Tillaga áheyrnarfulltrúa í skipulags- og umhverfisráði Beitis Ólafssonar um gatnamót Borgarholtsbrautar og Urðarbrautar.
Málsnúmer: 2608744
Ferill máls
01
Skipulags- og umhverfisráð - 35. fundur
Lögð fram að nýju tillaga Beitis Ólafssonar áheyrnarfulltrúa dags. 12. ágúst 2026 að endurskoðun á umferðarstýringu á ljósastýrðum gatnamótum Borgarholtsbrautar og Urðarbrautar, svokallaðri X-stýringu, með hliðsjón af umferðarflæði, biðtíma vegfarenda og ábendingum íbúa.
Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 17. ágúst 2026 var erindinu vísað til umsagnar deildarstjóra gatnadeildar. Einnig er lögð fram umsögn deildarstjóra gatnadeildar dags. 18. september 2026.
Birkir Rútsson, deildarstjóri gatnadeildar, tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Synjað.
Bókun:
„Miðflokkurinn harmar þá niðurstöðu að kjörnir fulltrúar, bæði í meirihluta og minnihluta, treysti sér ekki til að taka afstöðu til málsins og afgreiða það án frekari tafa. Nú er það ljóst að ljósastýring X við gatnamót Borgarholtsbrautar og Urðarbrautar er ekki vanstillt, heldur er hún augljóst vandamál sem hindrar eðlilegt umferðarflæði inn og út úr Kársnesi. Samkvæmt gögnum úr kortasjá Kópavogsbæjar fyrir árin 2014 ? 2020 áður en ljósastýring X var sett upp, var ekkert slys tilkynnt þar sem ekið hafði verið á gangandi eða hjólandi vegfarendur. Rök fyrir ljósastýringunni falla því um sjálf sig þegar kemur að umferðaröryggi þessara hópa. Það er hulin ráðgáta hvers vegna fjögurra arma gatnamót með þungri umferð skulu vera miðpunktur götuþverunar fyrir gangandi og hjólandi. Með öllu óþarft er að beina þeim sem gangandi og hjólandi eru þangað inn, og á það sérstaklega við um börn sem eru að stíga sín fyrstu skref í umferðinni og hafa ekki fullan skilning á þessháttar ljósastýrðum gatnamótum. Í innan við 90 metra fjarlægð frá gatnamótunum eru hefðbundnar gangbrautir og væri réttara að stýra gangandi og hjólandi vegfarendum þangað. Þar er bílaumferð mun minni og götuþverun með stysta móti yfir götur með 30 km/klst. hámarkshraða. Ljóst er að þessi tegund ljósastýringar mun þurfa að víkja með tilkomu Borgarlínunnar. Miðflokkurinn telur brýnt að hefja þegar í stað hugmyndarvinnu um hvernig tryggja megi örugga og greiðfarna leið um svæðið á stöðum í nálægð við gatnamótin þar sem bílaumferð er ekki eins þung. Umferðarþungi inn og út úr Kársnesi mun aukast samhliða því sem óhófleg þétting byggðar eða Reykjavíkurvæðing í boði meirihlutans tekur á sig raunverulega mynd á nesinu.“
Beitir Ólafsson.
Bókun:
„Gatnamót Borgarholtsbrautar og Urðarbrautar eru fjölfarin af skólabörnum á Kársnesinu. Afnám x-ljósastýringar kallar á mótvægisaðgerðir vegna umferðaröryggis barna og teljum við að það sé eðlilegt að skoða gatnamótin samhliða þeirri skipulagsvinnu sem stendur yfir vegna Borgarlínu um Borgarholtsbraut.“
Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Kristinn Dagur Gissurarson.
02
Skipulags- og umhverfisráð - 32. fundur
Lögð fram tillaga Beitis Ólafssonar áheyrnarfulltrúa dags. 12. ágúst 2026 að endurskoðun á umferðarstýringu á ljósastýrðum gatnamótum Borgarholtsbrautar og Urðarbrautar, svokallaðri X-stýringu, með hliðsjón af umferðarflæði, biðtíma vegfarenda og ábendingum íbúa.
Vísað til umsagnar deildarstjóra gatnadeildar.
Bókun:
„Fulltrúar Samfylkingar benda á að núverandi umferðarstýring á gatnamótum Borgarholtsbrautar og Urðarbrautar er fyrst og fremst til að tryggja öryggi gangandi vegfarenda. Um gatnamótin fara daglega mörg börn, meðal annars á leið í Barnaskóla Kársness, Kársnesskóla og Kópavogslaug. Vel kann að vera að hægt sé að finna betri lausn á umferðarstýringu gatnamótanna, en öryggi barna og annarra gangandi vegfarenda verður að vera í forgangi. Í ljósi umræðu á síðasta fundi um umferðaröryggi barna við skóla teljum við sérstaklega mikilvægt að það sé haft að leiðarljósi ef farið verður í endurskoðun gatnamótanna."
Eydís Inga Valsdóttir og Orri Thor Eggertsson.
Bókun:
„Miðflokkurinn tekur heilshugar undir að umferðaröryggi gangandi og akandi vegfarenda skuli ávallt haft að leiðarljósi og aldrei virt vettugi.
Að því sögðu telur Miðflokkurinn að öryggi gangandi vegfarenda skerðist á engan hátt við það að afnema núverandi útfærslu á ljósastýringu á gatnamótunum Borgarholtsbrautar og Urðarbrautar.Götuþverun fyrir gangandi vegfarendur yrði áfram ljósastýrð þvert yfir báðar göturnar og þá tæku gangandi vegfarendur styðstu leið yfir. Einnig ber að árétta að hámarkshraði á umræddum götum er 30 km/klst og eru gangbrautir á næsta nágrenni við gatnamótin.
Kársensið er ört vaxandi hverfi og umferð mun aukast samfara fjölgun íbúa. Ljósastýring í núverandi mynd heftir umferðaflæði og skapar óþarfa tafir fyrir íbúa og þá sem sækja þjónustu á svæðið. Hafa margir íbúar lýst yfir óánægju sinni með þetta fyrirkomulag vegna langar biðraða sem myndast við gatnamótin.
Miðflokkurinn telur brýnt að ráðast í aðgerðir til að bæta skilvirkni gatnamótana, eyða þannig óþarfa biðtíma ökumanna og tryggja greitt umferðaflæði. Hvað varðar öryggi og flæði við fjögurra arma gatnamót er hringtorg ávallt besta lausnin, en byrjum á því að afnema þessa X-stýringu."
Beitir Ólafsson.