Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Ráðning bæjarstjóra 2026-2030

Málsnúmer: 2606511

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1341. fundur

Frá fulltrúum meirihluta er lögð fram tillaga um að Ásdís Kristjánsdóttir verði ráðin í starf bæjarstjóra Kópavogsbæjar.

Tillaga bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar um frestun:

"Lagt er til að afgreiðslu bæjarstjórnar á ráðningarsamningi bæjarstjóra verði frestað og formanni bæjarráðs falið að uppfæra drögin með þannig hætti að heildarlaun bæjarstjóra séu tilgreind, í stað þess að almenn laun bæjarstjóra séu tilgreind en við þau bætast hinnar ýmsu viðbótargreiðslur og uppfærslur á launum. Í ljósi hækkunar þingfarakaups 1. júlí nk., sem laun bæjarstjóra fylgir, er lagt til að samningsdrögin tilgreini sérstaklega áætluð laun samkvæmt þeirri uppfærslu."

Jónas Már Torfason

Eydís Inga Valsdóttir

Bæjarstjórn hafnar tillögunni með 7 atkvæðum, gegn atkvæðum Jónasar M. Torfasonar, Eydísar I. Valdóttur og hjásetu Einars J. Guðnasonar og Maríu E. Steingrímsdóttur.

Fundarhlé hófst kl. 16:39, fundi fram haldið kl. 17:44.

Bókun:

"Samfylking telur mikilvægt að kjör pólitískra fulltrúa og æðstu ráðamanna bæjarins séu gagnsæ, en ráðningarsamningur bæjarstjóra er það ekki. Laun hækka umtalsvert 1. júlí nk., eftir tæpan mánuð, en ekki hefur verið gerð grein fyrir endanlegri fjárhæð. Þá vekur athygli að bæjarstjóri, sem er í fullu starfi sem pólitískur fulltrúi en ekki einungis embættismaður, fær jafnframt greitt sem bæjarfulltrúi en strípað starf bæjarfulltrúa er skilgreint sem um 25% starfshlutfall, án tillits til nefndarsetu. Auk þess fær hann greitt fyrir setu í stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, sem telja verður eðlilegan hluta af störfum hans, og akstursstyrk sem nemur tæplega 200 þúsund krónum á mánuði, án þess að gerð sé krafa um akstursdagbók í samræmi við leiðbeiningar Skattsins.

Bæjarfulltrúar Samfylkingar gera athugasemd við gagnsæi í kjaramálum bæjarstjóra. Það á ekki að vera flókið reikningsdæmi að finna heildarlaun kjörinna fulltrúa, sér í lagi þegar forsendurnar eru óljósar eða óaðgengilegar. Bæjarfulltrúar Samfylkingar leggja því til að heildarlaun bæjarstjóra verði ákveðin sem ein heildargreiðsla fyrir störf í þágu bæjarins, en ekki bútasaumur ólíkra greiðslna. Þótt sambærilegt fyrirkomulag kunni að tíðkast í nágrannasveitarfélögum á Kópavogur að vera í fremstu röð hvað varðar gagnsæi, sér í lagi þegar pólitískir fulltrúar ákveða eigin laun."

Jónas Már Torfason og Eydís Inga Valsdóttir, bæjarfulltrúar Samfylkingar


Bókun:

"Með samþykkt bæjarstjórnar Kópavogs þann 29. apríl 2025 voru gerðar breytingar á ráðningarkjörum bæjarstjóra, m.a. í þágu gagnsæis. Í breytingunum var skýrt aðgreint á milli launa fyrir starf bæjarstjóra annars vegar og þóknana fyrir setu í bæjarstjórn, ráðum og nefndum hins vegar.

Með breytingunum var í senn farið að lögum og gagnsæi aukið í launasetningu fyrir starf bæjarstjóra hjá Kópavogsbæ. Þar að auki var horfið frá fyrra fyrirkomulagi þar sem launin hækkuðu tvisvar á ári m.v. launavísitölu, og þess í stað taki launin breytingum í samræmi við þróun þingfararkaups einu sinni á ári, þann 1. júlí ár hvert, en þau munu samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðherra þá taka hækkun um 3,5%."

Andri S. Hilmarsson

Ásdís Kristjánsdóttir

Elísabet B. Sveinsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Guðmundur J. Jónsson

Hildur Einarsdóttir

Karen Rúnarsdóttir


Breytingartillaga bæjarstjórnar við 6. gr. ráðningarsamnings sem verður svofelld og kemur í stað þeirrar sem fyrir er:

"Laun samkvæmt 1. gr. greiðast í 6 mánuði eftir að ráðningartíma (kjörtímabili) lýkur. Sé bæjarstjóri endurráðinn kemur 6. gr. ekki til álita.

Láti bæjarstjóri af störfum fyrir lok kjörtímabilsins og hefur störf fyrir annan aðila, skulu launagreiðslur samkvæmt þessari grein falla niður ef laun er nýja starfinu fylgja eru jöfn eða hærri en þau er hann naut sem bæjarstjóri. Ef launin í nýja starfinu eru lægri skal greiða bæjarstjóra launamismuninn til loka 6 mánaða tímabilsins."

Bæjarstjórn samþykkir breytingartillöguna með 11 atkvæðum.

Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum og hjásetu Jónasar Más Torfasonar, Eydísar Ingu Valdóttur og Maríu Ellenar Steingrímsdóttur tillögu um að ráða Ásdísi Kristjánsdóttir í stöðu bæjarstjóra Kópavogs í samræmi við framlagðan ráðningarsamning.