Fjárlagafrumvarp 2027 - Betri samgöngur
Málsnúmer: 26091632
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3265. fundur
Frá Betri Samgögnum ohf., dags. 11.09.2026, lagt fram erindi þar sem fram kemur að framlag ríkisins til Betri Samagangna vegna framkvæmda samkvæmt samgöngusáttmálanum verði tímabundið lækkuð um 2 ma.kr.
Lagt fram.
Fundarhlé hófst kl. 10:09, fundi fram haldið kl.11:17
Bókun:
"Frestanir á fjármögnun og framkvæmdum Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins ættu að koma fáum á óvart. Að þær komi fram svo stuttu eftir undirritun undirstrikar hversu óraunhæfar forsendur sáttmálans séu.
Sérstakt áhyggjuefni er að sveitarfélögin hafa þegar borið stærri hlut beinna framlaga en langtímaskipting sáttmálans gerir ráð fyrir, á sama tíma er verulegur hluti framtíðarfjármögnunar enn háður óútfærðum 143 milljörðum króna sem fjármagna á með flýti- og umferðargjöldum, sem meirihlutinn í Kópavogi hefur gefið í skyn að hann sé mótfallinn þó hann hafi samþykkt gjöldin með undirritun sáttmálans.
Það gefur augaleið að ófjármagnaði 311 milljarða króna bútasaumurinn sem samgöngusáttmálinn er átti aldrei möguleika að verða að veruleika, hvað þá halda tíma- og kostnaðaráætlun. Það er fjarstæðukennt að Borgarlínan, sem mun samkvæmt björtustu spám þjóna 12% ferða á höfuðborgarsvæðinu, standi undir 42% fjárfestinga sáttmálans.
Því miður hefur sáttmálinn þegar haft veruleg áhrif á skipulag Kópavogs, þar sem allt virðist vera gert til að þvinga fram breyttar ferðavenjur, þrengja götur og þétta byggð óhóflega mikið, í anda skipulags Reykjavíkurborgar.
Undirritaður leggur því til virkjun endurskoðunarákvæðis Samgöngusáttmálans, þar sem Borgarlínan verði tekin út eða umfang hennar taki mið af mögulegri notkun og fjármunum forgangsraðað að nýju. Mun Miðflokkurinn leggja fram tillögu þess efnis á næstu vikum."
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar taka ekki undir þá afstöðu fulltrúa Miðflokksins að tímabundnar breytingar á framlagi ríkisins til Betri samgangna feli í sér að Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins sé óraunhæfur eða hafi brugðist. Eins og fram kemur í fjárlagafrumvarpi 2027 skýrist lækkun framlags um 2 ma.kr. af því að verulegar fjárfestingarheimildir hafa safnast upp vegna verkefna sem ekki hafa gengið út á fyrri árum og munu þær heimildir nýtast til framkvæmda á komandi ári.
Samgöngusáttmálinn er stærsta samgönguuppbygging sem ráðist hefur verið í á höfuðborgarsvæðinu og felur í sér uppbyggingu stofnvega, virkra ferðamáta, umferðaröryggisverkefna og almenningssamgangna. Markmið hans er að tryggja fjölbreyttari samgöngukosti og bæta tengingar milli sveitarfélaga á svæðinu.
Fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar telja því ekki tilefni til að virkja endurskoðunarákvæði sáttmálans með þeim hætti sem fulltrúi Miðflokksins leggur til. Þvert á móti er mikilvægt að ríki og sveitarfélög vinni áfram sameiginlega að þeim verkefnum sem þegar hefur verið samið um til að bæta samgöngur íbúa höfuðborgarsvæðisins."
Eydís Inga Valsdóttir
María Ellen Steingrímsdóttir
Bókun:
"Það eru vonbrigði að ríkið dragi lappirnar þegar kemur að fjármögnun sáttmálans og fer þannig gegn samkomulagi við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu.
Í því ljósi er mikilvægt að ríkið sýni á spilin um hvernig staðið verði við þeirra hlut sáttmálans að fullu. Teljum við heppilegra að horfa til annarra leiða en flýti- og umferðargjalda. Hefur meirihlutinn í því samhengi bent á mikilvægi þess að ríkið hugi að annarri fjármögnun eins og sölu ríkiseigna til að greiða fyrir uppbygginguna.
Sveitarfélögin þurfa að geta treyst því að ríkið standi við þær fjárhagslegu skuldbindingar sem samkomulagið byggir á. Óvissa um útfærslu fjármögnunar ríkisins má ekki verða til þess að tefja nauðsynlegar samgöngubætur eða færa aukna fjárhagslega áhættu yfir á sveitarfélögin."
Andri Steinn Hilmarsson
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Vignir Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Bókun:
"Fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar vilja árétta að ekki er rétt að túlka tímabundna tilfærslu framlaga sem merki um að forsendur Samgöngusáttmálans séu brostnar. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2027 byggist breytingin á uppsöfnuðum fjárfestingarheimildum sem nýtast til framkvæmda á árinu. Mikilvægt er að áfram sé staðið við skuldbindingar sáttmálans og verkefnunum haldið til streitu, og eru engin áform uppi um annað."
Eydís Inga Valsdóttir
María Ellen Steingrímsdóttir