, bæði með tilliti til öryggismála og til að hámarka framtíðarnýtingu þess. Með því að fá fulltrúa félagsins á fund mætti greina nákvæmlega hvaða úrbóta er þörf og samþætta þær fyrirhugaðari uppbyggingu í Vatnsendahlíð. Áætlað er að um 200.000 manns sæki Guðmundarlund heim árlega og er svæðið mikið nýtt til útikennslu af leik- og grunnskólum Kópavogs. Skógræktarfélagið hefur staðið sig afgerandi vel í úmsjón lundarins. Það er því komið að sveitarfélaginu að koma til móts við þarfir félagsins og íbúa Kópavogs, ráðast í nauðsynlegar úrbætur, viðurkenna tilverurétt/mikilvægi svæðisins og fjárfesta í framtíð Guðmundarlundar.“

Beitir Ólafsson.

Bókun:

„Þjónustusamningur Skógræktarfélags Kópavogs og Kópavogsbæjar er samþykktur af bæjarráði. Leggjum við til að fulltrúi Miðflokksins taki það upp við sinn fulltrúa á þeim vettvangi að fylgja málinu eftir séu einhverjar athugasemdir þar að undangenginni umfjöllun.“

Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Kristinn Jakobsson og Kristinn Dagur Gissurarson.

02

Skipulags- og umhverfisráð - 31. fundur

Lögð fram til umræðu tillaga Beitis Ólafssonar áheyrnarfulltrúa dags. 29. júní 2026 um að bjóða fulltrúum Skógræktarfélags Kópavogs á fund skipulags- og umhverfisráðs til að ræða stöðu Guðmundarlundar, aðstöðu og mögulegar úrbætur.

Lagt fram. Umræður.