Reglugerð um málsmeðferð vegna ákvörðunar um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins
Málsnúmer: 26081099
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3261. fundur
Á fundi bæjarráðs þann 18.06.2026 var málið tekið til umræðu og lagðar fram bókanir. Nú rætt að nýju og kynnt.
Kynning og umræður.
Gestir viku af fundi kl. 9:44.
Fundarhlé hófst kl. 9:47, fundi fram haldið kl. 11:32
Bókun:
"Undirrituð þakka starfsfólki Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir greinargóða kynningu á reglugerð nr. 700/2026 og áhrifum hennar.
Kynningin staðfestir þær áhyggjur sem áður hafa komið fram í bæjarráði Kópavogs. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á þeim hópi barna sem falla undir úrræði ríkisins, þvert á samkomulag ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um að ríkið tæki yfir málaflokkinn að fullu leyti. Alvarlegast í þessu öllu er að börnum, með fjölþættan vanda, sem áður fengust framlög með hefur nú verið hafnað. Þá hefur ráðuneytið staðfest að afmörkun reglugerðarinnar útiloki börn með þyngri og langvinnari þjónustuþarfir.
Undirrituð telja þetta óásættanlegt og til þess fallið að grafa undan trausti sveitarfélaga í samstarfi ríkis og sveitarfélaga. Skorað er á ráðuneytið að standa við þá ábyrgð og skuldbindingar sem samið var um og tryggja að börn með hvað mestar og flóknastar stuðningsþarfir falli ekki milli kerfa."
Ásdís Kristjánsdóttir
Andri Steinn Hilmarsson
Hjördís Ýr Johnson
Orri Vignir Hlöðversson
María Ellen Steingrímsdóttir
Einar Jóhannes Guðnason
Ásdís Kristjánsdóttir vék af fundi kl. 10:23.
Bókun:
"Undirritaður þakkar sömuleiðis starfsfólki Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir greinargóða kynningu og uppbyggilegt samtal.
Hins vegar getur undirritaður ekki tekið undir bókun meirihlutans, sem þriðja bæjarráðsfundinn í röð dregur fram mál þetta til umfjöllunar. Fyrir liggur að ríkisstjórnin stígur inn í málaflokkinn með rúmlega þriggja milljarða króna framlag sem ekki var til skiptanna fyrir gerð samkomulagsins og án þess að frekari skyldur falli á sveitarfélögin aðrar en þær sem þegar voru við lýði við gerð samkomulagsins. Skýrt er kveðið á um þessa fjárhagslegu aðkomu ríkisins í samkomulaginu og við hana hefur verið staðið.
Samkomulag ríkis og sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda er stórt skref í átt að varanlegri lausn í málaflokki sem hefur verið bitbein í meira en áratug. Samkomulagið kveður á um heildarendurskoðun málaflokksins sem stendur enn yfir og er starfshópur á vegum ríkis og sveitarfélaga að störfum, líkt og kveðið er á um í samkomulaginu. Það liggur fyrir að reglugerðin sem um ræðir er í virkri endurskoðun og að það sé vilji hjá ríkisstjórn til að styrkja áfram þjónustu við skjólstæðinga kerfisins og leiða þetta mál í jörð með sanngjarnri og eðlilegri skiptingu ábyrgðar milli ríkis og sveitarfélaga. Pólitísk upphlaup eru ógagnleg innlegg inn í það samtal, líkt og undirritaður hefur áður bókað um á síðustu tveimur bæjarráðsfundum."
Jónas Már Torfason
Bókun:
"Hér er fulltrúi Samfylkingarinnar í bæjarráði að taka stöðu með ríkinu í stað sveitarfélagsins. Í samkomulaginu frá 19. mars 2025 segir: „Ríkið tekur að sér framkvæmd og ber ábyrgð á fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við börn með fjölþættan vanda sem búsett eru utan heimils, og hafa verið metin í þörf fyrir þjónustu á þriðja stigi, eigi síðar en 1. janúar 2026.“
Þarna er í senn hvoru tveggja ávarpað, framkvæmdin og fjármögnunin. Að kalla gagnrýni allra bæjarráðsmanna, bæði í meiri- og minnihluta, fyrir utan fulltrúa Samfylkingarinnar, á stöðuna „pólitískt upphlaup“ stenst ekki skoðun. Það liggur fyrir að ríkið er ekki að standa við gerða samninga, bæði hvað varðar fjármögnun og framkvæmd, með því að setja ný og þrengri skilyrði en fólust í téðu samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga um málaflokkinn.
Andri Steinn Hilmarsson
Hjördís Ýr Johnson
Orri Vignir Hlöðversson
María Ellen Steingrímsdóttir
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Ummæli meirihlutans um að undirritaður dragi taum ríkisins fram yfir hag bæjarins dæma sig sjálf og eru í takti við annars vanstillta nálgun meirihlutans í þessu máli.
Kópavogsbær hefur enga höfnun fengið á grundvelli nýrrar reglugerðar. Reglugerðin var sett svo hægt væri að byrja að vinna eftir uppleggi samkomulagsins, þar sem ríkið leggur til ríflega þrjá milljarða í málaflokkinn án þess að sveitarfélögin taki á sig auknar skyldur.
Við setningu reglugerðarinnar lá fyrir að hún yrði áfram í endurskoðun og framkvæmd hennar vöktuð. Í samkomulaginu er kveðið á um að það sé háð heildarendurskoðun á flóknu regluverki sem er í vinnslu. Af ummælum meirihlutans að dæma mætti ætla að hann kysi frekar að beðið hefði verið með nokkra aðkomu ríkisins, en á meðan hefðu sveitarfélögin áfram borið fulla ábyrgð á málaflokknum.
Undirrituðum er ekki kunnugt um að bæjarráð hafi áður ályktað um algjört aðgerðarleysi síðustu ríkisstjórna Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks í málaflokknum, en hann telur það mikilvægt framfaraskref að núverandi ríkisstjórn komi að borðinu. Til þess að bæta samskipti ríkis og sveitarfélaga þurfa báðir aðilar að leggja sig fram við yfirvegað samtal. Það er ekki í hag íbúa Kópavogsbæjar að bærinn rýri trúverðugleika sinn í því samtali með ótímabærum upphrópunum."
Jónas Már Torfason
Bókun:
"Aftur skal það áréttað að fulltrúar fjögurra af fimm flokkum, úr meiri- og minnihluta, standa að fyrri bókunum. Þetta er fulltrúa Samfylkingarinnar vel kunnugt og í því ljósi er orðavalið sérstakt og til þess fallið að villa um fyrir þeim sem lesa bókanir frá fundinum.
Það sem liggur fyrir er að ríkið ákveður einhliða að setja nýja reglugerð, sem felur í sér ný og þrengri skilyrði, án aðkomu eða samþykkis sveitarfélaganna þrátt fyrir að annað hafi verið undirritað.
Að mati undirritaðra er ekki um að ræða flokkapólitík heldur hagsmuni barna, fjölskyldna þeirra og sveitarfélaganna í landinu."
Andri Steinn Hilmarsson
Hjördís Ýr Johnson
Orri Vignir Hlöðversson
María Ellen Steingrímsdóttir
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Afstöðum undirritaðs og meirihlutans hafa verið gerð skýr skil í bókunum þessa fundar, sem og síðustu tveggja bæjarráðsfunda, þar sem meirihlutinn hefur dregið þetta mál fram til þess að bóka um það. Vísa ég til fyrri bókanna og tel ekki ástæðu til frekari málalenginga um þetta mál."
Jónas Már Torfason