Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Breytingar á Heilbrigðiseftirliti - tillaga bæjarstjóra

Málsnúmer: 2607883

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3260. fundur

Frá bæjarstjóra, dags. 14.07.2026, lögð fram tillaga um að undirbúa niðurfellingu heilbrigðisnefnda sveitarfélaga og móta drög að nýjum samþykktum.

Umræður

Bæjarráð vísar málinu til umsagnar bæjarritara.

Fundarhlé hófst kl. 9:15, fundi fram haldið kl. 10:18


Bókun:

"Fulltrúar Viðreisnar og Samfylkingar styðja markmið nýsamþykktra laga um einfaldara regluverk og samræmdara eftirlit með hollustuháttum og mengunarvörnum um land allt. Breytingarnar eru til þess fallnar að gera kerfið skýrara og aðgengilegra fyrir íbúa og fyrirtæki og draga úr óþarfa tvíverknaði.

Eðlilegt er að leitað verði til lögfræðiþjónustu til að rýna áhrif lagabreytinganna á Kópavogsbæ og tryggja að sveitarfélagið sé vel undirbúið fyrir gildistöku þeirra. Fram undan er umfangsmikil innleiðing hjá sveitarfélögum, Umhverfis- og orkustofnun og Stofnun atvinnuveganna. Við þá vinnu þarf að tryggja skýra verkaskiptingu, gott upplýsingaflæði og að breytingarnar leiði ekki til þess að dregið verði úr gæðum eftirlits eða kröfum um heilbrigði og öryggi íbúa."

Pétur Björgvin Sveinsson

Eydís Inga Valsdóttir