Bæjarráð - 3261. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Andri Steinn Hilmarsson - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Orri Vignir Hlöðversson - varaformaður
- Jónas Már Torfason - aðalfulltrúi
- Einar Jóhannes Guðnason - aðalfulltrúi
- María Ellen Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá SSH. dags. 07.07.2026, lögð fram til samþykktar aðgerðaáætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2030. Óskað er eftir því að áætlunin verði tekin til efnislegrar umræðu, afgreiðslu og staðfestingar á vettvangi sveitarfélagsins. Til upplýsinga er einnig meðfylgjandi minnisblað til stjórnar SSH dagsett 16. júní 2026. Þá er þess óskað að við fjárhagsáætlunargerð vegna ársins 2027 verði tekið tillit til þess kostnaðar sem áætlað er að leggist á sveitarfélagið, sbr. 4. gr. samstarfssamnings sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um svæðisbundið farsældarráð á höfuðborgarsvæðinu.
Kynning verkefnastjóra farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins og umræður.
Gestir viku af fundi kl.8:49.
Bæjarráð vísar aðgerðaráætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2030 til afgreiðslu bæjarstjórnar.
02
Reglugerð um málsmeðferð vegna ákvörðunar um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins
Á fundi bæjarráðs þann 18.06.2026 var málið tekið til umræðu og lagðar fram bókanir. Nú rætt að nýju og kynnt.
Kynning og umræður.
Gestir viku af fundi kl. 9:44.
Fundarhlé hófst kl. 9:47, fundi fram haldið kl. 11:32
Bókun:
"Undirrituð þakka starfsfólki Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir greinargóða kynningu á reglugerð nr. 700/2026 og áhrifum hennar.
Kynningin staðfestir þær áhyggjur sem áður hafa komið fram í bæjarráði Kópavogs. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á þeim hópi barna sem falla undir úrræði ríkisins, þvert á samkomulag ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um að ríkið tæki yfir málaflokkinn að fullu leyti. Alvarlegast í þessu öllu er að börnum, með fjölþættan vanda, sem áður fengust framlög með hefur nú verið hafnað. Þá hefur ráðuneytið staðfest að afmörkun reglugerðarinnar útiloki börn með þyngri og langvinnari þjónustuþarfir.
Undirrituð telja þetta óásættanlegt og til þess fallið að grafa undan trausti sveitarfélaga í samstarfi ríkis og sveitarfélaga. Skorað er á ráðuneytið að standa við þá ábyrgð og skuldbindingar sem samið var um og tryggja að börn með hvað mestar og flóknastar stuðningsþarfir falli ekki milli kerfa."
Ásdís Kristjánsdóttir
Andri Steinn Hilmarsson
Hjördís Ýr Johnson
Orri Vignir Hlöðversson
María Ellen Steingrímsdóttir
Einar Jóhannes Guðnason
Ásdís Kristjánsdóttir vék af fundi kl. 10:23.
Bókun:
"Undirritaður þakkar sömuleiðis starfsfólki Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir greinargóða kynningu og uppbyggilegt samtal.
Hins vegar getur undirritaður ekki tekið undir bókun meirihlutans, sem þriðja bæjarráðsfundinn í röð dregur fram mál þetta til umfjöllunar. Fyrir liggur að ríkisstjórnin stígur inn í málaflokkinn með rúmlega þriggja milljarða króna framlag sem ekki var til skiptanna fyrir gerð samkomulagsins og án þess að frekari skyldur falli á sveitarfélögin aðrar en þær sem þegar voru við lýði við gerð samkomulagsins. Skýrt er kveðið á um þessa fjárhagslegu aðkomu ríkisins í samkomulaginu og við hana hefur verið staðið.
Samkomulag ríkis og sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda er stórt skref í átt að varanlegri lausn í málaflokki sem hefur verið bitbein í meira en áratug. Samkomulagið kveður á um heildarendurskoðun málaflokksins sem stendur enn yfir og er starfshópur á vegum ríkis og sveitarfélaga að störfum, líkt og kveðið er á um í samkomulaginu. Það liggur fyrir að reglugerðin sem um ræðir er í virkri endurskoðun og að það sé vilji hjá ríkisstjórn til að styrkja áfram þjónustu við skjólstæðinga kerfisins og leiða þetta mál í jörð með sanngjarnri og eðlilegri skiptingu ábyrgðar milli ríkis og sveitarfélaga. Pólitísk upphlaup eru ógagnleg innlegg inn í það samtal, líkt og undirritaður hefur áður bókað um á síðustu tveimur bæjarráðsfundum."
Jónas Már Torfason
Bókun:
"Hér er fulltrúi Samfylkingarinnar í bæjarráði að taka stöðu með ríkinu í stað sveitarfélagsins. Í samkomulaginu frá 19. mars 2025 segir: „Ríkið tekur að sér framkvæmd og ber ábyrgð á fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við börn með fjölþættan vanda sem búsett eru utan heimils, og hafa verið metin í þörf fyrir þjónustu á þriðja stigi, eigi síðar en 1. janúar 2026.“
Þarna er í senn hvoru tveggja ávarpað, framkvæmdin og fjármögnunin. Að kalla gagnrýni allra bæjarráðsmanna, bæði í meiri- og minnihluta, fyrir utan fulltrúa Samfylkingarinnar, á stöðuna „pólitískt upphlaup“ stenst ekki skoðun. Það liggur fyrir að ríkið er ekki að standa við gerða samninga, bæði hvað varðar fjármögnun og framkvæmd, með því að setja ný og þrengri skilyrði en fólust í téðu samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga um málaflokkinn.
Andri Steinn Hilmarsson
Hjördís Ýr Johnson
Orri Vignir Hlöðversson
María Ellen Steingrímsdóttir
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Ummæli meirihlutans um að undirritaður dragi taum ríkisins fram yfir hag bæjarins dæma sig sjálf og eru í takti við annars vanstillta nálgun meirihlutans í þessu máli.
Kópavogsbær hefur enga höfnun fengið á grundvelli nýrrar reglugerðar. Reglugerðin var sett svo hægt væri að byrja að vinna eftir uppleggi samkomulagsins, þar sem ríkið leggur til ríflega þrjá milljarða í málaflokkinn án þess að sveitarfélögin taki á sig auknar skyldur.
Við setningu reglugerðarinnar lá fyrir að hún yrði áfram í endurskoðun og framkvæmd hennar vöktuð. Í samkomulaginu er kveðið á um að það sé háð heildarendurskoðun á flóknu regluverki sem er í vinnslu. Af ummælum meirihlutans að dæma mætti ætla að hann kysi frekar að beðið hefði verið með nokkra aðkomu ríkisins, en á meðan hefðu sveitarfélögin áfram borið fulla ábyrgð á málaflokknum.
Undirrituðum er ekki kunnugt um að bæjarráð hafi áður ályktað um algjört aðgerðarleysi síðustu ríkisstjórna Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks í málaflokknum, en hann telur það mikilvægt framfaraskref að núverandi ríkisstjórn komi að borðinu. Til þess að bæta samskipti ríkis og sveitarfélaga þurfa báðir aðilar að leggja sig fram við yfirvegað samtal. Það er ekki í hag íbúa Kópavogsbæjar að bærinn rýri trúverðugleika sinn í því samtali með ótímabærum upphrópunum."
Jónas Már Torfason
Bókun:
"Aftur skal það áréttað að fulltrúar fjögurra af fimm flokkum, úr meiri- og minnihluta, standa að fyrri bókunum. Þetta er fulltrúa Samfylkingarinnar vel kunnugt og í því ljósi er orðavalið sérstakt og til þess fallið að villa um fyrir þeim sem lesa bókanir frá fundinum.
Það sem liggur fyrir er að ríkið ákveður einhliða að setja nýja reglugerð, sem felur í sér ný og þrengri skilyrði, án aðkomu eða samþykkis sveitarfélaganna þrátt fyrir að annað hafi verið undirritað.
Að mati undirritaðra er ekki um að ræða flokkapólitík heldur hagsmuni barna, fjölskyldna þeirra og sveitarfélaganna í landinu."
Andri Steinn Hilmarsson
Hjördís Ýr Johnson
Orri Vignir Hlöðversson
María Ellen Steingrímsdóttir
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Afstöðum undirritaðs og meirihlutans hafa verið gerð skýr skil í bókunum þessa fundar, sem og síðustu tveggja bæjarráðsfunda, þar sem meirihlutinn hefur dregið þetta mál fram til þess að bóka um það. Vísa ég til fyrri bókanna og tel ekki ástæðu til frekari málalenginga um þetta mál."
Jónas Már Torfason
Frá yfirkjörstjórn, dags. 17.08.2026, lagt fram erindi varðandi framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer þann 29. ágúst.
Bæjarráð vísar erindinu til staðfestingar bæjarstjórnar.
Frá Erlendi Smára Þorsteinssyni, dags. 20.07.2026, lagt fram erindi varðandi rafskútur í bæjarlandinu.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs, þar sem fram kemur m.a. hvaða reglur gilda um rafskútur almennt og hjá bænum, hvaða samningar eru í gildi gagnvart bænum, hvað hefur verið gert, hvað umhverfissvið telur fært að gera og annað sem kann að skipta máli.
Fundargerð í 30 liðum.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Fundargerð í 22 liðum.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Fundargerð í 27 liðum.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 13 liðum.
Lagt fram.
10.10 - 26012129 - Hlíðarhvarf 21. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram umsókn Sigurðar Hilmars Ólafssonar dags. 24. janúar 2026 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 21 við Hlíðarhvarf. Í breytingunni felst að fyrirhugað einbýlishús á lóðinni verði á einni hæð í stað tveggja og nái samtals 13,5 m² út fyrir byggingarreit til vesturs. 1,9 m þar sem það er mest (6,8 m²) og 0,8 m þar sem það er minna (6,7 m²), ásamt því að ná 1,0 m út fyrir byggingarreit til norðurs, samtals 11,2 m². Nýtingarhlutfall lóðar verður 0,30. Þá eru bílastæði og aðkoma færð frá suð-austurhorni í norð- austurhorn, miðað við deiliskipulag. Tillagan var grenndarkynnt frá 20. maí til 21. júní 2026. Einnig eru lagðar fram athugasemdir sem bárust á kynningartímanum ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. ágúst 2026 og greinargerð skipulagshönnuða dags. 16. júlí 2026.
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 14. ágúst 2026 með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Árnínu Steinunnar Kristjánsdóttur, Guðmundar Jóhanns Jónssonar, Eydísar Ingu Valsdóttur og Orra Thors Eggertssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
- Hlíðarhvarf 21_umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. ágúst 2026
- Athugasemdir sem bárust á kynningartíma
- Hlíðarhvarf 21_greinargerð skipulagshöfunda og skýringarmyndir
- Uppdráttur dags. 13. maí 2026
- A3-02-Hlíðarhvarf 21-snið-lóð
- A2-01-Hlíðarhvarf 21-grm-lóð.
- Umsókn um deiliskipulagsbreytingu
- Hlíðarhvarf 21_breyting á deilisk._fylgigögn
- Hlíðarhvarf 21_fyrirspurn um br dsk_umsögn skipulagafulltrúa, janúar 2026
- Glærur af 32_fundi skipulags_og umhverfisráðs
10.5 - 26032451 - Askalind 2. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju að lokinni auglýsingu umsókn Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts dags. 16. mars 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Askalind um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggja auka hæð ofan á núverandi verslunarhúsnæði á lóðinni ásamt því að bæta við stigahúsi með lyftu norðan megin við húsið og fjölga bílastæðum. Tillagan var auglýst frá 28. maí til 12. júlí 2026, athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. ágúst 2026.
Ester Anna Ármannsdóttir verkefnastjóri gerði grein fyrir erindinu.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. ágúst 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
10.6 - 26042448 - Stígagerð í botni Kópavogs. Umsókn um framkvæmdaleyfi.
Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu umsókn Betri Samgangna ohf. dags. 17. apríl 2026 um framkvæmdaleyfi á grundvelli Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040. Í framkvæmdinni felst að útbúa aðskilda göngu- og hjólastíga frá stígamótum við undirgöng við Hafnarfjarðarveg við Kópavogstún sem liggur vestan Hafnarfjarðarvegar að sveitarfélagamörkum við Garðabæ. Jafnframt verður sett upp ný brú fyrir gangandi ásamt gegnsæjum hljóðvegg. Umsóknin var grenndarkynnt frá 6. júní til 2. júlí 2026, athugasemdir bárust. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. júlí 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2026.
Ester Anna Ármannsdóttir verkefnastjóri gerði grein fyrir erindinu.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
- Umsögn skipulagsdeildar um athugasemdir 11. ágúst 2026
- leyfi til framkvæmda búsvæðaverndarsvæði Skerjafjörður í Kópavogi
- Yfirlitsmynd-f-Náttúruvernd
- Afnotaleyfi vegna vinnu á vegsvæði, Hafnarfjarðarvegur (40-02,03) Betri Samgöngur
- Grenndarkynning. Stígagerð í botni Kópavogs.
- Umsögn gatnadeildar maí 2026
- Umsögn skipulagsfulltrúa 1. júní 2026
- Teikningasett f. stíg í Kópavogi 2. áf.-febrúar 2026
- Minnisblað með lýsingu á framkvæmd uppfært 13. ágúst 2026
- Heildar teikningasett hjólastígar í Kópavogi og Garabæ 2. áf.- febrúar 2026
- Athugasemdir sem bárust á kynningartíma
- VL Þrír stígar. Göngu- og hjólastígar 2. áfangi
- Viðbragðsáætlun
- Glærur af 32_fundi skipulags_og umhverfisráðs
11
Erindi bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar varðandi innviðaframkvæmdir á Vatnsendabletti
Frá bæjarfulltrúa Miðflokks, dags.12.07.2026, lagt fram erindi varðandi innviðaframkvæmdir á Vatnsendabletti.
Lagt fram. Bæjarráð bendir á að málið sé nú þegar í stjórnsýslulegri meðferð hjá skipulags- og umhverfisráði.
Bókun:
"Undirritaður hvetur skipulagsráð til að fresta þessu ekki enn frekar, taka afstöðu og vinna með landeigendum að lausn til lengri tíma."
Einar Jóhannes Guðnason
12
Tillaga bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar um fullmislæg gatnamót við Breiðholtsbraut og Arnarnesveg
Frá bæjarfulltrúa Miðflokks, dags. 18.07.2026. lögð fram tillaga um fullmislæg gatnamót við Breiðholtsbraut og Arnarnesveg,
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs með ósk um að umsögn berist eigi síðar en 3. september n.k.
Bókun:
"Undirritaður fagnar því að bæjarráð taki jákvætt í tillögu Miðflokksins að fela bæjarstjóra að hefja strax samtal við Reykjavíkurborg og Vegagerðina að gera gatnamótin við Arnarnesveg og Breiðholtsbraut að fullmislægum. Undirritaður er vongóður um að tillagan verði samþykkt er hún kemur aftur fyrir bæjarráð eigi síðar en 3. september."
Einar Jóhannes Guðnason
Frá bæjarfulltrúa Samfylkingar, dags. 18.08.2026, lögð fram tillaga um skipun samráðsvettvangs vegna framkvæmda í miðbæ Kópavogs.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillöguni til bæjarstjóra til umsagnar.