Menntaráð - Tillaga frá fulltrúum meirihluta í menntaráði varðandi frístundalæsi
Málsnúmer: 26082165
Ferill máls
01
Menntaráð - 164. fundur
Lögð er fram til samþykktar tillaga frá fulltrúum meirihluta menntaráðs um að menntasviði verði falið að skoða möguleika á að efla frístundarlæsi til stuðnings heimanámi grunnskólabarna.
Framlögð tillaga samþykkt.
Bókun:
Fulltrúar Viðreisnar telja jákvætt að skoðaðar verði leiðir til að styðja betur við nám og læsi barna innan skólasamfélagsins, ekki síst með það að markmiði að jafna tækifæri barna óháð aðstæðum þeirra heima fyrir. Mikilvægt er þó að skýrt verði hvað felst í orðalagi tillögunnar ,,frístundarlæsi til stuðnings heimanáms“ og að sjálfstætt gildi frístundastarfsins verði áfram haft að leiðarljósi. Frístund á ekki að verða einfaldlega framlenging skóladagsins, sérstaklega hjá börnum á yngsta stigi. Við útfærslu verkefnisins þarf jafnframt að liggja fyrir mat á mannafla, kostnaði og því hvaða faglega stuðning starfsfólk frístunda þarf, auk skýrra markmiða um þann árangur sem stefnt er að.
Bryndís Rut Logadóttir
María Ellen Steingrímsdóttir