Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga um lengingu opnunartíma sundlauga Kópavogs

Málsnúmer: 26062492

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1342. fundur

Frá fulltrúum Samfylkingar lögð fram tillaga um lengingu opnunartíma í sundlaugum Kópavogs.

Bæjarstjórn vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.

Fundarhlé hófst kl. 16:17, fundi fram haldið kl. 16:27.

Bókun:

"Vinna er þegar hafin við lengingu opnunartíma sundlauganna í Kópavogi í samráði við stjórnendur þeirra sem kynnt verður fyrir bæjarráði á næsta fundi ráðsins 2. júlí nk. ásamt útfærslu. Meirihlutinn fagnar því að samstaða sé um málið og tekur undir að um jákvætt lýðheilsumál sé að ræða."

Andri Steinn Hilmarsson

Elísabet Berglind Sveinsdóttir

Orri Vignir Hlöðversson

Karen Rúnarsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Guðmundur Jóhann Jónsson

Hildur Einarsdóttir

Fundarhlé hófst kl. 16:28, fundi fram haldið kl. 16:35

Bókun:

"Bæjarfulltrúar minnihlutans fagna því að málið sé í vinnslu. Vel er liðið á sumar og því er fullt tilefni til að hafa hraðar hendur, enda um einfalt mál að ræða og full samstaða um það í bæjarstjórn."

Jónas Már Torfason

Eydís Inga Valsdóttir

María Ellen Steingrímsdóttir

Einar Jóhannes Guðnason