Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Menntaráð - Tillaga frá fulltrúum meirihluta í menntaráði varðandi ráðgjöf við gerð áætlunar um menntatækni

Málsnúmer: 26082167

Ferill máls

01

Menntaráð - 164. fundur

Lögð er fram til samþykktar tillaga frá fulltrúum meirihluta í menntaráði varðandi ráðgjöf við gerð áætlunar um menntatækni.

Framlögð tillaga samþykkt með fimm greiddum atkvæðum.

Fundarhlé hófst 16:14, fundi fram haldið 16:33

Bókun:

Undirrituð styðja þá tillögu að unnin verður greining og áætlun um notkun snjalltækja í skóla- og frístundastarfi líkt og samþykkt var á síðasta fundi. Það vekur þó athygli að menntaráð er hér beðið um að samþykkja kaup á utanaðkomandi ráðgjöf án þess að fyrir liggi upplýsingar um áætlaðan kostnað, umfang ráðgjafarinnar eða hvaða afurðum henni er ætlað að skila.

Vönduð meðferð opinberra fjármuna kallar á að slíkar upplýsingar liggi fyrir, til þess að tryggja gangsæi, áður en menntaráði er falið að samþykkja að gengið verði til samninga um sérfræðiþjónustu.

Undirrituð hefðu jafnframt viljað að tillögunni fylgdu upplýsingar um hvernig fyrirhugað er að standa að vali ráðgjafa og hvort, með hliðsjón af umfangi og kostnaði verkefnisins, sem og fjárhagsheimildum menntasviðs, hvort að kaupin þyrftu að koma til umfjöllunar innkaupanefndar.

María Ellen Steingrímsdóttir

Bryndís Rut Logadóttir

Björn Þór Rögnvaldsson

Nína Berglind Sigurgeirsdóttir

Bókun:

Fulltrúar Viðreisnar sitja hjá við atkvæðagreiðslu þessa í ljósi þess að við teljum tillöguna ekki nógu skýra og vel unna. Taka skal þó fram að undirritaðar telja fýsilegt að leita skuli til utanaðkomandi greiningaraðila í þeirri vinnu sem framundan er. Við teljum þó að ekki liggi fullnægjandi upplýsingar fyrir til þess að geta greitt atkvæði með tillögunni óbreyttri.

María Ellen Steingrímsdóttir

Bryndís Rut Logadóttir

Fundarhlé hófst 16:36, fundi fram haldið 16.59

Bókun:

Meirihluti menntaráðs treystir menntasviði til góðra verka og að starfa innan ramma fjárheimilda og laga.

Eftirfarandi var skilgreint í greinargerð sem samþykkt var með öllum greiddum atkvæðum á síðasta fundi menntaráðs:

"Menntasvið kanni jafnframt möguleika á samstarfi um mælikvarða og mat á áhrifum stafrænnar tækni á nám, kennslu, aðgengi, öryggi, velferð og starfsumhverfi kennara. Slíkt styður við gagnsæi, ábyrgð og reglulega endurskoðun til ársins 2030."



Menntasvið hefur, líkt og önnur svið og stofnanir bæjarins, skilgreindar fjárheimildir sem samþykktar eru í fjárhagsáætlun á ári hverju til kaupa á þjónustu þriðja aðila. Vert er að benda á að hér er ekki um nýnæmi að ræða. Sveitarfélagið kaupir reglulega sérfræðiráðgjöf frá ýmsum aðilum og það sama er uppi á teningnum í þessu tilfelli. Meirihlutinn telur óþarfi að binda hendur menntasviðs meira en venjulegt er, en samþykkt tillaga til úrvinnslu liggur fyrir. Þess ber einnig að geta að hér er meirihlutinn ekki að leggja til samþykki á tilteknum kaupum heldur að treysta menntasviði til að ganga til samninga eins og sviðið hefur talsverða reynslu af.

Karen Rúnarsdóttir

Hildur Karen Sveinbjarnarsdóttir

Hildur Einarsdóttir

Arnór Sveinn Aðalsteinsson

Gunnar Sær Ragnarsson