Menningar- og mannlífsnefnd - 15. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - formaður
- Guðný Svandís Guðjónsdóttir - aðalfulltrúi
- Sveinn Gíslason - aðalfulltrúi
- Margrét Vilborg Tryggvadóttir - aðalfulltrúi
- Ásgeir Þór Jónsson - aðalfulltrúi
- Einar Jóhannes Guðnason - aðalmaðurBoðaði forföllNína Berglind Sigurgeirsdóttir - vara áheyrnarfulltrúiSat fundinn í staðinn
Starfsmenn
- Vilborg Soffía Karlsdóttir - starfsmaður nefndar
Ritari
- Soffía Karlsdóttir
Dagskrá fundar
Kynning á erindisbréfi menningar- og mannlífsnefndar.
Yfirferð og umræður. Kynning: Steinn Sigríðar Finnbogason. Nefndarmenn benda á misræmi í bæjarmálasamþykkt og erindisbréfi nefndarinnar en í erindisbréfinu er ekki vikið að fjölmenningarmálum sem samkvæmt bæjarmálasamþykkt eru annað af meginhlutverkum nefndarinnar.
Kynning á bæjarmálasamþykkt.
Yfirferð og umræður. Kynning: Steinn Sigríðar Finnbogason.
Val á útilistaverki menningar- og mannlífsnefndar - Staðan.
Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að fresta vali og kaupum á nýju útilistaverki til ársins 2028 og halda áfram uppbyggingu söfnunarsjóðs næstu tvö ár, í samræmi við framlagða ráðgjöf SÍM og tillögu forstöðumanns Gerðarsafns og forstöðumanns menningarmála.
Styrkbeiðni frá RIFF, Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar RIFF fyrir umsóknina. Nefndin sér sér því miður ekki fært að verða við umsókninni að þessu sinni.
Einstaklingur óskar eftir 450.000 kr. styrk vegna tónleikahalds í Salnum haustið 2026.
Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita styrk að fjárhæð 250.000 kr. til tónleikahalds í Salnum.
Styrkbeiðni frá Kraðak vegna aðventudagskrár í Guðmumdarlundi.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar Kraðaki fyrir sýningarnar Jólalundur í Kópavogi og Ævintýri í Jólaskógi í Guðmundarlundi á aðventunni. Nefndin fagnar því að sýningin Ævintýri í Jólaskógi skuli áfram vera í Guðmundarlundi og veita íbúum í efri byggðum Kópavogs, sem og öðrum gestum, aðgang að fjölskylduvænni menningarupplifun á aðventunni.
Nefndin hafnar styrkumsókn Kraðaks vegna sýningarinnar Jólalundur í Kópavogi. Við ákvörðunina er meðal annars litið til þess að Kópavogsbær hefur frá árinu 2020 lagt til aðstöðu í Guðmundarlundi vegna allrar starfsemi Kraðaks þar, án endurgjalds, og mun halda því áfram.
Nefndin bendir jafnframt á að rekstrargrundvöllur sýningarinnar Ævintýri í Jólaskógi byggir að hluta á sölu aðgöngumiða og öðrum tekjum af sýningunni auk stuðnings samstarfsaðila. Með hliðsjón af því og þeirri aðstöðu sem Kópavogsbær er þegar að veita Kraðaki þá telur nefndin ekki forsendur til frekari fjárhagslegs framlags af hálfu bæjarins að þessu sinni.
Menningar- og mannlífsnefnd óskar Kraðaki velfarnaðar í áframhaldandi sýningarhaldi í Guðmundarlundi.
Fyrirspurn frá Margréti Tryggvadóttur vegna vegglistaverksins Sólarslóð.
Lagt fram.
Bókun frá Margréti Tryggvadóttur fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúi Samfylkingarinnar fordæmir þann verknað bæjaryfirvalda að láta rómað útilistaverk víkja fyrir kosningaauglýsingu. Svarið vekur fleiri spurningar og óskar fulltrúinn eftir því að málið verði á dagskrá næsta fundar.
Ég óska eftir því að fyrirspurnin sé aftur tekin fyrir, hver nákvæmlega átti frumkvæði og hver veitti leyfi. Eins óska ég eftir afriti af tölvupóstum til listamannsins og samskiptum við Gerðarsafn og samninginn um verkið.
Tillaga að funda- og starfsáætlun menningar- og mannlífsnefndar 2026-2027.
Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að funda kl. 15:30 síðasta miðvikudag mánaðarins (þegar við á) á starfsárinu 2026-2027 með fyrirvara um breytingar sem kunna að verða nauðsynlegar vegna framvindu mála og verkefna nefndarinnar.
Bókun Margrétar Tryggvadóttur fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúi Samfylkingarinnar telur ótækt hve fundir nefndarinnar eru fáir yfir árið, einungis átta. Starfssvið nefndarinnar er vítt og mikið undir. Áður fékk nefndin fjárheimildir til að funda tólf sinnum á ári.