Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Menntaráð - 164. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Karen Rúnarsdóttir - formaður
  • Hildur Karen Sveinbjarnardóttir - aðalfulltrúi
  • Hildur Einarsdóttir - aðalfulltrúi
  • Arnór Aðalsteinsson - aðalfulltrúi
  • Gunnar Sær Ragnarsson - aðalfulltrúi
  • María Ellen Steingrímsdóttir - aðalfulltrúi
  • Bryndís Rut Logadóttir - aðalfulltrúi
  • Björn Þór Rögnvaldsson - áheyrnarfulltrúi
  • Nína Berglind Sigurgeirsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Kristgerður Garðarsdóttir - kennarafulltrúi

Starfsmenn

  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Ingunn Mjöll Birgisdóttir - starfsmaður menntasviðs
  • Amanda Karima Ólafsdóttir - starfsmaður menntasviðs

Ritari

  • Ingunn Mjöll Birgisdóttir

Dagskrá fundar

Almenn erindi

01

Menntasvið-Menntastefna 2020-2030

Lögð er fram til kynningar aðgerðaráætlun menntasviðs í tengslum við menntastefnu Kópavogs 2026.

Lagt fram.

Bókun:

Undirrituð setur spurningamerki við forgangsröðun gervigreindarvæðingar grunnskóla og sérstaklega fyrir börn á yngsti stigi.

Grunnskólar Kópavogs eiga að hafa það að markmiði að leggja áherslu á læsi, lesskilning, skrift og stærðfræði, enda sýna rannsóknir að það er mikil þörf á því.

Tryggja þarf að börn nái tökum á þessum lykilatriðum menntunar eins og talið er upp hér að ofan áður en ráðist er í flóknari þætti líkt og gervigreind er.

Verið er skoða gæði spjaldtölvuvæðingar innan skóla Kópavogs og meðan á þeirri vinnu stendur telur undirrituð ekki tímabært að innleiða gervigreind inn í grunnskóla og sérstaklega ekki á yngsta stigið.

Nína Berglind Sigurgeirsdóttir

Bókun:

Kynnt aðgerðaráætlun menntastefnu var samþykkt á síðastliðnu kjörtímabili og er lögð fram til kynningar. Menntaráð hefur þegar samþykkt tillögu meirihluta menntaráðs um greiningu á menntatækni í Kópavogi sem mun hafa áhrif á þá aðgerðaáætlun sem mótuð verður í upphafi árs 2027. Meirihlutinn hefur lagt áherslu á mikilvægi þess að leggja áherslu á grunnstoðir náms og tekur því undir þær áhyggur. Það er aftur á móti staðreynd að börn eru farin að nýta gervigreind og telur meirihlutinn því mikilvægt að brugðist hafi verið við þeirri þróun með innleiðingu gervigreindarlæsis.

Karen Rúnarsdóttir

Hildur Karen Sveinbjarnardóttir.

Hildur Einarsdóttir

Arnór Sveinn Aðalsteinsson

Gunnar Sær Ragnarsson

Almenn erindi

02

Menntaráð - Tillaga frá fulltrúum meirihluta í menntaráði varðandi frístundalæsi

Lögð er fram til samþykktar tillaga frá fulltrúum meirihluta menntaráðs um að menntasviði verði falið að skoða möguleika á að efla frístundarlæsi til stuðnings heimanámi grunnskólabarna.

Framlögð tillaga samþykkt.

Bókun:

Fulltrúar Viðreisnar telja jákvætt að skoðaðar verði leiðir til að styðja betur við nám og læsi barna innan skólasamfélagsins, ekki síst með það að markmiði að jafna tækifæri barna óháð aðstæðum þeirra heima fyrir. Mikilvægt er þó að skýrt verði hvað felst í orðalagi tillögunnar ,,frístundarlæsi til stuðnings heimanáms“ og að sjálfstætt gildi frístundastarfsins verði áfram haft að leiðarljósi. Frístund á ekki að verða einfaldlega framlenging skóladagsins, sérstaklega hjá börnum á yngsta stigi. Við útfærslu verkefnisins þarf jafnframt að liggja fyrir mat á mannafla, kostnaði og því hvaða faglega stuðning starfsfólk frístunda þarf, auk skýrra markmiða um þann árangur sem stefnt er að.

Bryndís Rut Logadóttir

María Ellen Steingrímsdóttir

Almenn erindi

03

Menntaráð - Tillaga frá fulltrúum meirihluta í menntaráði varðandi ráðgjöf við gerð áætlunar um menntatækni

Lögð er fram til samþykktar tillaga frá fulltrúum meirihluta í menntaráði varðandi ráðgjöf við gerð áætlunar um menntatækni.

Framlögð tillaga samþykkt með fimm greiddum atkvæðum.

Fundarhlé hófst 16:14, fundi fram haldið 16:33

Bókun:

Undirrituð styðja þá tillögu að unnin verður greining og áætlun um notkun snjalltækja í skóla- og frístundastarfi líkt og samþykkt var á síðasta fundi. Það vekur þó athygli að menntaráð er hér beðið um að samþykkja kaup á utanaðkomandi ráðgjöf án þess að fyrir liggi upplýsingar um áætlaðan kostnað, umfang ráðgjafarinnar eða hvaða afurðum henni er ætlað að skila.

Vönduð meðferð opinberra fjármuna kallar á að slíkar upplýsingar liggi fyrir, til þess að tryggja gangsæi, áður en menntaráði er falið að samþykkja að gengið verði til samninga um sérfræðiþjónustu.

Undirrituð hefðu jafnframt viljað að tillögunni fylgdu upplýsingar um hvernig fyrirhugað er að standa að vali ráðgjafa og hvort, með hliðsjón af umfangi og kostnaði verkefnisins, sem og fjárhagsheimildum menntasviðs, hvort að kaupin þyrftu að koma til umfjöllunar innkaupanefndar.

María Ellen Steingrímsdóttir

Bryndís Rut Logadóttir

Björn Þór Rögnvaldsson

Nína Berglind Sigurgeirsdóttir

Bókun:

Fulltrúar Viðreisnar sitja hjá við atkvæðagreiðslu þessa í ljósi þess að við teljum tillöguna ekki nógu skýra og vel unna. Taka skal þó fram að undirritaðar telja fýsilegt að leita skuli til utanaðkomandi greiningaraðila í þeirri vinnu sem framundan er. Við teljum þó að ekki liggi fullnægjandi upplýsingar fyrir til þess að geta greitt atkvæði með tillögunni óbreyttri.

María Ellen Steingrímsdóttir

Bryndís Rut Logadóttir

Fundarhlé hófst 16:36, fundi fram haldið 16.59

Bókun:

Meirihluti menntaráðs treystir menntasviði til góðra verka og að starfa innan ramma fjárheimilda og laga.

Eftirfarandi var skilgreint í greinargerð sem samþykkt var með öllum greiddum atkvæðum á síðasta fundi menntaráðs:

"Menntasvið kanni jafnframt möguleika á samstarfi um mælikvarða og mat á áhrifum stafrænnar tækni á nám, kennslu, aðgengi, öryggi, velferð og starfsumhverfi kennara. Slíkt styður við gagnsæi, ábyrgð og reglulega endurskoðun til ársins 2030."



Menntasvið hefur, líkt og önnur svið og stofnanir bæjarins, skilgreindar fjárheimildir sem samþykktar eru í fjárhagsáætlun á ári hverju til kaupa á þjónustu þriðja aðila. Vert er að benda á að hér er ekki um nýnæmi að ræða. Sveitarfélagið kaupir reglulega sérfræðiráðgjöf frá ýmsum aðilum og það sama er uppi á teningnum í þessu tilfelli. Meirihlutinn telur óþarfi að binda hendur menntasviðs meira en venjulegt er, en samþykkt tillaga til úrvinnslu liggur fyrir. Þess ber einnig að geta að hér er meirihlutinn ekki að leggja til samþykki á tilteknum kaupum heldur að treysta menntasviði til að ganga til samninga eins og sviðið hefur talsverða reynslu af.

Karen Rúnarsdóttir

Hildur Karen Sveinbjarnarsdóttir

Hildur Einarsdóttir

Arnór Sveinn Aðalsteinsson

Gunnar Sær Ragnarsson

Almenn erindi

04

Aðgerðaáætlun farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins

Lagt er fram til upplýsinga aðgerðaráætlun farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins fyrir árin 2026-2030.

Lagt fram.

Amanda K. Ólafsdóttir vék af fundi 17:08.

Almenn erindi

05

Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna

Lagt fram til kynningar staða innleiðingar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna í Kópavogi.

Lagt fram.

Gestir véku af fundi kl. 17:54.