Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1341. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Hjördís Ýr Johnson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
  • Guðmundur Jóhann Jónsson - aðalmaður
  • Hildur Einarsdóttir - aðalmaður
  • Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
  • Jónas Már Torfason - aðalmaður
  • Eydís Inga Valsdóttir - aðalmaður
  • Einar Jóhannes Guðnason - aðalmaður
  • María Ellen Steingrímsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Niðurstöður sveitarstjórnarkosninga 2026-2030

Formaður yfirkjörstjórnar, Helgi Magnússon, flytur skýrslu kjörstjórnar skv. 119. gr. kosningarlaga nr. 112/2021.

Formaður yfirkjörstjórnar, Helgi Magnússon, tók til máls með leyfi fundarins og flutti skýrslu kjörstjórnar skv. 119. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Á kjörskrá í kosningum voru 30.924. Alls kusu 20.951 og kosningaþáttaka var 67,7%.

Atkvæði féllu þannig:

Eftirtaldir hlutu kosningu sem aðal- og varafulltrúar í bæjarstjórn Kópavogs:

Kjörnir aðalfulltrúar:

Ásdís Kristjánsdóttir Sjálfstæðisflokki

Hjördís Ýr Johnson Sjálfstæðisflokki

Andri Steinn Hilmarsson Sjálfstæðisflokki

Elísabet Sveinsdóttir Sjálfstæðisflokki

Guðmundur Jóhann Jónsson Sjálfstæðisflokki

Hildur Einarsdóttir Sjálfstæðisflokki

Orri Vignir Hlöðversson Framsóknarflokki

Jónas Már Torfason Samfylkingu

Eydís Inga Valsdóttir Samfylkingu

Einar Jóhannes Guðnason Miðflokki

María Ellen Steingrímsdóttir Viðreisn

Kjörnir varafulltrúar:

Karen Rúnarsdóttir Sjálfstæðisflokki

Kristinn Jakobsson Sjálfstæðisflokki

Sigrún Bjarnadóttir Sjálfstæðisflokki

Leifur Andri Leifsson Sjálfstæðisflokki

Ragna Klara Magnúsdóttir Sjálfstæðisflokki

Guðný Svandís Guðjónsdóttir Sjálfstæðisflokki

Björg Baldursdóttir Framsóknarflokki

Hákon Gunnarsson Samfylkingu

Sólveig Skaftadóttir Samfylkingu

Nína Berglind Sigurgeirsdóttir Miðflokki

Pétur Björgvin Sveinsson Viðreisn


02

Kosning forseta bæjarstjórnar 2026-2030

Kosning forseta bæjarstjórnar til fjögurra ára.

Elísabet Berglind Sveinsdóttir var kosin forseti með 11 atkvæðum.

03

Ráðning bæjarstjóra 2026-2030

Frá fulltrúum meirihluta er lögð fram tillaga um að Ásdís Kristjánsdóttir verði ráðin í starf bæjarstjóra Kópavogsbæjar.

Tillaga bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar um frestun:

"Lagt er til að afgreiðslu bæjarstjórnar á ráðningarsamningi bæjarstjóra verði frestað og formanni bæjarráðs falið að uppfæra drögin með þannig hætti að heildarlaun bæjarstjóra séu tilgreind, í stað þess að almenn laun bæjarstjóra séu tilgreind en við þau bætast hinnar ýmsu viðbótargreiðslur og uppfærslur á launum. Í ljósi hækkunar þingfarakaups 1. júlí nk., sem laun bæjarstjóra fylgir, er lagt til að samningsdrögin tilgreini sérstaklega áætluð laun samkvæmt þeirri uppfærslu."

Jónas Már Torfason

Eydís Inga Valsdóttir

Bæjarstjórn hafnar tillögunni með 7 atkvæðum, gegn atkvæðum Jónasar M. Torfasonar, Eydísar I. Valdóttur og hjásetu Einars J. Guðnasonar og Maríu E. Steingrímsdóttur.

Fundarhlé hófst kl. 16:39, fundi fram haldið kl. 17:44.

Bókun:

"Samfylking telur mikilvægt að kjör pólitískra fulltrúa og æðstu ráðamanna bæjarins séu gagnsæ, en ráðningarsamningur bæjarstjóra er það ekki. Laun hækka umtalsvert 1. júlí nk., eftir tæpan mánuð, en ekki hefur verið gerð grein fyrir endanlegri fjárhæð. Þá vekur athygli að bæjarstjóri, sem er í fullu starfi sem pólitískur fulltrúi en ekki einungis embættismaður, fær jafnframt greitt sem bæjarfulltrúi en strípað starf bæjarfulltrúa er skilgreint sem um 25% starfshlutfall, án tillits til nefndarsetu. Auk þess fær hann greitt fyrir setu í stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, sem telja verður eðlilegan hluta af störfum hans, og akstursstyrk sem nemur tæplega 200 þúsund krónum á mánuði, án þess að gerð sé krafa um akstursdagbók í samræmi við leiðbeiningar Skattsins.

Bæjarfulltrúar Samfylkingar gera athugasemd við gagnsæi í kjaramálum bæjarstjóra. Það á ekki að vera flókið reikningsdæmi að finna heildarlaun kjörinna fulltrúa, sér í lagi þegar forsendurnar eru óljósar eða óaðgengilegar. Bæjarfulltrúar Samfylkingar leggja því til að heildarlaun bæjarstjóra verði ákveðin sem ein heildargreiðsla fyrir störf í þágu bæjarins, en ekki bútasaumur ólíkra greiðslna. Þótt sambærilegt fyrirkomulag kunni að tíðkast í nágrannasveitarfélögum á Kópavogur að vera í fremstu röð hvað varðar gagnsæi, sér í lagi þegar pólitískir fulltrúar ákveða eigin laun."

Jónas Már Torfason og Eydís Inga Valsdóttir, bæjarfulltrúar Samfylkingar


Bókun:

"Með samþykkt bæjarstjórnar Kópavogs þann 29. apríl 2025 voru gerðar breytingar á ráðningarkjörum bæjarstjóra, m.a. í þágu gagnsæis. Í breytingunum var skýrt aðgreint á milli launa fyrir starf bæjarstjóra annars vegar og þóknana fyrir setu í bæjarstjórn, ráðum og nefndum hins vegar.

Með breytingunum var í senn farið að lögum og gagnsæi aukið í launasetningu fyrir starf bæjarstjóra hjá Kópavogsbæ. Þar að auki var horfið frá fyrra fyrirkomulagi þar sem launin hækkuðu tvisvar á ári m.v. launavísitölu, og þess í stað taki launin breytingum í samræmi við þróun þingfararkaups einu sinni á ári, þann 1. júlí ár hvert, en þau munu samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðherra þá taka hækkun um 3,5%."

Andri S. Hilmarsson

Ásdís Kristjánsdóttir

Elísabet B. Sveinsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Guðmundur J. Jónsson

Hildur Einarsdóttir

Karen Rúnarsdóttir


Breytingartillaga bæjarstjórnar við 6. gr. ráðningarsamnings sem verður svofelld og kemur í stað þeirrar sem fyrir er:

"Laun samkvæmt 1. gr. greiðast í 6 mánuði eftir að ráðningartíma (kjörtímabili) lýkur. Sé bæjarstjóri endurráðinn kemur 6. gr. ekki til álita.

Láti bæjarstjóri af störfum fyrir lok kjörtímabilsins og hefur störf fyrir annan aðila, skulu launagreiðslur samkvæmt þessari grein falla niður ef laun er nýja starfinu fylgja eru jöfn eða hærri en þau er hann naut sem bæjarstjóri. Ef launin í nýja starfinu eru lægri skal greiða bæjarstjóra launamismuninn til loka 6 mánaða tímabilsins."

Bæjarstjórn samþykkir breytingartillöguna með 11 atkvæðum.

Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum og hjásetu Jónasar Más Torfasonar, Eydísar Ingu Valdóttur og Maríu Ellenar Steingrímsdóttur tillögu um að ráða Ásdísi Kristjánsdóttir í stöðu bæjarstjóra Kópavogs í samræmi við framlagðan ráðningarsamning.


04

Kópavogur 2030 - áfram í sókn!

Frá bæjarstjóra, kynntur málefnasamningur um meirihlutasamstarf í Kópavogi 2026-2030.

Lagt fram.

Fundarhlé hófst kl. 19:36, fundi fram haldið kl. 20:17

Bókun bæjarfulltrúa Miðflokks:

"Miðflokkurinn fagnar þeim fjölda mála sem ratað hafa af málefnaskrá Miðflokksins inn í málefnasamning meirihlutans, þó lítið sé um mælanleg markmið.

Áhrif spjaldtölvuvæðingarinnar eru augljós og er ekki þörf á rannsóknum heldur aðgerðum, hið sama á við um skóla án aðgreiningar og samræmd próf.

Miðflokkurinn fagnar því að heimgreiðslur nái til 12 mánaða barna en saknar þess að upphæðin sé ekki hækkuð ásamt niðurgreiðslum til dagforeldra. Hægt væri að líta til Hafnarfjarðarbæjar sem mun hækka þessa upphæð í 230.000 kr. á mánuði.

Miðflokkurinn mun þrýsta á efndir meirihlutans á loforðum nr. 22 og 29 um bílastæði og fjölskyldubílinn. Breyta þarf aðalskipulagi bæjarins til að uppfylla þessi loforð meirihlutans og vill Miðflokkurinn vita hvenær sú umræða sé áætluð.

Við munum standa vörð um Borgarholtsbrautina, berjast fyrir afturkalli á óhóflegum þéttingaráformum við Silfur- og Sunnusmára sem og öðrum óhóflegum þéttingaráformum, þrýsta á uppfærslu á innanbæjarleið Strætó og kalla eftir endurskoðun áforma um Borgarlínu og þéttingarstefnu bæjarins.

Að lokum bendum við bæjarstjórn á mál sem við teljum brýnt að fara í strax: Endurbætur í Guðmundarlundi með framræsingu svæðisins og betri tengingu við rafmagns- og vatnsleiðslur. Miðflokkurinn mun leggja fram tillögu þess efnis á næsta fundi."

Einar Jóhannes Guðnason


Bókun:

"Meirihlutinn fagnar yfirlýstum vilja um samstarf í þeim málefnum sem ekki ríkir ágreiningur um."

Ásdís Kristjánsdóttir

Andri S. Hilmarsson

Elísabet B. Sveinsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Guðmundur J. Jónsson

Hildur Einarsdóttir

Karen Rúnarsdóttir


Bókun bæjarfulltrúa Samfylkingar:

"Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar lýsa áhyggjum af þeim útgjöldum sem lofað er í málefnasamningi Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar. Flest markmið samningsins eru útgjaldaaukandi og mörg um töluverðar fjárhæðir. Svigrúm í rekstri Kópavogsbæjar er takmarkað, enda hafa fjárfestingar hingað til treyst um of á einskiptistekjur af lóðasölu. Slíkt er ekki sjálfbært og veltir vandanum fram í tímann. Þá stendur lausafé bæjarins ekki undir skammtíma skuldum hans, sem leiðir til þess að bærinn þarf sífellt að ýta skammtímalánum á undan sér. Það er ekki trúverðugt að lofa meiriháttar útgjöldum á sama tíma og lækka á skatta og greiða niður skuldir. Af skorti á svörum oddvita meirihlutans að dæma hafa þessi útgjöld hvorki verið kostnaðarmetin né liggja fyrir áform um fjármögnun þeirra.

Samfylkingin saknar einnig áherslu úr fyrri málefnasamningi meirihlutans um uppbyggingu óhagnaðardrifins leiguhúsnæðis, en þörfin í bænum er mikil. Meirihlutinn vísar til séreignastefnunnar og þess að flestir vilji búa í eigin húsnæði, en lítur fram hjá muninum á vilja og getu. Stór hluti vinnandi fólks hefur ekki nægar tekjur til að kaupa húsnæði. Meirihlutinn skilar auðu og hefur ákveðið að gera ekkert fyrir þann hóp venjulegra Kópavogsbúa sem stritar á núverandi húsnæðismarkaði."

Jónas Már Torfason

Eydís Inga Valsdóttir


Bókun:

"Meirihlutinn hafnar þeirri mynd sem er dregin upp í bókun bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar.

Árin 2024 og 2025 eru bestu rekstrarár Kópavogs í 18 ár. Rekstrarniðurstaða 2025 var jákvæð um 4,6 milljarða króna og þegar leiðrétt er fyrir sölu lóðaréttinda var rekstur samstæðunnar að skila 4,8 milljörðum króna. Heildarskuldir og skuldbindingar hafa jafnframt lækkað að raunvirði og skuldahlutfall fer lækkandi þrátt fyrir miklar og nauðsynlegar fjárfestingar í leik- og grunnskólum og öðrum innviðum. Allt tal um ósjálfbæran rekstur sem knúinn er áfram af einskiptistekjum af lóðasölu eða vandanum ýtt á undan sér stenst því enga skoðun.

Málefnasamningur meirihlutans er engu að síður metnaðarfullur. Það er eðli málefnasamnings að setja fram stefnu og áherslur; einstök verkefni eru síðan kostnaðarmetin og fjármögnuð í gegnum fjárhagsáætlunargerð, þar sem minnihlutanum gefst fullt færi á aðkomu og aðhaldi.

Komi til þess að Kópavogsbær stofni til eigin hitaveitu er ljóst að stofnkostnaðurinn verði umtalsverður, en þar koma vitanlega tekjur á móti og er mikið hagsmunamál til langrar framtíðar.

Stefna meirihlutaflokkanna varðandi húsnæðisuppbyggingu var skýr í aðdraganda kosninganna og endurspeglast hún í málefnasamningnum. Þar er svo sannarlega ekki skilað auðu þótt áherslurnar séu aðrar en Samfylkingin hefur í málaflokknum.

Ásdís Kristjánsdóttir

Andri S. Hilmarsson

Elísabet B. Sveinsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Guðmundur J. Jónsson

Hildur Einarsdóttir

Karen Rúnarsdóttir


Bókun bæjarfulltrúa Viðreisnar:

"Viðreisn fagnar ýmsum áherslum í málefnasamningi meirihlutans, meðal annars auknum stuðningi við börn í grunnskólum, uppbyggingu stúdentaíbúða, bættum almenningssamgöngum, forvarnarverkefnum fyrir börn og eldri borgara, auk áforma um bæjarhátíð og skilvirkari afgreiðslu skipulagsmála.

Hinsvegar gerum við athugasemdir við nokkra þætti samningsins. Viðreisn bendir á að gjaldskrám sveitarfélagsins hefur ekki öllum verið stillt í hóf, hér er vísað til leikskólagjalda. Við teljum mikilvægt að skoða leiðir til að létta álögum af barnafjölskyldum. Þá er áréttað að fasteignagjöld verði að meta út frá raunverulegum kostnaði í krónum en ekki einungis prósentuhlutföllum.

Viðreisn lýsir einnig efasemdum um aukna áherslu á heimgreiðslur og telur mikilvægara að jafna stöðu foreldra óháð því hvort ung börn þeirra séu með leikskólapláss eða noti önnur dagvistunarúrræði.

Viðreisn mun styðja góð mál en jafnframt veita meirihlutanum aðhald með hagsmuni Kópavogsbúa að leiðarljósi."

María Ellen Steingrímsdóttir


Bókun:

"Meirihlutinn fagnar yfirlýstum vilja um samstarf í þeim málefnum sem ekki ríkir ágreiningur um. Ástæða er þó til þess að árétta að mismunur á fasteignagjöldum í upphafi síðasta kjörtímabils og við lok kjörtímabilsins nemur um fjórum milljörðum króna og gjöldin eru nú þau lægstu á höfuðborgarsvæðinu. Í meirihlutasáttmálanum kemur skýrt fram að stefnan sé að þau verði áfram þau lægstu hér í Kópavogi."

Ásdís Kristjánsdóttir

Andri S. Hilmarsson

Elísabet B. Sveinsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Guðmundur J. Jónsson

Hildur Einarsdóttir

Karen Rúnarsdóttir

05

Kosning 1. og 2. varaforseta 2026-2030

Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar til fjögurra ára.

Einar Jóhannes Guðnason kosinn 1. varaforseti með 11 atkvæðum.

Orri Vignir Hlöðversson kosinn 2. varaforseti með 11 atkvæðum.

06

Kosningar í forsætisnefnd 2026-2030

Aðalmenn eru forseti bæjarstjórnar ásamt varaforsetum. Kosning þriggja varamanna í forsætisnefnd til fjögurra ára.

Aðalmenn eru forseti bæjarstjórnar ásamt varaforsetum:

Elísabet Berglind Sveinsdóttir, forseti bæjarstjórnar

Einar Jóhannes Guðnason, 1. varaforseti

Orri Vignir Hloðversson, 2. varaforseti.

Varamenn:

Guðmundur Jóhann Jónsson

Nína Berglind Sigurgeirsdóttir

Björg Baldursdóttir


Áheyrnarfulltrúar kosnir:

Eydís Inga Valsdóttir

María Ellen Steingrímsdóttir

Varaáheyrnarfulltrúar:

Jónas Már Torfason

Pétur Björgvin Sveinsson

07

Kosningar í bæjarráð 2026-2030

Kosning fimm fulltrúa í bæjarráð sem aðalmenn til fjögurra ára. Þeir bæjarfulltrúar og varabæjarfulltrúar, sem kosningu hafa hlotið af sama lista og hinn kjörni bæjarráðsmaður eru varamenn í þeirri röð sem þeir skipuðu listann.

Kosning formanns og varaformanns bæjarráðs til fjögurra ára.

Kosningu hlutu:

Aðalmenn:

Andri Steinn Hilmarsson

Orri Vignir Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson

Jónas Már Torfason

Einar Jóhannes Guðnason

Varamenn:

Elísabet Berglind Sveinsdóttir

Guðmundur Jóhann Jónsson

Björg Baldursdóttir

Eydís Inga Valsdóttir

Nína Berglind Sigurgeirsdóttir


Áheyrnarfulltrúi:

María Ellen Steingrímsdóttir

Varaáheyrnarfulltrúi:

Pétur Björgvin Sveinsson


Formaður bæjarráðs kosinn:

Andri Steinn Hilmarsson

Varaformaður:

Orri Vignir Hlöðversson

08

Kosningar í skipulags - og umhverfisráð 2026-2030

Kosning sjö aðalmanna og jafnmargra til vara í skipulags- og umhverfisráð.

Bæjarstjórn kýs formann og varaformann.

Kosningu hlutu:

Aðalmenn:

Hjördís Ýr Johnson

Andri Steinn Hilmarsson

Árnína Steinunn Kristjánsdóttir

Guðmundur Jóhann Jónsson

Kristinn Dagur Gissurarson

Eydís Inga Valsdóttir

Sólveig Skaftadóttir

Varamenn:

Ármann Kr. Ólafsson

Kristinn Jakobsson

Leifur Andri Leifsson

Karen Rúnarsdóttir

Orri Vignir Hlöðversson

Jónas Már Torfason

Orri Thor Eggertson


Áheyrnarfulltrúar:

Pétur Björgvin Sveinsson

Beitir Ólafsson


Varaáheyrnarfulltrúar:

Hafsteinn Hrannar Ásgrímsson

Einar Jóhannes Guðnason



Formaður var kosinn: Hjördís Ýr Johnson

Varafomaður var kosinn: Andri Steinn Hilamrsson

09

Kosningar í menntaráð 2026-2030

Kosning sjö aðalmanna og jafnmargra til vara í menntaráð. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann.

Kosningu hlutu:

Aðalfulltrúar:

Karen Rúnarsdóttir, formaður

Hildur Karen Sveinbjarnadóttir, varaformaður

Arnór Aðalsteinsson

Hildur Einarsdóttir

Gunnar Sær Ragnarsson

María Ellen Steingrímsdóttir

Bryndís Rut Logadóttir

Varafulltrúar

Heiðdís Geirsdóttir

Guðný Svandís Guðjónsdóttir

Jóhann Sveinn Friðleifsson

Berglind Haraldsdóttir

Bergur Þorri Þorbergsson

Irpa Fönn Hlynsdóttir

Elvar Bjarki Helgason

Áheyrnarfulltrúar:

Björn Þór Rögnvaldsson

Nína Berglind Sigurgeirsdóttir

Varaáheyrnarfulltrúar:

Örn Arnarson

Ævar Örn Jóhannsson


10

Kosningar í velferðarráð 2026-2030

Kosning sjö aðalmanna og jafnmargra til vara í velferðarráð. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann.

Kosningu hlutu:

Aðalfulltrúar:

Björg Baldursdóttir, formaður

Sigrún Bjarnadóttir, varaformaður

Kristinn Jakobsson

Elísabet Berglind Sveinsdóttir

Hannes Þórður Hafstein

Sólveig Skaftadóttir

Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir

Varafulltrúar

Svava Halldóra Friðgeirsdóttir

Haukur Már Hauksson

Gunnlaugur Ragnarsson

Signý Skúladóttir

Jóhann Sveinn Friðleifsson

Jónas Már Torfason

Bryndís Rut Logadóttir

Áheyrnarfulltrúi

Thelma Bergmann Árnadóttir

Varaáheyrnarfulltrúi

Trausti Örn Þórðarson

11

Kosningar í menningar- og mannlífsnefnd 2026-2030

Kosning fimm aðalmanna og jafnmargra til vara í lista- og menningarráð. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann.

Kosningu hlutu:

Aðalfulltrúar:

Elísabet B. Sveinsdóttir, formaður

Guðný Svandís Guðjónsdóttir, varaformaður

Sveinn Gíslason

Margrét Tryggvadóttir

Ásgeir Þór Jónsson

Varafulltrúar:

Helga Guðrún Jónasdóttir

Birgir Ari Óskarsson

Þórunn Matthíasdóttir

Sigrún Skaftadóttir

Þór Hinriksson

Áheyrnarfulltrúi:

Einar Jóhannes Guðnason

Varaáheyrnarfulltrúi:

Nína Berglind Sigurgeirsdóttir

12

Kosning í innkaupanefnd 2026-2030

Kosning fimm aðalmanna og fimm varamanna. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann.

Kosningu hlutu:

Aðalfulltrúar:

Guðmundur Jóhann Jónsson, formaður

Ragna Klara Magnúsdóttir, varaformaður

Svava Friðgeirsdóttir

Orri Thor Eggertsson

Elvar Bjarki Helgason

Varafulltrúar:

Halla Björg Evans

Jóhann Sveinn Friðleifsson

Bergrún Ósk Ólafsdóttir

Kristján B. Ólafsson

Auður Gunnarsdóttir

Áheyrnarfulltrúi

Trausti Örn Þórðarson

Varaáheyrnarfulltrúi

Beitir Ólafsson



13

Kosningar í lýðheilsu - og íþróttanefnd 2026-2030

Kosning fimm aðalmanna og jafnmargra til vara í lýðheilsu -og íþróttanefnd. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann.

Kosningu hlutu:

Aðalfulltrúar:

Hildur Einarsdóttir, formaður

Leifur Andri Leifsson, varaformaður

Heiðdís Geirsdóttir

Örn Arnarson

Ævar Örn Jóhannsson

Varafulltrúar:

Kristinn Jakobsson

Haukur Már Hauksson

Jónas Skúlason

Friðmey Jónsdóttir

Thelma Bergmann Árnadóttir

Áheyrnarfulltrúi

Arnar Grétarsson

Varaáheyrnarfulltrúi

Andrés Pétursson

14

Kosningar í ungmennaráð 2026-2030

Kosning tveggja fulltrúa sem starfa sem tengiliðir bæjarstjórnar við ungmennaráð.

Kosningu hlutu:

Aðalfulltrúar:

Elísabet Berglind Sveinsdóttir

Jónas Már Torfason

Varafulltrúar

Andri Steinn Hilmarsson

Eydís Inga Valsdóttir

15

Kosningar í notendaráð í málefnum fatlaðs fólks 2026-2030

Kosning þriggja fulltrúa og jafnmargra til vara. Bæjarstjórn kýs formann.

Kosningu hlutu:

Aðalfulltrúar:

Signý Skúladóttir, formaður

Arnar Þór Pétursson

Trausti Örn Þórðarson

Varafulltrúar:

Haukur Már Hauksson

Bergur Þorri Benjamínsson

Nína Berglind Sigurgeirsdóttir

16

Kosningar í öldungaráð 2026-2030

Kosning þriggja aðalmanna og jafnmargra til vara í öldungaráð. Bæjarstjórn kýs formann ráðsins.

Kosningu hlutu:

Aðalfulltrúar:

Helga Guðrún Jónasdóttir, formaður

Bergur Þorri Benjamínsson

Jónas Már Torfason

Varafulltrúar:

Sigrún Bjarnadóttir

Ragna Klara Magnúsdóttir

Eydís Inga Valsdóttir

17

Kosningar í stjórn SSH 2026-2030

Kosning eins aðalmanns og eins til vara í stjórn SSH.

Kosningu hlutu:

Aðalmaður:

Ásdís Kristjánsdóttir

Varamaður:

Andri Steinn Hilmarsson.

18

Kosningar í stjórn Sorpu bs. 2026-2030

Kosning eins aðalmanns og eins til vara í stjórn Sorpu bs. Kosið er til tveggja ára.

Kosningu hlutu

Andri Steinn Hilmarsson, aðalmaður

Hjördís Ýr Johnson varamaður.

19

Kosningar í stjórn Strætó bs. 2026-2030

Kosning eins aðalmanns og eins til vara í stjórn Strætó bs. Kosið er til tveggja ára.

Kosningu hlutu:

Guðmundur Jóhann Jónsson og til vara Andri Steinn Hilmarsson.

20

Kosningar í stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2030

Kosning eins aðalmanna og eins varamanns.

Kosningu hlutu:

Aðalmaður:

Ásdís Kristjánsdóttir

Varamaður:

Orri V. Hlöðversson

21

Kosningar fulltrúa á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026-2030

Kosning átta fulltrúa á landsþing Sambandsins og jafn margra til vara.

Kosningu hlutu:

Aðalfulltrúar:

Hjördís Ýr Johnson

Andri Steinn Hilmarsson

Elísabet Berglind Sveinsdóttir

Guðmundur Jóhann Jónsson

Orri V. Hlöðversson

Jónas Már Torfason

Eydís Inga Valsdóttir

María Ellen Steingrímsdóttir

Varafulltrúar:

Hildur Einarsdóttir

Guðný Svandís Guðjónsdóttir

Karen Rúnarsdóttir

Kristinn Jakobsson

Leifur Andrei Leifsson

Sólveig Skaftadóttir

Orri Thor Eggertsson

Pétur Björgvin Sveinsson



22

Kosningar í almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins 2026-2030

Kosning tveggja aðalmanna og jafnmargra til vara í almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins til fjögurra ára.

Kosningu hlutu:

Aðalmenn:

Ásdís Kristjánsdóttir

Jónas Már Torfason

Varamaður:

Andri Steinn Hilmarsson

Sólveig Skaftadóttir

23

Kosningar í stefnuráð byggðarsamlaganna 2026-2030

Kosning tveggja aðalmanna, auk bæjarstjóra. Kosið er til fjögurra ára.

Kosningu hlutu:

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri

Orri V. Hlöðversson aðalfulltrúi og Björg Baldursdóttir varafulltrúi

Eydís Inga Valsdóttir aðalfulltrúi og Jónas Már Torfason varafulltrúi

24

Kosningar í Brunabótafélag Íslands 2026-2030

Kosning eins aðalmanns og eins til vara í fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands.

Kosningu hlutu:

Aðalfulltrúi:

Ármann Kr. Ólafsson

Varafulltrúi:

Guðmundur Jóhann Jónsson

25

Kosningar í stjórn Tónlistarskólans Tónsala 2026-2030

Kosning eins aðalmanns og eins til vara í stjórn tónlistarskólans Tónsala.

Kosningu hlutu:

Aðalfulltrúi:

Helga Guðrún Jónasdóttir

Varafulltrúi:

Elísabet Sveinsdóttir

26

Kosningar í stjórn Tónlistarskóla Kópavogs 2026-2030

Kosning tveggja aðalmanna og jafnmargra til vara í stjórn Tónlistarskóla Kópavogs.

Kosningu hlutu:

Aðalfulltrúar:

Haukur Már Hauksson

Ísabella Leifsdóttir

Varafulltrúar:

Helga Guðrún Jónasdóttir

Sigrún Skaftadóttir

27

Kosningar í skólanefnd Menntaskólans í Kópavogi 2026-2030

Kosning tveggja aðalmanna og jafnmargra til vara í skólanefnd Menntaskólans í Kópavogi.

Kosningu hlutu:

Aðalfulltrúar:

Jóhann Sveinn Friðleifsson

Ellert Andri Þórsson

Varafulltrúar:

Kristófer Breki Halldórsson

Björn Atli Davíðsson

28

Kosningar í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins 2023-2030

Kosning tveggja aðalmanna og tveggja til vara í stjórn svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins.

Kosningu hlutu:

Aðalfulltrúar:

Hjördís Ýr Johnson

Eydís Inga Valsdóttir

Varafulltrúar:

Andri Steinn Hilmarsson

Jónas Már Torfason

29

Kosningar í samstarfsnefnd um rekstur skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins 2026-2030

Kosning eins aðalmanns og eins til vara í samstarfsnefnd um rekstur skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.

Kosningu hlutu:

Andri Steinn Hilmarsson aðalfulltrúi

Hjördís Ýr Johnson varafulltrúi

30

Kosningar í heilbrigðiseftirlit 2026-2030

Kosning eins aðalmanns og eins til vara í Heilbrigðiseftirlit Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnessvæðis.

Kosningu hlutu:

Jóhann Sveinn Friðleifsson aðalfulltrúi

Guðmundur Jóhann Jónsson varafulltrúi

31

Kosningar í yfirkjörstjórn vegna sveitarstjórnarkosninga, alþingiskosninga og forsetakosninga 2026-2030

Kosning þriggja aðalmanna og jafnmargra til vara í yfirkjörstjórn vegna sveitarstjórnarkosninga, alþingiskosninga og forsetakosninga.

Kosningu hlutu:

Aðalfulltrúar:

Helgi Magnússon formaður

Jón Guðlaugur Magnússon

Gunnar Gylfason

Varafulltrúar:

Hannes Þórður Hafstein Þorvaldsson

Kristín Sævarsdóttir

Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir

32

Kosningar í hverfakjörstjórnir 2026-2030

Kosning þriggja manna og jafnmargra til vara í hverfiskjörstjórn í Smáranum.

Kosning þriggja manna og jafnmargra til vara í hverfiskjörstjórn í Kórnum.

Kosningu hlutu:

Hverfakjörstjórn - Smárinn

Aðalfulltrúar:

Helga Magnúsdóttir

Jónas Skúlason

Jón Júlíusson

Varafulltrúar:

Haukur Einarsson

Erlendur Geirdal

Halla Björg Evans


Hverfakjörstjórn - Kórinn

Aðalfulltrúar:

Sóldís Freyja Vignisdóttir

Þorvar Hafsteinsson

Ágúst Jónatansson

Varafulltrúar:

Hildur Karen Sveinbjarnardóttir

Ýr Gunnlaugsdóttir

Guðmundur Birkir Þorkelsson