Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar
Málsnúmer: 26081590
Ferill máls
01
Menningar- og mannlífsnefnd - 15. fundur
Styrkbeiðni frá Kraðak vegna aðventudagskrár í Guðmumdarlundi.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar Kraðaki fyrir sýningarnar Jólalundur í Kópavogi og Ævintýri í Jólaskógi í Guðmundarlundi á aðventunni. Nefndin fagnar því að sýningin Ævintýri í Jólaskógi skuli áfram vera í Guðmundarlundi og veita íbúum í efri byggðum Kópavogs, sem og öðrum gestum, aðgang að fjölskylduvænni menningarupplifun á aðventunni.
Nefndin hafnar styrkumsókn Kraðaks vegna sýningarinnar Jólalundur í Kópavogi. Við ákvörðunina er meðal annars litið til þess að Kópavogsbær hefur frá árinu 2020 lagt til aðstöðu í Guðmundarlundi vegna allrar starfsemi Kraðaks þar, án endurgjalds, og mun halda því áfram.
Nefndin bendir jafnframt á að rekstrargrundvöllur sýningarinnar Ævintýri í Jólaskógi byggir að hluta á sölu aðgöngumiða og öðrum tekjum af sýningunni auk stuðnings samstarfsaðila. Með hliðsjón af því og þeirri aðstöðu sem Kópavogsbær er þegar að veita Kraðaki þá telur nefndin ekki forsendur til frekari fjárhagslegs framlags af hálfu bæjarins að þessu sinni.
Menningar- og mannlífsnefnd óskar Kraðaki velfarnaðar í áframhaldandi sýningarhaldi í Guðmundarlundi.