Bæjarráð - 3271. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Dagskrá fundar
01
Fannborg 8. Breytt aðgengi, kvöð og yfirlýsing
Frá umhverfissviði, dags. 09.11.2026, lagt fram erindi er varðar Fannborg 8, breytt aðgengi. Óskað er eftir samþykki bæjarráðs fyrir þinglýsingu kvaða.
02
Breytingar á Heilbrigðiseftirliti - minnisblað starfshóps
Frá yfirlögfræðingi, dags. 02.11.2026, lagt fram, minnisblað um skýrslu stafshóps SSH vegna heilbrigðiseftirlits.
03
Tillaga bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar um áramótabrennu í Kópavogi
Frá umhverfissviði, dags. 09.11.2026, lögð fram umsögn um tillögu bæjarfulltrúa Miðflokksins um áramótabrennu í Kópavogi.
04
Tillaga bæjarstjóra um verklag varðandi bílhræ í bæjarlandi
Frá umhverfissviði, dags. 09.11.2026, lögð fram umsögn varðandi verklag í tengslum við bílhræ í bæjarlandinu.
05
Nýr rammasamningur um höfundaréttargjöld vegna tónflutnings sveitarfélaga
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 05.11.2026, lagður fram nýr rammasamningur um höfundaréttargjöld vegna tónflutnings sveitarfélaga .
06
Fundargerð 1005. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30.10.2026
Fundargerð 1005. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30.10.2026.
07
Velferðar- og mannréttindaráð - 23. fundur frá 09.11.2026
Fundargerð í þrettán liðum.
08
Fjárhagsáætlun skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins 2027
Frá SSH, dags. 04.11.2026, lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, fyrir árið 2027 auk gjaldskrár fyrir komandi ár, sem hafa verið samþykktar af hálfu samstarfsnefnar Skíðasvæða. Lagt fram til kynningar. Eigendavettvangur skíðasvæðanna staðfestir fjárhagsáætlun skíðasvæðanna fyrir sitt leyti og er henni vísað til umræðu og afgreiðslu á vettvangi sveitarfélagsins.
09
Fundargerð 443. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 28.10.2026
Fundargerð 443. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 28.10.2026.
10
Fundargerð 285. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 16.10.2026
Fundargerð 285. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 16.10.2026.
11
Fundargerð 429. fundar stjórnar Strætó frá 05.11.2026
Fundargerð 429. fundar stjórnar Strætó frá 05.11.2026.
12
Fundargerð 636. fundar stjórnar SSH frá 02.11.2026
Fundargerð 636. fundar stjórnar SSH frá 02.11.2026.
13
Fyrirspurn um þjónustusamninga vegna umfjöllunar Kveiks
Frá bæjarfulltrúa Jónasi Má Torfasyni, dags. 10.11.2026, lögð fram fyrirspurn um þjónustusamninga Kópavogsbæjar við einkarekin úrræði fyrir börn með fjölþættan vanda. Óskað er eftir skriflegu svari fyrir fund bæjarráðs 19.11.2026.
14
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Jónasar Más Torfasonar um stöðu starfshóps um áætlun um notkun snjalltækja
Frá bæjarfulltrúa Samfylkingar, dags. 10.11.2026, lögð fram fyrirspurn um stöðu starfshóps um áætlun um notkun snjalltækja í skóla - og frístundastarfi 2026-2030. Óskað er eftir skriflegu svari fyrir fund bæjarráðs 19.11.2026.