Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Skipulags- og umhverfisráð - 32. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Eydís Inga Valsdóttir - aðalfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson - formaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - varaformaður
  • Árnína Steinunn Kristjánsdóttir - aðalfulltrúi
  • Guðmundur Jóhann Jónsson - aðalfulltrúi
  • Kristinn Dagur Gissurarson - aðalfulltrúi
  • Beitir Ólafsson - áheyrnarfulltrúi
  • Pétur Björgvin Sveinsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Hafsteinn Hrannar Ásgrímsson - vara áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Sólveig Skaftadóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Orri Thor Eggertsson - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn

Starfsmenn

  • Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
  • Andrea Kristinsdóttir - verkefnastjóri
  • Karlotta Helgadóttir - fulltrúi skipulagsdeildar
  • Harri Ormarsson - lögfræðingur
  • Ásthildur Helgadóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs

Ritari

  • Karlotta Helgadóttir

Dagskrá fundar

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

01

Bæjarráð - 3260. fundur frá 16.07.2026

26033708 - Umhverfisviðurkenningar 2026

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulags- og umhverfisráðs að götu ársins.

Almenn erindi

02

Hafnarbraut 25. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn M3 studio arkitekta dags. 10. júní 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 25 við Hafnarbraut um breytingu á deiliskipulagi Kársneshafnar. Í breytingunni felst að byggð verði fjögurra hæða fjölnota bygging með 54 íbúðum, verslunar- og þjónusturými á jarðhæð, bílageymslum í kjallara og á 1. hæð auk sameiginlegs garðrýmis ofan á 1. hæð. Breytingartillögunni fylgir skýringahefti dags. 18. maí 2026 og dagsbirtugreiningar ódags. Byggingarmagn hækkar úr 1,038 m² í 10,575 m², nýtingarhlutfall ofanjarðar verður 2,28 og heildarfjöldi bílastæða verður 177.

Helgi Már Hallgrímsson arkitekt og Gísli Bjarnhéðinsson, fulltrúi lóðarhafa, gerðu grein fyrir erindinu.

Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Bókun:

„Miðflokkurinn harmar þá ,,Reykjavíkurvæðingu" sem nú á sér stað í Kópavogi með gjaldtöku á bílastæðum í bílakjöllurum við íbúðarhús, auk þess sem framboðið á bílastæðum við íbúðabyggð er verulega ábótavant. Það er miður að nú skuli vera að raungerast það sem Miðflokkurinn varaði ítrekað við í kosningabaráttunni.

Með tilkomu gjaldskyldu í íbúðar- og verslunar byggingum mun ökutækjum í auknum mæli verða lagt í nærliggjandi götum þar sem engin gjaldskylda er. Þessi þróun er varhugaverð og ljóst er að gjaldskylda mun leiða til þess að ásókn í stæði innan íbúðargatna eykst jafnt á Kársnesinu, sem í og við Hamraborg og Smáralind.“

Beitir Ólafsson.

Bókun:

„Fulltrúar Samfylkingar samþykkja að vísa erindinu til umsagnar skipulagsfulltrúa. Nú þegar er gert ráð fyrir miklu byggingarmagni á vestanverðu Kársnesi og við Kársneshöfn. Við teljum mikilvægt að gæta hófs í frekari þéttingu byggðar á svæðinu þannig að hún komi ekki niður á lífsgæðum íbúa hverfisins. Huga þarf sérstaklega að umferðarflæði og aðkomu að hverfinu, sem og uppbyggingu innviða.“

Eydís Inga Valsdóttir og Orri Thor Eggertsson.

Fundarhlé kl. 16:20, fundi fram haldið kl. 16:35.

Bókun:

„Gagnrýni fulltrúa Miðflokksins stingur í stúf í ljósi þess að þarna er um að ræða reit sem var sérstaklega eyrnamerktur bílastæðahúsi til þess að fjölga bílastæðum á Kársnesi, í samræmi við ákall íbúa á svæðinu. Þess utan er bókunin með öllu ótímabær enda málið eingöngu til kynningar í dag og málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa, en af bókuninni mætti ætla að afgreiðsla lægi fyrir.“

Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Kristinn Dagur Gissurarson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir og Guðmundur Jóhann Jónsson.

Almenn erindi

03

Stúdentagarðar á reit 4. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Félagsstofnunar stúdenta dags. 1. júlí 2026 um uppbyggingu á stúdentagörðum á reit 4 á vesturhluta Kársness. Fyrirspurninni fylgja skissur unnar af Andrúm arkitektum dags. í júlí 2026 að mögulegri uppbyggingu fjögurra, fjögurra hæða húsa með um 144 einstaklingsíbúðum, samtals 7.350 m² að flatarmáli. Ekki er gert ráð fyrir bílastæðum á lóðinni.

Heiður Anna Helgadóttir og Magnús Orri Einarsson frá Félagsstofnun stúdenta og Kristján Garðarsson arkitekt frá Andrúm arkitektum gerðu grein fyrir erindinu.

Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Bókun:

„Viðreisn fagnar þessari fyrirspurn og frumdrögum frá Félagsstofnun stúdenta og telur þetta samræmast skiplagi svæðisins, nálægð við háskólasvæðið og fyrirhugaða borgarlínu yfir Fossvogsbrú. Það yrði lyftistöng fyrir námsmenn að fá stúdentagarða reista á þessum stað á Kársnesi og skemmtileg viðbót fyrir svæðið.“

Hrannar Ásgrímsson

Bókun:

"Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna erindi Félagsstofnunar stúdenta. Lengi hefur verið kallað eftir uppbyggingu stúdentaíbúða í Kópavogi og aðilar sem byggja námsmannaíbúðir hafa ítrekað óskað eftir lóðum án árangurs. Nú liggur fyrir þessi tillaga frá Félagsstofnun Stúdenta um uppbyggingu á Kársnesi, við Öldu yfir Fossvog og í nálægð við háskólasvæðið. Við teljum mikilvægt að grípa þetta tækifæri og skapa svigrúm fyrir stúdentaíbúðir, jafnvel þó það kalli á endurskoðun annarra uppbyggingaráforma á svæðinu.“

Eydís Inga Valsdóttir og Orri Thor Eggertsson

Almenn erindi

04

Vatnsendablettur 1B. Breyting á aðal- og deiliskipulagi.

Lögð fram að nýju umsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts dags. 16. janúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 1B og 510 við Vatnsendablett og landeiganda um breytingu á aðal- og deiliskipulagi. Í breytingunni felst breytt landnotkun á opnu svæði skv. aðalskipulagi sem afmarkast af Elliðavatni til norðurs, lóðinni Kríunes til austurs, lóðunum við Vatnsendablett 1A og 716 til 718 til suðurs og lóðunum við Vatnsendablett 710 til 712 til vesturs í íbúðabyggð. Gert er ráð fyrir 18 nýjum einbýlishúsalóðum á svæðinu. Umsókninni fylgir greinargerð dags. 30. desember 2025, uppdráttur og skýringarmyndir dags. 11. desember 2024, hönnunaráætlun ódags. og framkvæmdaáætlun ódags. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 16. mars 2026 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Lagt fram að nýju ásamt umsögn umhverfissviðs dags. 1. júlí 2026 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. ágúst 2026.

Afgreiðslu frestað.

Bókun:

„Miðflokkurinn telur jákvætt að Kópavogsbær og hagsmunaaðilar eigi í samtali um uppbyggingu á svæðinu er varðar öryggismál, aukið aðgengi að útivistarsvæðum og hóflega þéttingu byggðar.

Verði niðurstaða málsins sú að bíða skuli heildstæðrar stefnumótunar fyrir svæðið við Elliðavatn, telur Miðflokkurinn nauðsynlegt að skýrt komi fram hvaða svæði slík stefnumótun tekur til, hvenær henni er ætlað að ljúka og hvernig að henni verður staðið. Frestun án skilgreinds tímaramma samrýmist illa málshraðareglu 9.gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, einkum í máli sem verið hefur í meðferð bæjarins frá janúar 2026 og varðar öryggi barna á skólaleið.

Miðflokkurinn telur að sjónarmið um heildstæða stefnumótun fyrir svæðið við Elliðavatn og afgreiðsla þessa erindis útiloki ekki hvað annað. Telur flokkurinn að fullt tilefni sé til þess að samþykkja fyrirliggjandi tillögur til auglýsinga, sbr.1. mgr. 36. gr. Skipulagslaga, og fela umhverfissviði að hefja vinnu við heildstæða stefnumótun samhliða því ferli.

Miðflokkurinn leggur ríka áherslu á gott og skilvirkt samtal á milli Kópavogsbæjar og hagsmunaaðila. Ljúka þarf áragömlum ágreiningi og hefja uppbyggilega samvinnu. Íbúar Kópavogsbæjar eru orðnir langþreyttir á þeim kostnaðarsömu málaferlum sem reglulega hafa blossað upp á milli bæjarins og landeiganda á Vatnsenda, en þar eru íbúar bæjarins sem á endanum þurfa að standa straum af þeim kostnaði.“

Beitir Ólafsson.

Almenn erindi

05

Askalind 2. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju að lokinni auglýsingu umsókn Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts dags. 16. mars 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Askalind um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggja auka hæð ofan á núverandi verslunarhúsnæði á lóðinni ásamt því að bæta við stigahúsi með lyftu norðan megin við húsið og fjölga bílastæðum. Tillagan var auglýst frá 28. maí til 12. júlí 2026, athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. ágúst 2026.

Ester Anna Ármannsdóttir verkefnastjóri gerði grein fyrir erindinu.

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. ágúst 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

06

Stígagerð í botni Kópavogs. Umsókn um framkvæmdaleyfi.

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu umsókn Betri Samgangna ohf. dags. 17. apríl 2026 um framkvæmdaleyfi á grundvelli Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040. Í framkvæmdinni felst að útbúa aðskilda göngu- og hjólastíga frá stígamótum við undirgöng við Hafnarfjarðarveg við Kópavogstún sem liggur vestan Hafnarfjarðarvegar að sveitarfélagamörkum við Garðabæ. Jafnframt verður sett upp ný brú fyrir gangandi ásamt gegnsæjum hljóðvegg. Umsóknin var grenndarkynnt frá 6. júní til 2. júlí 2026, athugasemdir bárust. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. júlí 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2026.

Ester Anna Ármannsdóttir verkefnastjóri gerði grein fyrir erindinu.

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

07

Umhverfisviðurkenningar og gata ársins 2026

Lögð fram tillaga dags. 14. júlí 2026 að breytingu á ákvörðun skipulags- og umhverfisráðs um veitingu umhverfisviðurkenninga 2026.

Karen Jónasdóttir verkefnastjóri umhverfismála gerði grein fyrir erindinu.

Samþykkt.

Almenn erindi

08

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Jónasar Más Torfasonar og Eydísar Ingu Valsdóttur um Kópavogslæk

Lögð fram fyrirspurn bæjarfulltrúa Jónasar Más Torfasonar og Eydísar Ingu Valsdóttur, dags. 10. júní 2026, um ástand og úrbætur Kópavogslækjar. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 15. júní 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra umhverfismála. Lagt fram að nýju ásamt umsögn verkefnastjóra umhverfismála dags. 13. ágúst 2026.

Karen Jónasdóttir verkefnastjóri umhverfismála gerði grein fyrir erindinu.

Lagt fram.

Bókun:

„Fulltrúar Samfylkingar þakka fyrir skýr og greinargóð svör við fyrirspurn okkar um ástand Kópavogslækjar. Á sama tíma er ljóst að mikið verk er fyrir hendi til að lækurinn og útivistarsvæðið í kring komist í ásættanlegt horf. Viðvera krabbameinsvaldandi og stökkbreytandi efna yfir viðmiðunarmörkum og hækkuð gildi saurgerla í læknum er með öllu óásættanleg og ljóst að taka þarf þessa áskorun töluvert fastari tökum.

Fulltrúar Samfylkingar munu leggja til á næsta fundi skipulags- og umhverfisráðs að markviss aðgerðaáætlun verði mótuð til betrunar á vatnsgæðum Kópavogslækjar og að vinna við deiliskipulag vegna settjarna verði sett í hæsta forgang.

Jafnframt er ljóst að við það verður ekki unað að börnum sé leyft að leika í Kópavogslæk í góðri trú forráðamanna. Því telja undirrituð að Kópavogsbæ sé ekki annað stætt en að setja upp merkingar meðfram Kópavogslæk sem vara við mengun hans þar til ráðist hafi verið í úrbætur og mælingar endurspegla ásættanleg mörk efna og gerla.“

Eydís Inga Valsdóttir og Orri Thor Eggertsson.

Almenn erindi

09

Stöðvarhvarf 1-3. Byggingaráform.

Með tilvísun í skilmála í deiliskipulagi Vatnsendahvarfs, dags. 14. nóvember 2023, eru lögð fram byggingaráform Andra Klausen arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2-4 við Skólahvarf. Í byggingaráformum kemur fram hvernig hönnun og frágangur mannvirkja og lóða falla að viðmiðum í almennum ákvæðum í skipulagsskilmálum í gildandi deiliskipulagi Vatnsendahvarfs.

Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Almenn erindi

10

Hlíðarhvarf 21. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Sigurðar Hilmars Ólafssonar dags. 24. janúar 2026 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 21 við Hlíðarhvarf. Í breytingunni felst að fyrirhugað einbýlishús á lóðinni verði á einni hæð í stað tveggja og nái samtals 13,5 m² út fyrir byggingarreit til vesturs. 1,9 m þar sem það er mest (6,8 m²) og 0,8 m þar sem það er minna (6,7 m²), ásamt því að ná 1,0 m út fyrir byggingarreit til norðurs, samtals 11,2 m². Nýtingarhlutfall lóðar verður 0,30. Þá eru bílastæði og aðkoma færð frá suð-austurhorni í norð- austurhorn, miðað við deiliskipulag. Tillagan var grenndarkynnt frá 20. maí til 21. júní 2026. Einnig eru lagðar fram athugasemdir sem bárust á kynningartímanum ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. ágúst 2026 og greinargerð skipulagshönnuða dags. 16. júlí 2026.

Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 14. ágúst 2026 með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Árnínu Steinunnar Kristjánsdóttur, Guðmundar Jóhanns Jónssonar, Eydísar Ingu Valsdóttur og Orra Thors Eggertssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.

Almenn erindi

11

Stígakerfi - Breyting á 4. kafla í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030.

Lögð fram umsagnarbeiðni Garðabæjar dags. 25. júní 2026 um tillögu að breytingu á ákvæðum 4. kafla í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem ná til stígakerfa. Viðfangsefni breytingartillögunnar er heildarendurskoðun á stígakerfi Garðabæjar og er áætluninni ætlað að vera til leiðbeiningar fyrir deiliskipulagsgerð, verkhönnun og uppbyggingu stíga í Garðabæ til framtíðar. Endurskoðun á kafla 4.2, tillaga dags. 11. júní 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 10. ágúst 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júlí 2026.

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júlí 2026 samþykkt.

Almenn erindi

12

Fyrirspurn Beitis Ólafssonar áheyrnarfulltrúa í skipulags- og umhverfisráði um aðstöðu fyrir HSSK á Kársnesi

Lögð fram fyrirspurn Beitis Ólafssonar áheyrnarfulltrúa dags. 12. ágúst 2026 um nýja aðstöðu fyrir bátaflota Hjálparsveitar skáta í Kópavogi (HSSK) á Kársnesi, staðsetningu og tímasetningu mögulegrar uppbyggingar. Jafnframt er óskað upplýsinga um áhrif Fossvogsbrúar á viðbragðstíma og framkvæmd sjóbjörgunar, öryggi sjófarenda og kænuiðkenda á svæðinu, sem og samráð við HSSK við hönnun og skipulag brúarinnar.

Lagt fram.

Almenn erindi

13

Tillaga Beitis Ólafssonar áheyrnarfulltrúa í skipulags- og umhverfisráði um gatnamót Borgarholtsbrautar og Urðarbrautar.

Lögð fram tillaga Beitis Ólafssonar áheyrnarfulltrúa dags. 12. ágúst 2026 að endurskoðun á umferðarstýringu á ljósastýrðum gatnamótum Borgarholtsbrautar og Urðarbrautar, svokallaðri X-stýringu, með hliðsjón af umferðarflæði, biðtíma vegfarenda og ábendingum íbúa.

Vísað til umsagnar deildarstjóra gatnadeildar.

Bókun:

„Fulltrúar Samfylkingar benda á að núverandi umferðarstýring á gatnamótum Borgarholtsbrautar og Urðarbrautar er fyrst og fremst til að tryggja öryggi gangandi vegfarenda. Um gatnamótin fara daglega mörg börn, meðal annars á leið í Barnaskóla Kársness, Kársnesskóla og Kópavogslaug. Vel kann að vera að hægt sé að finna betri lausn á umferðarstýringu gatnamótanna, en öryggi barna og annarra gangandi vegfarenda verður að vera í forgangi. Í ljósi umræðu á síðasta fundi um umferðaröryggi barna við skóla teljum við sérstaklega mikilvægt að það sé haft að leiðarljósi ef farið verður í endurskoðun gatnamótanna."

Eydís Inga Valsdóttir og Orri Thor Eggertsson.

Bókun:

„Miðflokkurinn tekur heilshugar undir að umferðaröryggi gangandi og akandi vegfarenda skuli ávallt haft að leiðarljósi og aldrei virt vettugi.

Að því sögðu telur Miðflokkurinn að öryggi gangandi vegfarenda skerðist á engan hátt við það að afnema núverandi útfærslu á ljósastýringu á gatnamótunum Borgarholtsbrautar og Urðarbrautar.Götuþverun fyrir gangandi vegfarendur yrði áfram ljósastýrð þvert yfir báðar göturnar og þá tæku gangandi vegfarendur styðstu leið yfir. Einnig ber að árétta að hámarkshraði á umræddum götum er 30 km/klst og eru gangbrautir á næsta nágrenni við gatnamótin.

Kársensið er ört vaxandi hverfi og umferð mun aukast samfara fjölgun íbúa. Ljósastýring í núverandi mynd heftir umferðaflæði og skapar óþarfa tafir fyrir íbúa og þá sem sækja þjónustu á svæðið. Hafa margir íbúar lýst yfir óánægju sinni með þetta fyrirkomulag vegna langar biðraða sem myndast við gatnamótin.

Miðflokkurinn telur brýnt að ráðast í aðgerðir til að bæta skilvirkni gatnamótana, eyða þannig óþarfa biðtíma ökumanna og tryggja greitt umferðaflæði. Hvað varðar öryggi og flæði við fjögurra arma gatnamót er hringtorg ávallt besta lausnin, en byrjum á því að afnema þessa X-stýringu."

Beitir Ólafsson.