Fyrirspurn bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar varðandi tengingu Vorbrautar við Öldusali
Málsnúmer: 2607070
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3260. fundur
Frá bæjarfulltrúa Miðflokks, dags. 24.06.2026, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir umræðu um tengingu Vorbrautar við Öldusali. Samhliða lögð fram umsögn frá umhverfssviði dags. 13.07.2026 ásamt fylgigögnum.
Umræður
Lagt fram.
Bókun:
"Í minnisblaði Umhverfissviðs kemur fram að Kópavogsbær hafi ekki rýnt möguleg grenndaráhrif vegtengingar samkvæmt gildandi deiliskipulagi á íbúa í Þorrasölum né metið hvort betri kostir séu fyrir hendi. Jafnframt kemur fram að frumkvæði að slíkri skoðun sé á forræði skipulags- og umhverfisráðs og bæjarstjórnar Kópavogs.
Miðflokkurinn telur óásættanlegt að þessi áhrif hafi ekki þegar verið metin, sérstaklega í ljósi þeirra hagsmuna sem eru í húfi fyrir íbúa Þorrasala. Miðflokkurinn mun því leggja fram tillögu á næsta fundi skipulags- og umhverfisráðs um að grenndaráhrif vegtengingarinnar verði rýnd og að metið verði hvort aðrir og betri kostir séu fyrir hendi."
Einar Jóhannes Guðnason
- Dskl Vetrarmýri _Smalaholt greinargerð_ Garðabær
- vetrarm_smalaholt deiliskipulagsuppdráttur
- Samkomulag Garðabæjar og Kópavogs - undirritað af bæjarstjórum sveitarfélaganna.
- Umsögn Skipulagsfulltrúa dags. 30. maí 2025_Deiliskipulag Vetrarmýri og Smalaholt
- Tillaga að deiliskipulagi_umhverfissvið Garðabæjar
- Vorbraut. Umsögn umhverfissviðs 13.07.2026
- Tenging Vorbrautar við Öldusali - frá bæjarfulltrúa Miðflokks 24.06.2026
- Vorbraut_minnisblað VSÓ 12.05.2025